Hlynur - 15.02.1978, Qupperneq 26
Úr félagslífinu
Hort tefldi fjöltefli við
félaga í Skákklúbbi
Hamragarða.
Hinn kunni stórmeistari í skák
og góðvinur íslendinga, Hort frá
Tékkóslóvakíu, tefldi fjöltefli á 29
borðum á vegum Skákklúbbs
Hamragarða þann 23. febr. sl. og
var teflt í samkomusal Samvinnu-
bankans í Bankastræti. Hort vann
allar skákirnar nema eina, sem varð
jafntefli. Sá, sem því náði, heitir
Helgi Jónatansson og er Keflvík-
ingur.
Bjarni Tómasson, for-
maður Sf. Kf. Árnesinga.
Starfsmannafélag Kf. Árnesinga
bélt fyrir nokkru aðalfund sinn og
var Bjarni Tómasson, rafvirki,
kjörinn formaður, í stað David
Vokes, og önnur í stjórn þau, Her-
borg Friðjónsdóttir, gjaldkeri; Guð-
jón Stefánsson, varaformaður;
Hólmfríður ritari og Jóhanna Haf-
dís, meðstjórnandi.
Á þorranum var þorri blótaður
mjög kröftuglega og var fjölmenni
á blótinu.
Velheppnað hópeflis-
námskeið hjá KEA.
Nýlokið er námskeiði í hópefli
eða gruppedynamik, sem haldið var
á vegum KEA og Gunnlaugur P.
Kristinsson, fræðslufulltrúi hafði
veg og vanda af. Námskeiðið stóð
í þrjá daga, frá kl. níu til kl. fimm
á daginn og þátttakendur voru alls
22. Helmingur þeirra voru deildar-
stjórar í verslunum KEA, sex störf-
uðu við iðnað og þjónustu á vegum
félagsins og fimm af skrifstofum
KEA.
Leiðbeinandi var Gunnar Arnar-
son, sálfræðingur, en hann hefur
m. a. haldið tvö slík námskeið í
Hamragörðum og það þriðja mun
hefjast nú eftir páska. Petta mun
í fyrsta sinn, sem samvinnufélag
heldur slíkt námskeið fyrir starfs-
menn sína, en námskeiðið hjá KEA
var þátttakendum að kostnaðar-
lausu og haldið í vinnutíma.
Sigurður Viggósson
kjörinn fyrsti formaður
Sf. Kf. Patreksfjarðar.
Sl. haust, nánar 28. september,
var stofnað starfsmannafélag hjá
Kf. Patreksfjarðar. Fyrsta stjórn fé-
lagsins er þannig skipuð, að Sig-
urður Viggósson er formaður, Arn-
fríður Stefánsdóttir gjaldkeri og
Magnús Björnsson ritari. Stofnfé-
lagar voru 20 starfsmenn kaupfé-
lagsins á Patreksfirði og Bíldudal.
Frá aðalfundi FSSA.
Félag starfsmanna samvinnutrygg-
ingafélaganna, FSSA, hélt sinn aðal-
fund í Hamragörðum 9. febrúar sl.
Ingvar Sigurbjörnsson var endur-
kjörinn formaður félagsins, vara-
formaður var kjörinn Magnús
Steinarsson, ritari Hrafnhildur Por-
geirsdóttir, gjaldkeri Rögnvaldur
Haraldsson og Pétur Kristjónsson
meðstjórnandi. Pá var Sigurður
Pórhallsson kjörinn aðalfulltrúi í
fulltrúaráð samvinnutryggingafélag-
anna til næstu tveggja ára og
Ingvar Sigurbjörnsson varamaður.
Fyrir var í fulltrúaráðinu frá FSSA,
Pétur Kristjónsson.
Samþykkt var á fundinum að
lífeyrisþegar njóti fullra félagsrétt-
inda í félaginu.
FSSA á nú þrjú orlofshús að Bif-
röst og voru þau vel nýtt sl. sumar,
enda leigugjaldi mjög í hóf stillt.
Var það 8.500,00 kr. á viku.
Hefur félagið notið góðs stuðnings
Samvinnutrygginga varðandi fjár-
mögnun við byggingu þessara húsa,
en FSSA byggði fyrstu orlofshúsin
sem reist voru að Bifröst.
Á sl. ári var gerður milli FSSA
og samvinnutryggingafél. samning-
ur um réttarstöðu félagsins fyrir
hönd starfsmanna í ýmsum málum,
sem ekki heyra beint til kjaramála.
Pá var á sl. hausti kjörinn fulltrúi
í stjórn samvinnutryggingafélag-
anna, með málfrelsi og tillögurétti
og var þátttaka í því kjöri mjög
góð, eða yfir 98%.
Margt að gerast hjá
Nemendasambandi
Samvinnuskólans.
örugglega mun ekkert nemenda-
samband skóla starfa jafn mikið og
Nemendasamband Samvinnuskólans,
NSS. I vetur hefur ýmislegt verið
á dagskrá. Nokkrir félagar dvöldu
í orlofshúsum að Bifröst um jól og
áramót, eins og fram kemur annars
staðar í þessu blaði. Haldin var
fjölmenn jólatrésskemmtun fyrir
börn félagsmanna og nokkru síðar
velheppnað spilakvöld að Hótel
Esju. Helgina 10.—12. mars var
svo haldið vetrarmót á Akureyri í
félagsheimilinu Félagsborg og mætti
þar nærri hundrað manns, m. a.
hópur úr Reykjavík og nokkrir fé-
lagar tóku sér flugvél á Egilsstöð-
um og mættu á mótið. Pá er árs-
hátíð fyrirhuguð 21. apríl n. k. að
Hótel Sögu.
Höfuðviðfangsefni NSS er útgáfa
árbókar NSS, sem Guðmundur R.
Jóhannsson ritstýrir. Er fjórða
bindið væntanlegt nú í vor. Á
þessu ári eru tuttugu ár liðin frá
stofnun NSS.
Handmenntir vinsælar
í Hamragörðum.
í félagsheimilinu Hamragörðum
hafa í vetur verið haldin námskeið
í hnýtingum og myndvefnaði, sem
notið hafa mikilla vinsælda og
færri komist að en viljað. Petta er
26 HLYNUR