Heimsmynd - 01.10.1991, Page 64
hennar og glæsileika. Fylgst var með hverju fótmáli þeirra og
fjölmiðlar og almenningur virtust aldrei fá nóg af myndum og
frásögnum af ungu og fallegu forsetafjölskyldunni. Sú mynd
sem blasti við bandarísku þjóðinni var ímynd hinnar samhentu
kjarnafjölskyldu. John var þó ekki allur þar sem hann var séð-
ur. Líkt og faðir hans var John mikið upp á kvenhöndina og
lét fá tækifæri ónotuð til að halda fram hjá eiginkonu sinni.
Hann var mikið glæsimenni og konur féllu unnvörpum fyrir
honum. James Rousmaniere, skólabróðir Kennedys frá Harv-
ard, segir hann hafa haft gífurlegt vald yfir konum. „Ein kær-
asta dugði honum aldrei. Þær voru alltaf margar en í misjöfnu
uppáhaldi hjá honum.“ Svipað var uppi á teningnum eftir að
hann tók við embætti forseta. Þegar Jackie var á ferðalögum í
einhverjum erindagjörðum var John vanur að hóa í vini sína
og biðja þá um að halda smá hóf. Vinirnir, sem flestir voru
gamlir skólafélagar úr Harvard, vissu við hvað forsetinn átti
með smá hófi og var þess þá alltaf gætt að bjóða oddatölu,
annaðhvort fimm eða sjö manns, þannig að ekki væri hægt að
klekkja á Kennedy síðar meir. Sögur af kvennafari forsetans
eru óteljandi. Fjölmiðlar hafa á síðari árum verið iðnir við að
draga ýmislegt fram í dagsljósið sem sett hefur blett á ímynd
hans, aðallega sögur af kvennaflangsi og framhjáhaldi. Mörg
fræg nöfn eru á afrekaskrá forsetans eins og Jane Mansfield,
Angie Dickinson og Kim Novak. Hins vegar hlífðu fjölmiðlar
samtímans forsetanum við sögum af þessu tagi en kvensemin
fór ekki fram hjá þeim sem umgengust hann. Svo virðist sem
Jackie hafi umborið framhjáhald manns síns, enda alin upp á
heimili þar sem faðirinn, John Vernon Bouvier, hélt framhjá
konu sinni, móður Jackie, Janet Lee. Þau skildu þegar Jackie
var sjö ára. John hafði svipaða fyrirmynd að heiman, litið var
á konuna sem stöðutákn og nauðsynlegan þátt í frama stjórn-
málamanns. Jackie eyddi stöðugt minni tíma í forsetabústaðn-
um sem hún þó lagði metnað sinn í að innrétta á nýjan leik til
að koma í upprunalegt horf. Andúð forsetafrúarinnar beindist
aðallega að sambandi eiginmanns hennar við leikkonuna og
þokkagyðjuna Marilyn Monroe sem hann hitti reglulega á
Carlylehótelinu. Samband þeirra hófst árið 1959 þegar leik-
konan var viðstödd útnefningu Kennedys til forsetaframbjóð-
anda demókrata á landsfundi flokksins. Leikkonan var yfir sig
ástfangin af John og lét sig jafnvel dreyma um að taka við
hlutverki Jackie í Hvíta húsinu. Skömmu eftir að Monroe
söng Happy Birthday Mr. President í níðþröngum pallíettukjól
á 45 ára afmæli forsetans í Madison Square Garden, sleit John
sambandi þeirra. Sennilega var hann farinn að óttast að sam-
bandið kynni að verða honum fjötur um fót. Marilyn varð frá
sér af söknuði og hringdi linnulaust í forsetann og sendi hon-
um ástarbréf. Forsetinn sá sig knúinn til að senda bróður sinn,
Robert Kennedy sem þá var orðinn dómsmálaráðherra, til að
tala um fyrir Monroe. Sú sendiferð Bobby Kennedys ku hafa
endað með því að ástarsamband tókst með dómsmálaráð-
herranum og Marilyn Monroe. Þegar hér var komið sögu var
verulega tekið að halla undan fæti fyrir leikkonunni. Hún var
djúpt sokkin í áfengis- og lyfjaneyslu og virtist hvorki finna ást
né öryggi í einkalífinu. Brátt mun leikkonan einnig hafa verið
farin að íþyngja Bobby. Hann er sagður hafa reynt að slíta
sambandi þeirra helgina áður en Marilyn lést en hún á að hafa
fengið móðursýkiskast og hótað að segja blaðamönnum frá
sambandi þeirra.
