Hlynur - 15.02.1978, Qupperneq 24
Frá ísafirði
Kristjana Sigurðardóttir, frétta-
ritari Hlyns hjá Starfsmannafé-
lagi Kf. ísfirðinga, sendi Hlyni
þetta fréttabréf og myndir af
starfsfólki kaupfélagsins. Um
leið og Kristjönu er þökkuð fram-
kvæmdasemin, er því beint til
starfsmannafélaganna og frétta-
ritara Hlyns að duga nú vel í að
senda Hlyni fréttaefni á þessu
ári og framvegis.
tsafirði á þorra 1978.
Starfsmannafélag K. í. fagnaði
nýju ári með fjölmennum fundi í
byrjun janúar. Par var margt skraf-
að, en til umræðu var t. d. betra
samband við stjórn K. í., en því
miður virðist það erfitt, því búið
er að skrifa stjórninni þrjú bréf,
en ekkert svar fengist.
Starfsmannafélagið vill t. d. at-
huga með afslátt af vörum fyrir
félagsmenn og um afnot af hús-
næði. Einnig að einn fulltrúi frá
S. K. í. fái rétt til setu í stjórn
kaupfélagsins. Við höfum frétt, að
þar sem svo sé, hafi komist á betra
og traustara samstarf milli kaup-
félagsins og starfsmannanna.
Mikið var rætt á þessum fundi
um Holtagarða og telur félagið rétt
að allir félagsmenn LÍS eigi rétt
til að versla þar.
S. K. I. á hlut í Vestfjarðahúsi
að Bifröst og dvöldust fjórir félags-
menn þar sl. sumar. Vonandi lækk-
ar ekki sú tala, þótt eitt kaupfélag,
Kf. Dýrfirðinga hafi bæst í hóp
þeirra félaga, sem aðild eiga að
þessu húsi og bjóðum við það vel-
komið.
Með hækkandi sól vilja allir lyfta
sér upp úr skammdeginu og það
ætlum við okkur að gera, m. a.
með árshátíð 4. mars og sennilega
með leikhúsferð til Reykjavíkur nú
í vor, eins og við gerðum sl. vor.
Einnig er hugur í fólki um rútu-
ferð í sumar, t. d. í Vatnsfjörð og
þá í samráði við starfsmannafélögin
á Flateyri, Þingeyri og Patreksfirði
og fleiri stöðum, því alltaf er gam-
an að hitta starfsbræður og ræða
málin.
Við hér á fsafirði biðjum kær-
lega að heilsa öllum lesendum
Hlyns.
Kristjana Sigurðardóttir, fréttaritari.