Heimsmynd - 01.10.1991, Page 92

Heimsmynd - 01.10.1991, Page 92
Ættarveldi. . . framhald af bls. 66 setaefni 1980. í augum margra er Ted svarti sauðurinn í fjölskyldunni. Hann hefur valdið fleiri hneykslum en nokkur hinna bræðranna og hefur ekki gætt þess jafn vel og þeir að fara leynt með kvennamál sín. Svo virðist sem fjölskyld- an hafi aldrei vænst stórra hluta af Teddy. Þegar Joe yngri dó var það næst elsti bróðirinn, John, sem fyllti skarð hans. „Ég hellti mér út í stjórnmál vegna þess að bróðir minn, Joe yngri, lést. Ef ég dey þá mun Bob koma í minn stað,“ var eitt sinn haft eftir John F. Kennedy. En þessi „dóminókenning" sem á rætur að rekja til drauma ættföðurins, Joe eldri, tók ekki til Teddys. Svo virðist sem hann hafi aldrei verið með í dæminu hvorki í draumum föður síns né þegar bræðurnir tóku að útfæra það síðar. Fer- ill hans sem öldungadeildarþingmanns hefur þó verið farsæll og þar hefur hann þótt standa sig vel. Hann er áhrifa- og valdamikill á Bandaríkjaþingi. Eftir hneykslið á Palm Beach er talið ólíklegt að hann eigi nokkurn tíma eftir að kom- ast hærra í bandarískum stjórnmálum. Sá ljómi sem hefur sveipað Kenn- edyættarveldið er að dofna. Dekkri hliðar J.F. Kennedys hafa verið dregnar fram í dagsljósið og minningin um forset- ann ástsæla er ekki sú sama og áður. Morðið á Bobby markaði upphaf enda- lokanna, með honum dó vonin. Eftir var Ted Kennedy, yngsti bróðirinn, sem fað- ir hans, Joe, hafði ekki einu sinni gert ráð fyrir þegar hann lagði drög að ættar- veldinu. Utséð þykir að hann muni feta í fótspor bræðra sinna. Þriðja kynslóð Kennedykarlleggsins hefur valdið mikl- um vonbrigðum. Enginn þeirra þykir hafa til brunns að bera þá hæfileika sem þarf til að leiða þjóðina. Kennedygoð- sögnin hefur ekki getið af sér erfingja. En er það nema von? Uppvaxtarárin voru erfið og allan tímann fylgdust fjöl- miðlar með hverri hreyfingu óskabarna sinna. Fjölskyldur þeirra sundruðust, feður voru myrtir, framhjáhöld, of- drykkja og lyfjaneysla eldri kynslóðar- innar kipptu stoðunum undan öryggi þeirra. Allan tímann fylgdust vökul augu almennings og eldri fjölskyldumeðlima með þeim í leit að hinum „réttu“ Kenn- edy-eiginleikum. En „börn Ameríku1', eins og afkomendur Kennedyanna hafa verið kallaðir, virðast hvorki hafa getu né vilja til að halda goðsögninni við lýði í fjölskyldu þar sem velgengni boðar dauða.D Kennedykonur. . . framhald af bls. 66 fjórða júlí síðastliðinn og er elst Kenn- edybarnabarnanna, bauð sig fram í kosningum til bandaríska þingsins árið 1986. Reyndar fór það svo að hún komst ekki á þing en segist hafa fullan hug á að gera aðra tilraun síðar. Kathleen er lög- fræðingur en starfar að sérstöku upp- byggingarverkefni með unglingum í einu af allra fátækustu hverfum Baltimor- eborgar. Auk þess er hún í forsvari fyrir stofnunina Robert F. Kennedy Memori- al. Hún hefur verið sögð mesti hugsuð- urinn af barnabörnunum. Skýringin á því kann að vera sú að þegar John, föð- urbróðir hennar, hafði verið myrtur sagði faðir hennar við hana: „Sem elsta Kennedybarnabarnið berð þú meiri ábyrgð en aðrir. Vertu góðhjörtuð og þjónaðu þjóð þinni.“ Hinar þrjár dætur Bobbys og Ethel eru Kara, Rory og Kerry. Kara, sem reyndar átti mjög erfitt uppdráttar á unglingsárum, hóf nýverið störf sem framleiðandi sjónvarpsefnis. Sú yngsta, Rory, nemandi við Brown háskólann og mikill femínisti, hefur þegar tekið að blanda sér í stjórnmál. Kerry rekur RFK Memorial Center for Human Rights sem hefur aðsetur í New York og berst fyrir framgangi mannréttindamála í heimin- um. Um hana segir bróðir hennar, Robert F. Kennedy yngri: „Hún er sú sem að faðir okkar hefði verið stoltastur af.