Dauði leikkonunnar kom mönnum í opna skjöldu. Lögregl-
an var kvödd að heimili Marilyn Monroe í Los Angeles, tæp-
lega hálf fimm aðfaranótt sunnudagsins 4. ágúst 1962. Lík
leikkonunnar lá í rúminu, en við hlið þess sátu geðlæknir
hennar og heimilislæknirinn. Ráðskonan var að þrífa húsið og
þvottavélin gekk á fullu. Líkið hafði greinilega verið fært til
og engar skýringar fengust á því hvers vegna dregist hafði að
tilkynna lögreglu látið, en talið er að Monroe hafi þá verið lát-
in í allt að átta klukkustundir. Niðurstaða réttarkrufningar
segir að sjálfsmorð sé líkleg dánarorsök. Strax eftir dauða
hennar tóku að ganga sögusagnir um að margt væri á huldu
um raunverulega dánarorsök leikkonunnar. Hvíslað var um
tengsl hennar við forsetann og bróður hans dómsmálaráð-
herrann og margir töldu að maðkur væri í mysunni. Ráðskona
Monroe, Eunice Murrey, sem upphaflega neitaði því að
Bobby Kennedy hefði komið í hús Marilyn daginn sem hún dó
skýrði síðar frá því í sjónvarpsþætti að Bobby hefði komið á
heimili leikkonunnar 4. ágúst. Spurningunni um dauða Maril-
yn Monroe og tengslin við Kennedybræður hefur ekki verið
svarað en því er ekki að neita að dauði hennar varpar skugga /'
á minningu forsetans.
Önnur ástmey hans, Mary Pinchot Meyer, lést á sviplegan
hátt. Fullyrt hefur verið að með henni hafi forsetinn fiktað við
eiturlyf, ekki aðeins marijúana heldur einnig ofskynjunarlyfið
LSD. Mary var skotin til bana 12. október 1964, þá 43 ára að
aldri. Hún hélt dagbók þann tíma sem samband hennar við
forsetann stóð. Eftir að hún hafði verið myrt afhenti systir
hennar CIA dagbókina og var henni þegar í stað eytt.
En það eru ekki aðeins kvennamálin sem varpað hafa
skugga á minningu Johns F. Kennedy. íað hefur verið að
tengslum forsetans við undirheimastarfsemi mafíunnar, aðal-
lega fyrir kunningsskap hans við Frank Sinatra sem lengi hef-
ur verið orðaður við þessi glæpasamtök. Sinatra var einnig ná-
inn vinur leikarans Peters Lawford, mágs Kennedybræðra.
Ein Kennedystelpnanna, eins og ástkonur Kennedyanna voru
oft kallaðar, var Judith Campell Exner, en henni kynntist
John í gegnum Frank Sinatra. FBI fylgdist grannt með hverju
fótmáli Exner vegna tengsla hennar við mafíuna. Annar ást-
maður hennar á þessum tíma var mafíuforinginn Sam Gi-
ancana.
Örlagastundin, 22. nóvember 1963, rann upp. Ungu for-
setahjónin veifuðu til fjöldans þegar opin bifreið þeirra ók um
götur Dallasborgar í fylgd lögreglu og öryggisvarða. Þangað
var forsetinn kominn til að reyna að efla samstöðu innan
flokksins og treysta þannig stöðu hans í kosningunum sem
áttu að fara fram árið eftir. Fólk hafði flykkst að og stóð í j
löngum röðum til að sjá forsetahjónin þar sem bíll þeirra átti
að aka fram hjá. Morðinginn, sem síðar kom í ljós að var Lee
Harvey Oswald, skaut fyrsta skotinu úr rifflinum í bak forset-
ans en við það hné hann útaf í átt að konu sinni. Annað skotið
lenti í læri Connallys ríkisstjóra sem hafði snúið sér í átt að
forsetanum, en það þriðja kom í hnakka forsetans, rétt aftan
við annað eyrað, þar sem hann laut fram í kjöltu konu sinnar.
Blóðugt höfuð Johns féll í skaut Jackie sem hrópaði í örvænt-
ingu sinni; „Guð minn góður. Þeir hafa drepið manninn
minn!“ Læknar sögðu forsetann hafa látist samstundis.
Jackie kvaddi mann sinn á líkbörunum á Parkland sjúkra-
húsinu í Dallas aðeins örfáum mínútum eftir að hann lést.
Hún kyssti líkið, dró hring af fingri sér og lét hann á fingur
hans. Þetta var írskur siður: Saman í lífi og dauða. Eftir tíu
ára hjónaband var Jackie orðin ekkja með tvö börn, Karólínu
og John. Aðeins 93 mínútum eftir dauða forsetans sór nýr for-
seti, Lyndon B. Johnson, embættiseið. Við hlið hans stóð
ekkjan í blóðugri Chaneldragt.
Hápunktur valdaferils Kennedyættarinnar var liðinn, en
engu að síður áttu bræðurnir Bobby og Ted eftir að koma
mikið við sögu í bandarísku stjórnmálalífi. J.F. Kennedy hafði
verið vinsæll forseti, en eftir sviplegt fráfall hans varð minn-
ingin um forsetann að goðsögn sem mörgum var svo að segja
heilög. Bandaríska þjóðin syrgði með ekkjunni. Fjölmiðlar ,
fylgdust með hverju fótmáli hennar og barnanna. Jackie
reyndi hins vegar af öllum mætti að forðast blaðasnápana og
sviðsljósið.
Bobby var nánasti ráðgjafi Johns bróður síns og dómsmála-
ráðherra í ríkisstjórn hans. Hann var talinn minni kvennamað-
ur, þrátt fyrir meint samband hans og Marilyn Monroe og
„Me5 gen sem jpessi er öruggt að Kennedyveldið er Mið að vera.“