Heimsmynd - 01.09.1990, Page 97
Yohanna. . .
framhald af bls. 42
og Alexis (Joan Collins) í Dynasty, hinn
ómissandi óþokki eða flagð sem gerir
hverja sápuóperu spennandi. Hún segist
fá afar litla tilsögn og viðbrögð frá leik-
stjóranum. „Mér var aðeins sagt að í
hlutverki Stevie ætti ég að vera mein-
hæðin, grunsamleg og kynþokkafull. í
fyrstu vissi ég ekki hvernig ég átti að
túlka þetta. En svo fullvissaði leikstjór-
inn mig um það að ég fengi svo sannar-
lega orð í eyra ef ég væri þeim ekki að
skapi. Það er einnig athyglisvert að fá
viðbrögð frá mótleikurum og öðru starfs-
fólki. Ameríkanar eru svo ósparir á hrós
og koma oft til manns að lokinni upp-
töku og segja: Þú stóðst þig vel. Þá hef
ég á tilfinningunni að þeir meini ekkert
sérstakt með því. Hins vegar hefur kom-
ið fyrir að einhver segir: Þú varst alveg
frábær og þá er það sagt í allt annarri
tóntegund. Þó geri ég mér alveg grein
fyrir því að ég á alveg eftir að fá tækifæri
til að tjá tilfinningalega dýpt í þessu hlut-
verki.“
I kringum svona starf skapast oft mikil
spenna þar sem atvinnuöryggi leikara er
ekki mikið. Margir hafa leikið í þessari
sömu sápuóperu árum saman. Tilhugsun
sem Hönnu finnst ekki spennandi. „Ég
lít á þetta sem stökkpall yfir í eitthvað
annað. A sama tíma er ég afskaplega
þakklát að fá þetta tækifæri til að læra
um leið og ég nýt þessa starfs út í ystu
æsar. Hver þáttur sýgur úr manni allan
kraft. En ég veit að ég get leikið og þótt
inntak þessara þátta sé ekki merkilegt er
þetta samt ákveðið listform. Ég get leik-
ið en ég legg líka hart að mér að vinna
vel. Ég man hvar ég á að standa, hvað ég
á að gera og veit hvað ég á að segja.
Leikstjórinn getur farið með mig að vild.
Það þýðir ekkert að vera með einhverja
prímadonnustæla. Þarna leggjast allir á
eitt, leikarar og tæknilið, og ég sýni öll-
um virðingu. Hins vegar hef ég engan
áhuga á þvf að umgangast þessa leikara
utan vinnunnar. Mér finnst best að vera
út af fyrir mig.“
Það kemur ekki á óvart því ósjálfrátt
læðist að mér sá grunur að samkeppni
milli leikara móti andrúmsloftið. Stevie
og Ava keppa um hylli Paul en Ava
sendir Hönnu augngotur utan sviðsins.
Og rauðhærð leikkona á fertugsaldri
brosir stirðlega til hennar. Sjálf segir
Hanna að það sé ekki laust við að þær
séu svolítið á varðbergi eftir því sem
hlutverk Stevie stækkar í þáttunum. „I
fyrstu hafði Stevie ekki einu sinni eftir-
nafn. Síðan kom nafnið Lindström og
hún leggur meira til málanna nú en hún
gerði í upphafi.“
I einu atriði er Stevie í senu á móti
miðaldra, dökkhærðum og dularfullum
karlmanni. Svipurinn á andliti hennar er
tvíræður og augun skjóta gneistum þegar
hún snýr við honum baki. Ég spyr hana
um þennan leikara. „Hann var alltaf að
tala við mig þegar ég var að byrja í þátt-
unum. Ég hafði á tilfinningunni að fyrir
honum væri ég bara hávaxin, langt að
komin ljóska. Þegar hann sá að ég hafði
mikinn áhuga á hlutverki mínu en minni
áhuga á honum sem persónu breyttist
framkoman. Sá sem leikur Paul, aðal-
mótleikari minn, er hins vegar mjög fag-
mannlegur og það gladdi mig um daginn
þegar hann sagði við mig að honum þætti
fínt að vinna með mér. En sumar senur
sem ég hef leikið á móti honum hafa ver-
ið erfiðar. Illugi, maðurinn minn, horfði
þrisvar á upptöku þar sem við Paul vor-
um að kyssast,“ segir hún og hlær. „í
einu atriðinu átti ég að vera í baði og
Paul að koma inn í herbergið. Þá átti ég
að standa upp og tæla hann til mín. Ég
þurfti ekki að vera nakin heldur var
límdur á mig húðlitur brjóstahaldari og
eins buxur. Mér fannst þetta pínlegt og
kveið mjög fyrir því að þurfa að standa
upp úr baðkerinu holdvot og hálfnakin.
En ég mannaði mig upp í það og þar sem
ég stóð þarna með tælandi augnaráð
heyrðist dropahljóð því það lak vatn úr
buxunum, eins og ég væri að pissa í bað-
ið. I smástund fraus ég en svo fóru allir
að skellihlæja. Mér var klappað á kollinn
og sagt að svona senur kæmust upp í
vana.“
Hallgrímur Thorsteinsson blaðamaður
sem er við framhaldsnám í New York
hafði orð á því hve samkeppnisandinn í
stórborginni ætti vel við Jóhönnu. „Mér
finnst það svolítið sérstakt viðhorf hjá
svona ungri konu. Maður hefði frekar
búist við að henni stæði stuggur af lög-
málum frumskógarins."
