SSFblaðið - dec 2014, Qupperneq 8
8
sameiginleguR funduR tRúnaðaRmanna og foRmanna
aðildaRfélaga ssf vaR haldinn dagana 13. og 14. nóvembeR sl.
á selfossi. Fundurinn var vel sóttur og sköpuðust miklar umræður
á fundinum, einkum um kjaramál starfsmanna fjármálafyrirtækja
en unnið var í hópavinnu við undirbúning kjarasamningsviðræðna
með sambærilegu fyrirkomulagi og var á Þjóðfundinum árið 2010.
Yfir sjötíu félagsmenn aðildarfélaga SSF sóttu fundinn þar sem
farið var yfir horfur komandi
kjarasamningsviðræðna, lífeyris-
málin, stefnumótun SSF og fleira,
en fyrst og fremst var áherslan
lögð á kjaragerð samtakanna þar
sem áherslur samtakanna voru
kortlagðar.
„Markmiðið með hópavinnu
í tengslum við undirbúning
kjaragerðar er að kanna afstöðu félagsmanna og forgangsröðun“ segir
Friðbert Traustason, formaður SSF. Hann segist ánægður með þann
baráttuvilja sem kom fram á fundinum og „mætingin sýnir að okkar
félagsmenn vilja ná fram kjarabótum í næstu kjarasamningsviðræðum
og þessi fundur gefur góð fyrirheit fyrir framhaldið.“
undiRbúninguR kjaRasamningsviðRæðna Í fullum gangi
Undirbúningur fyrir kjaraviðræður vegna kjarasamningsviðræðna
2015 er kominn á fullt skrið innan vébanda Samtaka starfsmanna
fjármálafyrirtækja. Ásamt undirbúningi á trúnaðar- og formannafundi
SSF hafa undanfarið farið fram trúnaðarmannafundir hjá
aðildarfélögum þar sem kallað hefur verið eftir umræðum um
komandi kjarasamningsviðræður og kröfugerð SSF. Á formanna- og
trúnaðarmannafundi SSF var eins
og áður segir unnið í hópum við að
fara yfir helstu áherslur SSF fyrir
komandi kjarasamningsviðræður.
Eftir á að vinna úr niðurstöðum
hópavinnunnar en augljóslega var
það vilji félagsmanna að samið
yrði um hækkun á kauptaxta,
og tryggja kaupmátt launa á
samningstímanum. Þá kom einnig fram sá vilji að samið yrði um
ákveðin lágmarkslaun og þá var það skýrt forgangsmál að samið yrði
um verulega hækkun á desember- og orlofsuppbót.
„GEFUR GÓÐ FYRIRHEIT“
sagði fRiðbeRt tRaustason, foRmaðuR samtaka staRfsmanna fjáRmálafyRiRtækja (ssf),
að loknum sameiginlegum fundi foRmanna og tRúnaðaRmanna ssf þaR sem kjaRamálin
voRu m.a. til umRæðu.
samið yrði um hækkun á kauptaxta fyrst og fremst
með fastri krónutöluhækkun a.m.k. að hluta til til
að tryggja sem mestan jöfnuð. Þá kom einnig fram
sá vilji að samið yrði um ákveðin lágmarkslaun
og þá var það skýrt forgangsmál að samið yrði um
verulega hækkun á desember- og orlofsuppbót.