Heimsmynd - 01.10.1991, Page 97
á því er þörf. Blautur sjóvettlingur getur
verið helvíti þarfur," segir hann og hlær.
„Aðstoðarkona Schulhofs segir að við
séum svo alúðlegir við fólk en franskur
ráðgjafi hjá Sony sem er orðinn sjötugur
hefur hins vegar sagt við mig að ég kunni
ekki skítverkin. Hann segir að ég geti
ekki fengist við skíthæla. Ég er svo þol-
inmóður að ég held að hið rétta verði of-
an á. Sá franski segir að það þurfi smá
hjálp til þess,“ og hann brosir, „það get-
ur verið að hann hafi rétt fyrir sér - ég
hlusta alla vega á hann.“
að er augsýnilega reynslutími fram-
undan. „Við erum svona shaky -
núna,“ segir hann og lætur hendurnar
titra. Svo hlær hann. „Ef maður er með
stöðugar áhyggjur kemur maður engu í
verk.“
Olafur þarf víst ekki að hafa áhyggjur
af því að koma litlu í verk. Bandarísk
blöð hafa kallað hann hinn ólíklega for-
stjóra hjá Sony með tilvísun til þess að
hann er ekki enn þrítugur, er eðlisfræð-
Ef maður er
með stöðugar
áhyggjur
kemur
maður engu
í verk.
ingur að mennt og í ofanálag metnaðar-
fullur rithöfundur.
„Ég hefði aldrei geta skrifað þessa bók
hefði ég ekki gegnt þessu starfi. Ég veit
að mörgum finnst það skrýtið og halda
jafnvel að mér sé ekki alvara. Graham
Greene skrifaði svakalega fínan literatúr
en var samtímis með fingurna á púlsin-
um. I daglegu starfi hef ég slík aðföng í
bókina að það er eins og að vera á tog-
ara, maður þarf rétt að dýfa vörpunni og
torfurnar ganga upp að skipinu."
I minnisbókinni hans stendur á einum
stað: Trúverðug persóna verður að vera
margbrotin, œttuð úr mörgum áttum.
Lesendur þurfa að skilja afstöðu Péturs
Péturssonar, enda þótt þeim þyki hún
ekki vera samkvœmt bestu kokkabókum.
Hugsanir hans þurfa að hrœða og heilla
og skemmta og vekja til umhugsunar . . .
Söguleg atvik, heimsstyrjöldin til að
mynda, verða að vera í bakgrunni. Lífið
sést með augum Péturs. Hans afstaða
skiptir öllu máli. Ég má ekki taka fram
fyrir hendurnar á honum . . .
Umboðsmenn um land allt.
BRÆÐURNIR
OKMSSONHF
Lágmúla 8. Sími 38820
Afbragðstælci fyrir öll eldhús!
Við kynnum ykkur Tefal, framleiðanda framúrskarandi eldhústækja. Hér eru
viðurkennd læki á ferðinni, fallega hönnuð, bæði fjölhæf og auðveld í notkun.
Tefal er í dag með söluhæstu framleiðendum á sviði smærri heimilistækja
og leiðandi í hönnun þeirra ogþróun. Lítið inn hjá okkur og kynnið
ykkur línuna frá Tefal. Með þessum tækjum
verða eldhússtörfin tilhlökkunarefni!
HEIMSMYND 97