Hlynur - 15.02.1978, Side 23
til Osló um Austurdal. Síðan um
Guðbrandsdal í Romsdal og þaðan
til Þrándheims — 9 daga ferð.
Fararstjóri verður væntanlega Jónas
Jónsson, ritstjóri.
Umeá — 28. júlí til 7. ágúst.
Þriðja ferðin verður svo til Umea
í Norður-Svíþjóð, en sú borg er
litlu sunnar er Luleá, áfangastaður
samvinnustarfsmanna tvö sl. sumur.
Farið verður frá Keflavík kl. sex
að morgni föstudagsins 28. júlí og
flogið til baka frá Umeá aðfarar-
nótt mánudagsins 7. ágúst kl. tvö
að sænskum tíma, en þann dag
er frídagur verslunarmanna.
Frá Umeá verða einnig skipu-
lagðar tvær tjaldferðir. Verður önn-
ur til Finnlands og farið með ferju
til Vasa og síðan um þvert Mið-
Finnland til Helsinki og Turku og
ekið með vesturströndinni til baka
um Vasa til Umeá — 7 daga ferð.
Fararstjóri í þessari ferð verður
Rorgþór S. Kjærnested fréttamaður,
sem lengi dvaldist í Finnlandi.
Hin ferðin verður í norðurátt,
allt til Kiruna og Narvik og þaðan
niður á sænsku ströndina í Piteá,
þar sem væntanlega verður notið
sjávar og sólar — 8 daga ferð.
Fararstjóri verður Karl Jeppesen
kennari, sem var einmitt fararstjóri
á svipuðum slóðum í ferð sam-
vinnustarfsmanna sl. sumar.
Flugfargjald og ferðakostnaður
®tlendis.
Flugfargjöld án flugvallarskatts
verða þessi:
Málmey kr. 49.900,00
Þrándheimur — 47.000,00
Umeá — 48.000,00
Áætlað hafði verið sl. haust, að
verð á flugfari yrði í kringum 40
þúsund krónur, en því miður hefur
verðbólga og gengisfelling séð fyrir
því, að sú áætlun stóðst ekki. Þó
er hér um mjög hagstæð fargjöld að
ræða, sem ekki munu breytast úr
þessu. Rétt er að taka það fram,
að þessi fargjöld gilda fyrir félags-
menn í aðildarfélögum LÍS.
Börn, 2ja til 12 ára, fá 50%
afslátt og fyrir yngri börn er
aðeins greiddur flugvallarskattur.
Þá verður veittur afsláttur fyrir
börn í skoðunarferðum erlendis.
Skoðunarferðirnar hafa ekki enn
verið verðlagðar nákvæmlega, en
gera má ráð fyrir, að þær kosti að
jafnaði um 70 sænskar kr. á dag
fyrir einstakling, þó mismunandi
eftir einstökum ferðum. Innifalið
er: rúta, ferjur, tjaldstæði og farar-
stjórn. Ferðirnar á að greiða í er-
lendri mynt, en á móti kemur að
farþegar í þessum ferðum fá fullan
gjaldeyrisskammt.
Félagar í LÍS og NSS hafa for-
gang til 15. apríl n. k.
Byrjað var að taka niður pantan-
ir 15. febrúar sl. og félagsmenn í
aðildarfélögum LÍS hafa forgang
að sætum til 15. apríl n. k. Hið
sama gildir um félagsmenn í NSS,
en nemendasambandið hefur samið
um sæti í þessum ferðum fyrir
félagsmenn sína á sama hátt og á
sl. sumri.
Það er ástæða til að hvetja fólk
til að panta sem fyrst, því eftir
15. apríl getur svo farið, að óseld-
um sætum verði ráðstafað til
stærri hóps í einu og því uppselt
í ferðina. Nauðsynlegt er að stað-
festa pöntun með 15 þúsund króna
innborgun fyrir 15. apríl n. k. til
Samvinnuferða.
Tekið verður á móti pöntunum
hjá Samvinnuferðum, Austurstræti
12, sími 27077 og hjá skrifstofu
LÍS í Hamragörðum, Hávallagötu
24, sími 21944. Umsjón með bók-
unum hjá Samvinnuferðum mun
Auður Björnsdóttir hafa.
Sauna og sól í Finnlandi.