Heimsmynd - 01.10.1991, Blaðsíða 60
Bobby Kennedy var álitinn mesti hug-
sjónamaðurinn. Hann var stoð og stytta
fjölskyldunnar.
©
Bobby liggur í götunni eftir að byssukúla
hæfðl hann í hnakkann. Daglnn áður hafði
hann unnið sigur í forkosningum Demó-
krataflokksins í Kaliforníufylki.
©
Hneykslið við Chappaquiddick olli miklu
fjaðrafokl og gerðu framavonlr Teddys að
engu.
©
Teddy Kennedy, elni eftirlifandi bróöirinn,
ásamt móður sinni Rose Kennedy. Sagan
segir að hann hafi hlaupið berrassaður
um tún á Palm Beach.
því sem Kennedyunum líðst?
Munu menn aðeins líta á nýtt
hneyksli sem enn eitt Kenn-
edyklúðrið eða verður þetta
dropinn sem fyllir mælinn?
Menn hafa velt því fyrir sér
hvort málum sé svo komið að
fjölskyldumeðlimirnir kjósi nú
sjálfir að vera lausir undan því
oki sem Kennedygoðsögnin
er.
Ný kynslóð Kennedymanna
er af fáum talin líkleg til stór-
ræða. Enginn hefur þótt skara
fram úr líkt og feðurnir
gerðu. Fjórir synir Roberts
Kennedy hafa átt við eitur-
lyfjavandamál að stríða. Einn
þeirra, David, fannst látinn
af völdum of stórs skammts
á hótelherbergi árið 1984.
Morðið á Bobby 1968 er talið eiga mikinn þátt í því agaleysi
sem hefur einkennt þessa syni hans líkt og svo marga aðra
af þriðja ættlið Kennedyfjölskyldunnar. Ekki hjálpaði
heldur að Ethel ekkja Roberts og móðir barna þeirra ell-
efu gafst nánast upp fyrir þeim aðstæðum sem örlögin
höfðu skapað henni eftir fráfall bónda hennar. Fjöl-
miðlar gerðu sér mat úr unglingsafglöpum piltanna, eit-
urlyfjaneyslu og samskiptum við lögreglu. John Kenn-
edy yngri, sonur forsetans, hefur verið þekktur fyrir að
stunda villt næturlíf og skemmst er að minnast þess
þegar sögur og bollaleggingar um samband hans og
söngkonunnar Madonnu fylltu slúðurdálka blaðanna. Hann
hefur nú loks hlotið lögmannsréttindi í Bandaríkjunum en
hann stóðst prófið í þriðju atrennu. Þegar ljóst var að hann
hefði náð því var tíðindunum slegið upp á forsíðum banda-
rískra dagblaða. Hins vegar hafði systir hans, Karólína Kenn-
edy Schlossberg, tekið sama próf og hlotið réttindi til að flytja
mál fyrir bandarískum dómstólum vikunni áður, í fyrstu at-
rennu. Afrek systurinnar þótti hins vegar lítt fréttnæmt og var
aðeins getið í nokkrum línum í hliðardálki. Þetta lýsir ef til vill
betur en nokkuð annað stöðu kvenna innan þessarar frægu
ættar. Konurnar eru fyrst og fremst álitnar eiginkonur, mæður
og systur, einhvers konar haldreipi í tilverunni. „Það er mun
minni þrýstingur á konur innan fjölskyldunnar um að halda
uppi merkjum Kennedyanna,“ segir Kathleen Kennedy
Townsend, dóttir Bobbys og Ethel. Án efa felst mikill sann-
leikur í þessum orðum hennar en það er samt hugsanlegt að
það verði eimitt þær sem á endanum koma til með að halda
uppi heiðri fjölskyldunnar. „Allir, hver einasti okkar, vorum
við aldir upp til að verða forsetar," sagði Christopher
Lawford, sonur Patriciu og Peters Lawford. Kennedybræður
sköruðu fram úr. Þeir höfðu allt, völd, auð, glæsileika og síð-
ast en ekki síst hver annan. Að taka við slíkri arfleifð getur
verið erfitt og það hefur sýnt sig að næsta kynslóð Kennedyk-
arlleggsins rís engan veginn undir væntingum fjölskyldunnar.
Kennedy er írskt nafn sem kom til Bandaríkjanna á síðustu
öld með afa Josephs P. Kennedy eldri, Patrick Kennedy, þeg-
ar hann ákvað að yfirgefa litla írska þorpið þar sem hann var
uppalinn og reyna að höndla bandaríska drauminn. Upphaf
sögu Kennedy ættarveldisins má hins vegar rekja til ársins
1914 þegar hinn framgjarni Joseph P. Kennedy gekk að eiga
Rose Fitzgerald, hina ungu og fögru dóttur borgarstjórans í
Boston. Föður brúðarinriar var ráðahagurinn þvert um geð
því sonur kráareiganda, þótt stöndugur væri, gat tæplega talist
nægilega gott mannsefni fyrir yfirstéttarstúlku. En Rose heill-
aðist af greind og persónutöfrum Joes og hann var staðráðinn
4
4