Heimsmynd - 01.10.1991, Page 19

Heimsmynd - 01.10.1991, Page 19
p| Guðbergur Bergsson rithöfundur hefði ekki fæðst í Bergi við Grindavík, 16 október 1932, hvar og hvenær hefði hann þá viljað fæðast? Úr því ég er eini maðurinn sem hefur fæðst í Bergi að ísólfsskála við Grindavík vildi ég fæð- wm m ast núna í rústum hússins til nýs lífs. Hvers vegna? Vegna þess að maður getur aðeins fæðst þar sem hann fæddist. Annars hefur fæðing mín ekki verið ein og fullkomin: ég hef fæðst oft og fæðist enn. Fæðingardágurinn er aðeins miðaður við fæðingu líkamans. í mínu tilviki fæddist ég örast milli hálf fertugs og fimmtugs. Yfirleitt fæðist eitthvað í mér dag- lega. Hvaða tímabil í sögunni heillar þig mest? Mig heillar mest það tímabil í íslandssögunni þegar fyrst breski herinn og síðan sá bandaríski komu hingað til lands eftir 1940. Ég var þá að fæðast til vitneskju um mig sjálfan og umheiminn. Önnur merk tímabil sög- unnar eru mér ópersónuleg og aðeins tengd þekkingu. Hvaða persóna í sögunni hefðir þú helst kosið að vera? Afi minn sem ég sá aldrei en ég hef ímyndað mér gangandi frá Stykkishólmi að Hellnafelli í Grundarfirði með strigapoka á bakinu að kvöldlagi um haust þegar enginn munur er á sálinni, holdinu og jörðinni. Hverjum vildir þú helst líkjast í útliti? Fossi sem ég sá einu sinni en veit ekki hvað heitir. En innræti? Fossinum sem fellur endalaust í sama glúfrið á tilgangs en heldur samt áfram að renna, af því það er eðli hans. Hvaða kvenmaður í sögunni heillar þig mest? Gunnhildur kóngamóðir. Hún var til í margs konar útsaumi, alltaf að vagga barni sem sást ekki undir teppinu eða var ekki til. Hvernig húsgögn viltu helst hafa í kringum þig? Þótt ég viti að hin sönnu húsgögn eru í sálinni, held ég að ég svari þannig: Einfaldan stól, eitt borð, breitt og hart rúm. Og auðvitað gömlu vekjaraklukkuna sem var til heima og ég fékk oft að sofa hjá í laun fyrir að vera gott og hlýðið barn. Hvernig slappar þú af? Með sérstakri andlegri aðferð sem erfitt er að lýsa. Hún felst í því að geta talað við mína eigin þögn inni í sínum eðliskjarna. Hver er besta bókin sem þú hefur lesið nýlega? Sens et destin de l’art: Merking og örlög listarinnar eftir René Huyghe. Hver eru eftirminnilegustu spakmæli sem þú hefur lesið eða við þig hafa verið sögð? Mér eru spakmæli ekki hugstæð, mér finnst þau vera fávís og tilgerðarleg; ég ann einföldu máli sem gleymist fljótt en geymist samt. Hvert er besta leikrit sem þú hefur séð? , Hamlet. Vegna þess að það er auðskilið en um leið óskiljanlegt. I Hver er eftirminnilegasta kvikmynd sem þú hefur séð? ' Los olvidados: Hinir gleymdu eftir Bunuel. Gleymska eða glötun í lífi „mikilmennis“ er fólki minnisstæðar en ,.minnismerkið“ um hann; en „minnismerki", það er listaverk um glötun „lítilmennis“ er manni minnis- stæðar en hann. Hvaða matur finnst þér bestur? Stirtla af ýsu, flökuð og „steikt á minn sérstaka máta“. Hverju sérðu mest eftir? Ég sé ekki eftir neinu. Hvaða hlut vildir þú helst eignast? Þann sem ég get gert ósýnilegan hvenær sem ég vil; til dæmis allan heiminn. Þó ekki ónýtu flugvélina hans Elvis Prestley sem mig minnir að ég hafi séð í Memphis. Hverjir eru helstu kostir þínir? Hið algjöra umburðarlyndi. En veikleikar? Kostir manns eru alltaf helsti veikleiki hans; vegna þess að aðrir vilja vera endalaust í „kosti“ hjá kostamanni uns þeir éta hann miskunnarlaust út á gadd ókostanna. Hver er ánægjulegasta stundin í lífi þínu? Þegar ég grét yfir blómi sem óx út úr dimmri hraungjótu og stöngullinn var svo langur í mínum barnsaug- um að ég hélt að hann ætti rætur að rekja til óendanleikans sem var líka í mér. Hvað er það sem helst veldur þér áhyggjum? Að mig grípur „heildarsorg“ sem ég kalla svo. Hún sprettur af einhverju algerlega ókunnu í tilveru minni. Við hvað ertu hræddur? „Heildarsorgina". Því að ég er brot af margs konar sundurleysi. Hvað heldurðu að þú hafir verið í fyrra lífi? Ég hef ekki verið neitt í fyrra lífi nema óljósar erfðir kynslóðanna. Maður fæðist til einhvers en ekki frá einhverju, þótt hann sé erfðasafn, líkamlega séð, en í hugsun erfðabrjótur. Hverjar eru rómantískustu aðstæður sem þú getur hugsað þér? Það að geta alltaf borið uppruna sinn með sér og geta líka fundið uppruna annarra í þeim hljómi sem við köllum orð og í þeirri tilfinningu sem við köllum líkama. Þetta má gjarna vera uppi í rúmi í skammdeginu. Ef þú ættir eina ósk, hvers myndir þú óska þér? Einskis. Ég vil aldrei tæma möguleika. Ef ég ætti eina ósk og óskaði mér einhvers með henni væri óskin úr sögunni vegna uppfyllingar, nema ég óskaði mér þess að ég ætti eina ósk sem endurnýjast við uppfyllingunni væri óskin úr sögunni vegna uppfyllingar, nema ég óskaði mér þess að ég ætti eina ósk sem endurnýjast við uppfyllingu.D 0 K T Ó B E R 19 9 1 HEIMSMYND 19
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108

x

Heimsmynd

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimsmynd
https://timarit.is/publication/1408

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.