Ásetningur Hönnu er að ná langt í
leiklistinni og til þess er hún tilbúin að
leggja hart að sér. Hún bragðar vart
áfengi, reykir ekki og vaknar klukkan
sex á morgnana. Hún og Illugi fara í
morgungöngu um stórborgina og ganga
rösklega til að hleypa í sig krafti fyrir
nýjan dag. Þótt hæpið sé að tala um að
anda að sér fersku lofti inni á miðri Man-
hattan.
„Ég var alin upp á heimili þar sem
mikil áhersla var lögð á hollt mataræði
og heilbrigt líferni. Auðvitað var maður
ungur og í andstöðu við margar hug-
myndir foreldra sinna en þessi áhersla á
heilsurækt fylgir mér út í lífið. Þá var
mér ungri bent á mikilvægi þess að ég
sætti mig ekkert við aðrar kröfur en karl-
menn. Mamma er kvenskörungur og
þótt ég sé ekki alltaf sammála henni þá
er hún alveg dásamlegt energíbúnt. Hún
ól mig upp í mjög sterkri sjálfsvitund og
báðir foreldrar mínir lögðu áherslu á að
maður hefði trú á sjálfum sér. Ég hef
aldrei staðið í þeirri meiningu að ég væri
falleg enda var ég alltaf þybbin og þarf
enn að losa mig við nokkur kíló. En ég
er ekki upptekin af útliti mínu og fyrir
vikið er ég heilsteyptari.“
En hún gerir sér líka grein fyrir því að
í Bandaríkjunum er erfitt fyrir unga leik-
konu að ná árangri ef hún er ekki í topp-
formi. „Það er til aragrúi af fögrum kon-
um en þær ná ekki allar langt í leiklist.
Ég held að ég hafi eitthvað sérstakt til að
bera sem geri það að verkum að ég fæ
hlutverk en auðvitað stefni ég líka að því
að vera eins glæsileg og ég get orðið.
Síðasta veturinn minn í skólanum í Bost-
on lagði ég hart að mér í líkamsrækt og
undirbjó mig í þeim tilgangi að fara á
markaðinn. Skólasystkinum mínum
fannst sumum að ég talaði um mig eins
og markaðsvöru. Þau líktu þessu við að
selja sig. Maður verður að lifa fyrir list-
ina, sögðu sum, en það er nú erfitt ef
maður hefur ekki vinnu. Það var eins og
þau byggjust við því að leikstjórarnir
kæmu í röðum og byðu þeim hlutverk.
Ég æfði mig og æfði. Þá lagði ég hart að
mér að komast í gott form. í fimm til sex
vikur vó ég allt sem ég lét ofan í mig. Ég
hef stundað eróbikk af krafti í rúmt ár.
Ég hef unnið markvisst að því takmarki
að fá vinnu að loknu námi. En auðvitað
var ég líka mjög heppin.“
Hún litaði hárið á sér ljóst. „Ég var
brúnhærð og fannst ég ekki nógu afger-
andi. Svo breytti ég líka nafninu mínu og
það var auðvitað stærri ákvörðun. Mér
fannst að framleiðendur hlytu að hika
frammi fyrir eins útlendu nafni og Jó-
hanna Jónasdóttir sem er mjög erfitt í
framburði. Þá er Jóhanna borið fram
Djóanna en með því að nota Yohanna er
framburðurinn næstum eins og sá ís-
lenski. Yohanna Yonas finnst mér bara
nokkuð gott. Fólk tekur eftir þessu nafni
því það er öðruvísi. Það var sársaukafullt
að breyta nafninu en jafnframt varð það
hluti af breyttri sjálfsmynd. Hanna, litla
bollan úr Hafnarfirði, er history,“ segir
hún og pírir augun í stóru brosi.
Yohanna Yonas var sú eina af nem-
endunum sem útskrifuðust frá Bostonhá-
skóla í vor sem fékk strax hlutverk. Næst
fékk hún sér umboðsmann. „Það getur
tekið töluverðan tíma að finna góðan
umboðsmann, einhvern sem maður
treystir og getur átt gott samstarf við.
Umboðsmennirnir fá reglulega upplýs-
ingar í hendurnar um stöðuna á mark-
aðinum og hvað er í boði.“
Hún hefur ekki enn komist á fastan
samning hjá ABC en greiðir félagsgjöld
til félags leikara sem hún er skráð í og
sjónvarpsstöðin ábyrgist atvinnuleyfi fyr-
ir hana þar til hún kemst á samning. „Ef
ég fengi tækifæri til að leika í þessari
sápuóperu næstu tvö árin yrði ég mjög
ánægð. Það er þegar áfangi að geta sýnt
fram á það við framleiðendur að hafa
leikið reglulega í sjónvarpsþætti.“
Hún fær vel greitt fyrir hvern þátt sem
hún gerir en þeir eru á bilinu þrír til fjór-
ir í viku. Komist hún á samning hefur
það í för með sér aukatekjur og hún gæti
gert sér vonir um mánaðarlaun íslensks
stórforstjóra.
Dagana sem upptökur fara fram mætir
hún snemma á morgnana og kemur heim
síðdegis. Hún horfir margsinnis á hvern
þátt og pælir í hverri hreyfingu og öllum
svipbrigðum. Hún segir augun vera mik-
ilvægasta tæki leikarans í túlkun á skján-
um. „Til að byrja með hallaði ég undir
flatt og pírði augun þegar ég brosti. Það
gengur ekki. Nú æfi ég mig að brosa
HEIMSMYND 97