Heimsmynd - 01.10.1991, Blaðsíða 16

Heimsmynd - 01.10.1991, Blaðsíða 16
UPPLJÓSTRANIR Prince... Kynorka... Brjóstastækkanir... T slenskar konur eru engir eftirbátar erlendra kvenna þegar brjósta- stækkunaraðgerðir eru annars vegar. STÆRRI BRJÓST Brjóstastækkanir eru að verða jafn sjálfsagðar fegrun- araðgerðir og tannréttingar, aðeins örlítið dýrari. Pær eru ófáar íslensku konurnar sem þegar hafa látið til skarar skríða og enn fleiri sem velta þessum möguleika fyrir sér. Enn sem komið er eru það þó aðallega yngri konurnar sem vilja hressa upp á útlitið með þessum hætti. Sem dæmi um hversu sjálfsagðar slíkar aðgerðir þykja hér á landi má geta þess að heyrst hefur að ungar konur víli ekki fyrir sér að ræða þessi mál við karlpeninginn á danshúsum borgarinnar til að fá þeirra álit. Það er í tísku að hafa stór- an barm. Föt eiga að liggja þétt að líkamanum og háls- málin eins flegin og kostur er (svo ekki sé þeirri tískunýj- ung gleymt að klæðast brjóstahaldara einum sam- an). Það dylst engum að fatnaður sem þessi fer ítur- vöxnum konum mun betur en hinum og því er ekki að furða þótt þær sem ekki hafa þrýstinn barm frá náttúrunn- ar hendi flykkist til lækna til að fá brjóst sín stækkuð. ís- lenskir læknar hafa ekki látið sitt eftir liggja frekar en starfsbræður þeirra úti í heimi þannig að nú er hægt að fá brjóstastækkun án mik- illar fyrirhafnar. Lands- byggðin hefur ekki farið var- hluta af þessari þróun því nú eru slíkar aðgerðir einnig framkvæmdar á Akureyri og Húsavík. Eini vankanturinn er kostnaðarhliðin því með nýrri reglugerð sem tók gildi fyrsta mars síðastliðinn hefur Tryggingastofnun hætt að greiða fyrir aðgerðir af þessu tagi. Vilji kona kaupa sér stækkun brjósta verður hún að greiða fjörutíu þúsund krónur fyrir silikonið, efnið sem notað er til að auka við það sem fyrir er, og síðan kostnaðinn við sjálfa skurð- aðgerðina. Sjái hún eftir öllu saman að nokkrum árum liðnum eða ef tískan breytist er minnsta málið að láta taka silikonpúðana úr brjóstunum þannig að þau taki á sig sína upprunalegu mynd á ný. HVERS VEGNA ELSKA ALLAR KONUR PRINCE? Hann er ekki nema rúmur einn og hálfur metri á hæð, með óhrjálegan skeggvöxt, þeysist sveittur um sviðið á tíu sentimetra háum skóm, þröngum buxum, skreyttur pallí- ettum og pífum. Það verður tæpast sagt um Prince að hann sé holdgervingur prinsins á hvíta hestinum sem margar konur láta dreyma um. Þó er eitthvað í fari sem lætur fáar konur ósnortnar. Eft- ir miklar vangaveltur hafa erlendir „ímyndasmiðir“ komist að þeirri niðurstöðu að það sem kveikir neista í hjörtum kvenna sé sú mikla kynorka sem frá hon- um stafar. Allar hreyf- ingar hans að ógleymdu augnaráð- inu gefur til kynna um hvað hugsanir hans snúast, kyn- líf, kynlíf og aftur kynlíf. Prins er óneit- anlega mjög glysgjarn, eig- inleiki sem aldrei hefur þótt merki um karlmennsku, en þegar Prins er annars vegar virðist það hrífa. Hann er umvafinn kvenfólki. Skemmst er að minnast þess þegar leikkon- an og kyntákn- ið Kim Basinger elti hann á rönd- um og gaf yfirlýsingar í blöðum jsess efnis að loks hefði hún fundið jafn- oka sinn í rúminu. Hins vegar vara þessir sömu sérfræðingar við því að aðrir menn fari í smiðju hjá Prince til að kynda undir kvenhylli sinni. Þótt konur hrífist af Prince og kynlegheitum hans er það „Malborómaðurinn“ sem enn hefur vinninginn. Hálfur maður, hálfur geithafur. Prince kveikir eld í hjarta kvenna þrátt fyrir öll kynlegheitin. 16 HEIMSMYND
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108

x

Heimsmynd

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimsmynd
https://timarit.is/publication/1408

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.