Hlynur - 15.02.1978, Qupperneq 27
Frá jólatrésskemmtun Nemendasam-
bands Samvinnuskólans á sl. jólum í
Fóstbræðraheimilinu.
nýjung í félagsstarfinu, en áður
hefur mest verið iögð áhersla á
námskeið í tungumálum og félags-
málum. Er ljóst að handmenntir af
ýmsu tagi njóta nú sívaxandi vin-
sælda. Hins vegar bólar ekki mikið
á jafnrétti kynjanna í þessu sam-
bandi, því enginn karlmaður hefur
verið meðal hinna 50—60 þátttak-
enda, sem verið hafa á þessum nám-
skeiðum.
Sísarar unnu Álara
í bridge.
Nýlega fór fram sveitakeppni í
bridge milli bridgemanna frá Sf.
Sambandsins og starfsmanna hjá
ísal. Að þessu sinni unnu þeir
Sambandsmenn með 59 stigum
gegn 41, en spilað var á fimm
borðum. Petta er bikarkeppni og
hafði ísal unnið keppnina næstu
tvö skipti á undan, en með þessu
tókst að forða því, að þeir ynnu
bikarinn til eignar.
Hver vill skipta á orlofs-
húsum eða íbúðum, við
danska samvinnustarfs-
menn?
Borist hafa óskir frá KPA í
Danmörku, þar sem óskað er eftir
skiptum á orlofshúsum eða íbúðum
við ísl. samvinnustarfsmenn á tíma-
bilinu 26. júní til 5. júlí, eða þegar
ferð LÍS og Samvinnuferða verður
til Malmö. Fimm manna fjölskylda
í Holstebro á Jótlandi býður til
skiptanna hús nærri vesturströnd
Tótlands, og önnur fjölskylda frá
Albertslund, nærri Kaupmanna-
höfn, óskar eftir íbúð eða sumar-
bústað fyrir íbúð eða sumarhús
fjölskyldunnar í Danmörku. Peir,
sem áhuga hafa á slíkum skiptum,
eru vinsamlegast beðnir að hafa
sem allra fyrst samband við skrif-
stofu LÍS í Hamragörðum.
Áskriftargjald Hlyns
hækkar í 1200 kr. 1978.
Otgáfustjórn Hlyns hefur ákveð-
ið að áskriftargjaldið 1978 fyrir
Hlyn verði kr. 1.200,00, en það
var 850,00 kr. á sl. ári. Hér ræður
verðbólgan ferðinni eins og víðar.
Otgefin tölublöð verða væntanlega
6 á þessu ári, eins og undanfarin
ár og hvert blað 32 síður. Verð
hvers blaðs verður því 200 krónur
og getur það varla kallast annað en
gjafverð, þrátt fyrir allt.
Ratleikjabrautir á
Hreðavatnssvæðinu.
Ratleikur eða orientering á nor-
rænum málum, er nafn á íþrótta-
grein, sem fáir kannast við hér á
landi, en er annars mjög vinsæl
um öll Norðurlönd. Iþróttin er
fólgin í því að finna ákveðin merki
samkvæmt korti og áttavita, og
sá vinnur, sem fer ákveðna leið
og finnur öil merkin á skemmstum
tíma. Er þetta einkar vinsæll fjöl-
skylduleikur eða íþrótt.
Nú hefur verið ákveðið að merkja
svokallaðar ratleikjabrautir á
Hreðavatnssvæðinu og til að það
verði hægt, verður gert nákvæmt
kort af þessu svæði og munu
Norðmenn væntanlega koma hing-
að í vor og annast kortlagninguna.
Hefur verið komið á samstarfi
milli Samvinnuskólans, orlofshús-
anna að Bifröst, Iþróttasambands
fslands og Skógræktar ríkisins um
þetta mál. Petta mun svo enn auka
á gildi Hreðavatnssvæðisins sem
afbragðs útivistarlands.
Guðmundur Ingimundar-
son kjörinn formaður
Sf. KRON.
9. mars sl. var haldinn aðalfund-
ur Sf. KRON í Hamragörðum.
Guðmundur Ingimundarson var
kjörinn formaður félagsins í stað
Daníels Björnssonar, sem lét af
störfum hjá KRON á sl. ári. önnur
í stjórn voru kjörin þau, Sigrún
Guðmundsdóttir, Bára Valtýsdóttir,
Steingrímur Ingólfsson og Erla
Kristinsdóttir og til vara, Reynir
Sverrisson og Unnur Björnsdóttir.
Pá var Unnur kjörin fulltrúi félags-
ins í hússtjórn Hamragarða fyrir
næsta starfsár hússins. Pá var kjör-
ið í svokallaða skógræktarnefnd og
kosnir þeir Steingrímur Ingólfsson
og Höskuldur Egilsson, en starfs-
mannafélagið á skógarreit í Heið-
mörk og þangað er farið árlega og
plantað trjám.
HLYNUR 27