Heimsmynd - 01.10.1991, Page 104

Heimsmynd - 01.10.1991, Page 104
takmarkalaus: drengurinn pantaði aðra flösku af uppþvottaleginum, þau hlógu og skríktu, sögðu sögur úr vinnunni. Ein stúlknanna, ritari deildarstjóra, hét því að neita að færa honum kaffi frá og með mánudegi . . . Og það rann upp fyrir Pétri hversu fánýtt líf flestra er.“ r Eg spyr Ólaf Jóhann um þennan kafla. Er þetta viðhorf manns sem hefur náð á toppinn og horfir undrandi á gleði óléttrar konu sem fær uppþvottavél? Hann brosir. Mín afstaða er eins ólík þessari og verið getur. Lífið í New York er grimmt og velferð manna fer eftir peningum þeirra. Enginn heilbrigður maður getur horft upp á þau bágindi sem hér blasa alls staðar við og ekki tekið þau nærri sér. En menn geta líka talað af tilfinningasemi um eitt og annað þegar verk þeirra segja allt aðra sögu.“ A minnisblað sem hann skrifaði þegar hann ók frá flugvellinum inn í borgina nýlega stendur: Fátœktin í þessari borg. Eg kom í nótt frá Kaliforníu eftir langa fundi með bíómönnum. Þeir halda að peningar vaxi á trjánum, enda sígrœnt vestra. í bílnum á leiðinni heim frá flug- vellinum sá ég hvern útigangsmanninn af öðrum leita eð einhverju í svanginn í öskutunnum. Heit nótt og lítið réttlœti í þessum heimi. Eg velti því fyrir mér hvort hann muni nokkru sinni leggja stjórnmál fyrir sig. Því oftar en einu sinni í samtölum okkar talar hann um að láta gott af sér leiða. Ólafur Ragnarsson, útgefandi hans og vinur, segist sannfærður um að það bíði Ólafs Jóhanns að verða rithöfundur á heimsmælikvarða. „Við erum þegar bún- ir að gera samning við sænskt útgáfufyr- irtæki um útgáfu á nýju bókinni hans, er- um að ljúka við samninga í Þýskalandi og Danmörku og fjögur stærstu forlögin í Bandaríkjunum eru að skoða valda kafla úr nýju bókinni með útgáfu í huga. Nú í október er Ólafur Jóhann fyrirlesari á bókasýningu í Frankfurt þar sem hann mun fjalla um framtíðarþróun í útgáfu í tengslum við nýtækni. Eg er alveg sann- færður um að hans bíður það hlutskipti að verða mikill rithöfundur." r Eg hef engan áhuga á að verða ódauð- legur. Ég vil helst koma einhverju í verk áður en ég dey en mitt starf er ekk- ert merkilegra en annarra. Og fólkið sem ég umgengst hér í New York eða Hollywood er ekkert merkilegra en verksmiðjustrákarnir í Indíana, sem ég spila körfubolta við, þegar ég er þar. Ég set mér aldrei það takmark að ná ein- hverri stöðu - heldur að gera eins vel og ég get og til þess er ég tilbúinn að vinna eins og ég þarf.“ Nú eru uppi vangaveltur í blöðum um hverjir taki við af æðstu stjórnendum Sony þegar sá tími kemur. Morita sem er sjötugur fór í mikla hjartaaðgerð í fyrra og Ohga varð fyrir hjartaáfalli nýlega. En slíkar vangaveltur eru frekar í ætt við Pétur Pétursson og hinar raunverulegu fyrirmyndir hans en ungan mann með íhugul augu, sem enn er ekki þrítugur.D HOLHISTl II III Hjá okkurfærðu Hollustubrauðin sem slegið hafa öll sölumet. OMEGABRAUÐ inniheldur Omega-3. GR0NNBRAUÐ inniheldur 100% heilhveiti, ekkert hvítt hveiti, engan hvítan sykur og enga fitu. EKTA SURDEIGSBRAUÐ á þriðjudögum og fimmtudögum. Inniheldur m.a. rúg, AB-mjólk, jógúrt, og er gerlaust. ^ F Á ^ Að auki fœrðu öll önnur brauð og kökur \ sem úrvalsbakarí hefur á boðstólum. ggl * BAKARI Gott bakarí — stoltir bakarar! Sími: 71500 0|iið alla virka daga frá MS (i; 9-16 uin hclgar. Nfi'J liílaslæái. Smiðjnvcgi 4 E. 104 HEIMSMYND
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108

x

Heimsmynd

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimsmynd
https://timarit.is/publication/1408

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.