Heimsmynd - 01.10.1991, Page 84
32. Krem sem inni-
halda A-vítamín hafa
sömu verkan og Ret-
in-A bólukremið. Eftir að
jákvæð áhrif bólukremsins
Retin-A á hrukkur komu í
ljós hvolfdist yfir markaðinn
holskefla af A-vítamínríkum
andlitskremum. Hins vegar
er það staðreynd að aðeins
bólukremið virðist vinna á
hrukkum. 33. Snyrtivörur
geta haft áhrif á starf-
semi húðfruma. Nei, og
aftur nei. Ef svo væri yrði
að flokka þær til lyfja og
selja sem slík.
DÝR LYGI
34. Röntgengeislar og
ýmsar tegundir raf-
magnsplokkara fjar-
lægja varanlega óæski-
legan hárvöxt. Því miður,
slíkar aðferðir koma að engu
gagni. Hins vegar eyða
margar snyrtistofur varan-
lega hárum með sérstökum
rafmagnsnálum. 35. Ef fót-
leggirnir eru rakaðir
verða hárin grófari og
rótin þéttist. Þetta á ekki
við rök að styðjast. Hins
vegar verða hárin sem gróf-
ari í fyrstu vegna þess að
fremsti hlutinn var skorinn
af. 36. Nudd getur unn-
ið á fituvef og losað
óæskileg efni úr líkam-
anum. Trúðu ekki öllu sem
þú heyrir. 37. Nudd getur
bætt beinabyggingu
andlitsins. Konur hafa
eytt tíma og peningum í að
láta nudda andlit sitt í von
um að fá fallegri og hærri
kinnbein. Slíkt hefur aldrei
og mun aldrei skila árangri.
Fólk fæðist með tiltekna
beinabyggingu og heldur
henni til dauðadags. Vilji
maður breyta henni kostar
það uppskurð. 38. Raf-
knúnar vélar sem
hrista fitu af líkaman-
um. Þessi tæki voru lengi
mjög vinsæl. Fólk stóð í
þeim tímunum saman og lét
þær hrista holdið á lærum
rassi og maga. Vélin eyddi
orku en sá sem í vélinni stóð
hins vegar engri. Það sama á
við um tækin sem fest eru á
fitusvæði og gefa rafstraum.
Staðreyndin er að fita eyðist
ekki þótt hún sé hrist.
SVITAHOLUR
Stærð svitaholanna verður ekki
breytt. Kalt vatn breytir þar engu
um.
39. Sturtuhöfuð af sér-
stakri gerð geta nudd-
að burt fitu. Þessi tæki
hafa runnið út eins og heitar
lummur en gera ekkert gagn
að þessu leyti.
GRÆNT ER
BARA FALLEGUR
40. Snyrtivörur úr nátt-
úrulegum efnum taka
öðrum fram. Á hippatím-
anum jókst sala á snyrtivör-
um úr náttúrulegum efnum
þar sem talið var að þær
tækju öðrum fram. Læknar
og vísindamenn hafa hins
vegar staðfest að snyrtivörur
sem innihalda náttúruleg
efni eru ekki nauðsynlega
betri. Hið rétta er að snyrti-
vörur sem innihalda fáar
tegundir efna eru yfirleitt
betri. 41. Aloe vera er
undralyf. Þótt safinn úr al-
oe vera-plöntunni hafi reynst
ágætlega sem rakaáburður er
ekkert sem bendir til að efn-
ið hafi sérstaka eiginleika
þegar það er í kremformi.
42. Vítamín og sérstak-
ar hártöflur auka hár-
vöxt og gera hárið
þykkara. Gerð hársins og
eiginleikar þess erfast. Ekk-
ert sem maður borðar getur
breytt því.
SEM LYFTA
43. Andlitslyfting án
uppskurðar. Það er ekk-
ert sem getur lyft húð sem
tekin er að síga annað en
handaflið eða hnífur færs
skurðlæknis. Hins vegar hafa
margir reynt að selja konum
ýmis undralyf í krukku sem
eiga að lyfta húð þeirra
tímabundið. 44. Krem
sem gera brjóstin
stinn. Brjóst eru fituvefur
eins og komið hefur fram
hér að framan og taka að
hanga með árunum. Krem
sem þessi gera ekkert annað
en að gefa konum þá fölsku
tilfinningu að brjóstin séu
stinnari, en í raun gerist
ekki neitt og tilfinningin
hverfur eftir nokkrar
klukkustundir. Brjóstahald-
arar reynast hins vegar mjög
vel sem virkt aðhald að
brjóstum.
45. Hár vex hraðar ef
það er klippt oft. Hár-
sekkirnir, lifandi hluti hárs-
ins, hafa enga hugmynd um
að búið sé að kippa enda
hársins. Ef þetta gerði
minnsta gagn væru sköllóttir
menn alltaf að raka skallann
á sér í von um að koma
skilaboðum niður í hársekk-
ina. 46. Að þvo hárið
oftar en einu sinni í
viku er óæskilegt. Þessi
afstaða var skiljanleg meðan
fólk hafði ekki rennandi
heitt vatn. í dag er öllum
frjálst að þvo hár sitt eins
oft og þeir nenna. 47. Að
skola hárið upp úr
köldu gefur meiri
glans. Beittu skynseminni.
Dauður vefur eins og hárið
getur augljóslega ekki gert
greinarmun á heitu eða
köldu. Þú getur sparað þér
ómakið næst þegar þú þværð
hárið.
MISSKILDAR
SVITAHOLUR
48. Hægt er að breyta
stærð svitaholanna.
Þetta er útbreiddur misskiln-
ingur. Svitaholur á hverjum
einstaklingi eru af ákveðinni
stærð og verður ekki breytt.
Slökum vöðvum í kringum
svitaholurnar er ekki um að
kenna þótt svitaholur séu
stórar. Ástæðan er að kring-
um svitaholurnar eru engir
vöðvar. 49. Æskilegt er
að þvo sér með heitu
til að opna svitaholur
og skola með köldu til
að loka þeim. Svitaholur
eru eins og þær eru, heitt og
kalt vatn getur hvorki opnað
þær né lokað.
Á ÞIIRRU
50. Að drekka átta glös
af vatni stuðlar að
hærra rakastigi húðar-
innar. Talan átta hefur eng-
an töframátt. Að drekka
nóg vatn hefur marga kosti
en líkaminn getur aðeins
nýtt takmarkað magn, það
sem umfram er rennur í
gegn án þess að húðfrum-
urnar taki nokkuð af því til
sín.D
' 84 HEIMSMYND