Hlynur - 15.02.1978, Side 22
Norðurlandaferðir
LÍS í sumar
Eins og getið var í síðasta Hlyni,
mun LÍS, í samstarfi við Samvinnu-
ferðir, efna til sérstakra ferða til
Norðurlanda fyrir samvinnustarfs-
menn nú í sumar. Par sem ferðir
LÍS til Norðurlanda hafa orðið
mjög vinsælar, er útlit fyrir mikla
þátttöku. Pví ætti enginn að draga
að panta sér far sem fyrst.
Málmey — 26. júní til 5. júlí.
Fyrsta ferðin verður til Málm-
eyjar, nábúa Kaupmannahafnar
handan Eyrarsundsins. Fyrir þá,
sem ekki ætla að ferðast á eigin
vegum, verður skipulögð c. a. átta
daga tjaldferð um Suðvestur-Svíþjóð
m. a. til Trollháttan og Gauta-
borgar og þaðan með ferju til
Norður-Jótlands. Síðan verður hald-
ið áfram suður Jótland og yfir á
Fjón, Lágland, Langaland, Falstur
og Mön, þar sem krítarklettarnir
frægu eru og svo endað í Kaup-
mannahöfn. Sem sagt, svipuð leið
og í fyrra og sagt er frá í 5. tbl.
Hlyns ’77. Fararstjóri verður að
öllum líkindum, Porsteinn Máni
Árnason og dvalið verður á tjald-
stæðum. Flogið verður kl. átta,
mánudagsmorguninn 26. júní frá
Keflavík og heim aftur kl. 13.00
(sænskur tími) miðvikudaginn 5.
júlí.
Prándheimur — 9. júlí til 24. júlí.
önnur ferðin verður til Pránd-
heims í Noregi. Flogið verður út
sunnudaginn 9. júlí, en ekki 10.
júlí, eins og áður hefur verið aug-
lýst. Brottfarartími frá Keflavík er
kl. átta að morgni. Til baka verður
haldið kl. tvö eftir miðnætti frá
Prándheimi, mánudaginn 24. júlí í
stað sunnudagskvölds, eins og aug-
lýst hafði verið.
Frá Prándheimi verða skipulagð-
ar tvær tjaldferðir. önnur í norður,
allt að Bodö og síðan þvert yfir
Skandinavíuskagann til baðstrand-
arbæjarins Piteá í Norður-Svíþjóð
og þaðan í suður upp í sænsku
dalina og yfir til Prándheims —-
10 daga ferð. Fararstjóri í þessari
tjaldferð verður væntanlega Pétur
Kristjónsson.
Hin ferðin verður í suður, allt