Heimsmynd - 01.10.1991, Side 39

Heimsmynd - 01.10.1991, Side 39
h Hann er án efa einn yngsti for- stjóri sinnar tegundar í banda- rfsku viðskiptalífi - og hugsan- lega einn sá umtalaðasti um þessar mundir. Klukkan er að verða tíu að morgni á miðri Manhatt- an. Fyrir utan Bergdorf Goodman á horni 58. götu og Fifth Avenue standa ríkulega klæddar konur í hælbandaskóm með Chanel töskur og sólþurrkaða húð. Pær bíða eftir því að ein fínasta stórverslun heims opni gáttir sínar. Hitinn er þrúgandi og Plaza hótelið sem Ivana Trump rekur nú stendur eins og tíguleg drottning með turna sína sem teygja sig til himins. Sólin brennur, rakinn límir fötin við mann og lyktin, sem er sambland af þvagi og mengun, mat, fnyk og ilmi - er táknræn fyrir New York. Borgin víbrar. Andrúmsloftið er þrungið spennu, losta, græðgi, örvæntingu, eymd og munaði - öllum mögulegum þversögnum hins kapítalíska samfélags í lok 20. aldarinnar. A horninu á 58. götu er pylsusali. Ég bendi á svarta gler- byggingu sem reigir sig upp í loftið við hliðina á Bergdorf og spyr þennan mann hvort Sony sé þarna til húsa. Hann veit ekkert um það. Ég held á handriti Olafs Jóhanns undir hend- inni - af nýju bókinni hans: Fyrirgefning syndanna og rölti milli kaupsýslumanna í dökkum jakkafötum - sem ganga svo hratt að silkibindin þeirra sveigjast út á hlið - þeir eru inn- skeifir og klunnalegir - fötin eru amerísk þótt fyrirmyndin sé bresk - enginn tæki þá fyrir Evrópubúa. Ég sest á bekk í Central Park og veit ekki að þarna rétt hjá þennan sama morgun var rúmlega þrítugum lögfræðingi nauðgað af svört- um nefbrotnum beljaka þegar hún var úti að hlaupa í morg- unsárið. Ég er hálfnuð með bókina. Ég las fyrri bækurnar ekki af sömu athygli. Þessi heldur mér fanginni. Bókin og tilhugsunin um að loksins sé ég að fara að hitta þennan mann, þennan ís- lenska gulldreng, þetta sjení - sem þjóðin hefur fylgst með úr fjarlægð undanfarin ár. Ég hafði séð hann í veislu fyrir nokkr- um árum. Þá var hann starfandi fyrir Sony í Kaliforníu, bókin hans, Markaðstorg guðanna, var nýkomin út á Islandi og hann stóð út við vegg, þögull, fölleitur og prúðmannlegur. Mér fannst þá eins og það væri ekki mikið líf í honum. Svo horfði ég á hann eins og hálf þjóðin á skjánum í þætti hjá Hemma Gunn í fyrravetur - svo suave og siðfágaðan, svo fjarri íslensk- um veruleika, þar sem hann sat í bókstaflegum skilningi á toppnum hjá Sony. Hemmi hélt ekki vatni né hálf þjóðin og daginn eftir hitti ég lífsreyndan markaðsmann sem hafði öðl- ast nýja heimsmynd eftir þennan þátt. „Hvað erum við að út- tala okkur um nokkurn skapaðan hlut hér á hjara veraldar eigandi svona dreng í útlöndum,“ sagði hann eins og hann hefði uppgötvað nýja formúlu. Olafur Jóhann sem nú er 29 ára þurfti ekki að fara út fyrir landsteinana til að sanna sig. Hann er einn örfárra sem strax varð spámaður í eigin landi. Yfirburðir hans voru svo að hann var ekki einu sinni öfundaður. Strax í menntaskóla skaraði hann fram úr og ekki aðeins fyrir það að vera dúx. Honum virtust þá þegar allir vegir færir. Hæfileikar hans í raunvísind- um voru augljósir, hann var uppáhald íslenskukennara, hann naut vinsælda skólafélaga - hann talaði um hugtakið list við nemendur í yngri bekkjum þegar hann bauð sig fram sem for- mann listafélagsins - og þeir hlustuðu. Hann átti virðingu allra og stelpunum fannst þann sætur. Hann varð stúdent frá raunvísindadeild og dúx Menntaskól- ans í Reykjavík vorið 1982. Þá þegar var ljóst að hann hafði afburðagáfu í raunvísindum enda fékk hann styrk til að fara út og nema við Brandeis í Boston og þaðan lauk hann meistara- gráðu í eðlisfræði 1984. En fleira lá vel fyrir honum. íslensku- kennarinn hans í MR sagði yfir heilum bekk: Þessi maður kann að skrifa. Og Guðni rektor sagði að hér væri afburða- nemandi á ferð, maður gæddur yfirburðagreind. Þegar ég tala við Olaf Ragnarsson útgefanda hans áður en ég fer út er hið sama upp á teningnum. Ólafur talar eins og hann hafi orðið fyrir vitrun. „Nei,“ segir hann og setur hendur undir hnakka, hallar sér aftur í stólnum, „ég hef mikið velt því fyrir mér hváða galla nafni minn hefur en ég kem ekki HEIMSMYND 39
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108

x

Heimsmynd

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimsmynd
https://timarit.is/publication/1408

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.