“ Bróðir hennar er ekki sá eini sem komið hefur auga á hæfileika Kerry. Gerard Doherty, ráðgjafi fjölskyldunnar og vinur, kallar hana hina raunverulegu stórstjörnu. „Hún er sú sem fólk ætti að fylgjast með í framtíðinni." Kerry er glæsileg og á auðvelt með að hrífa fólk með sér. Hún hefur lýst yfir áhuga á að bjóða sig fram til embættis en segist ætla að láta það bíða í nokkur ár og bendir á að það sé auðveldara fyrir eldri fram- bjóðendur að komast að. Líklega munu nokkur ár líða þangað til fregna er að vænta af framgangi þriðja ættliðs Kennedykvenna. En það ætti enginn að vanmeta getu þeirra og kjark. Það gera þær að minnsta kosti ekki sjálfar.D Hannibal. . . framhald af bls. 54 þó ekki alltaf samstiga föður sínum og gerði honum ýmsa skráveifu á yngri ár- um, einkum til að stríða honum. Börn Hannibals og Sólveigar urðu fimm. Verða þau nú upp talin: 1. Arnór Hannibalsson (f. 1934) er elstur. Hann fór til náms í Sovétríkjun- um árið 1954 og var einna fyrstur stúd- enta af Vesturlöndum til að fara þangað. Lauk hann MA-prófi í sálfræði og heim- speki við Moskvuháskóla 1959. Þá stund- aði hann framhaldsnám í Póllandi 1959 til 1960 en síðar í Sviss og Skotlandi. Doktorsprófi í heimspeki lauk hann frá Edinborgarháskóla 1973. Eftir að hann kom heim vann hann sem blaðamaður og um hríð forstöðumaður Listasafns ASI en var síðan sálfræðingur og kennari við ýmsar stofnanir. Frá 1974 var hann lektor í heimspeki við Háskóla íslands og er nú prófessor við sömu stofnun. Arnór mun fljótlega eftir að hann kom til Moskvu hafa séð í gegnum hið spillta kerfi kommúnismans og hann hafði hug- rekki til þess þegar eftir 1960 að hefja opinbera gagnrýni á kerfið eystra og jafnframt gömlu kommana heima á ís- landi. Hann gaf út tvær bækur, Valdið og þjóðin, 1963, og Kommúnismi og vinstri hreyfing, 1964, með harðvítugri gagnrýni á Sovétríkin og Moskvuþjónk- un íslenskra kommúnista. Þessar bækur ollu miklu uppnámi meðal sósíalista og urðu til þess að ýmsir tóku að endurmeta afstöðu sína til Sovétríkjanna. Hann er nú einn helsti sérfræðingur íslendinga í málefnum Sovétríkjanna. Kona Arnórs er Nína Sæunn Sveinsdóttir hagfræðing- ur. Börn þeirra eru Ari Ólafur Arnórs- son (f. 1962) bflstjóri, Kjartan Arnórsson (f. 1965), sem getið hefur sér gott orð, allt frá unga aldri, fyrir teiknimyndasög- ur er hann teiknar og semur, hann er nú í Bandarflcjunum, Auðunn Arnórsson (f. 1968), háskólanemi í Freiburg í Þýska- landi, Hrafn Arnórsson (f. 1971) og Þóra Arnórsdóttir (f. 1975). 2. Ólafur Hannibalsson (f. 1935), blaðamaður í Reykjavík, er næstelstur. Hann tók virkan þátt í stjórnmálum á ár- unum þegar Hannibal var að kljúfa sig út úr Alþýðubandalaginu. Hann var rit- stjóri Frjálsrar þjóðar, málgagns Þjóð- varnarmanna frá 1964, Nýja Alþýðu- bandalagsblaðsins átakaárið 1967 og rit- stjóri Nýs lands 1969-1970. Hann var í þriðja sæti á lista Alþýðubandalagsins á Vestfjörðum 1967. Ólafur var skrifstofu- stjóri ASÍ á árunum 1971-1977 undir stjórn Björns Jónssonar, en kaus síðan að hverfa vestur á firði og hefja þar bú- skap. Hann var bóndi í Selárdal um ára- bil og gekk þá í Sjálfstæðisflokkinn. Þótti mörgum það undur mikil og stórmerki. Hann lét af búskap fyrir nokkrum árum og hefur síðan verið blaðamaður í Reykjavík, meðal annars á HEIMS- MYND. Hann vinnur nú að því að skrifa sögu Sölumiðstöðvar hraðfrystihúsanna. Fyrri kona hans var Anna G. Kristjáns- dóttir kennari og eru börn þeirra Hugi Ólafsson (f. 1964), MA í alþjóðasam- skiptum, starfsmaður Sameinuðu þjóð- anna í New York, Sólveig Ólafsdóttir (f. 1965), sem er að ljúka MA-prófi í blaða- 92 HEIMSMYND
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108

x

Heimsmynd

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimsmynd
https://timarit.is/publication/1408

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.