SSFblaðið - des. 2014, Blaðsíða 12

SSFblaðið - des. 2014, Blaðsíða 12
12 Fjölmargir fróðlegir fyrirlestrar voru haldnir á þessari fagráðstefnu RB en fyrst og fremst ber að nefna fyrirlestur David Rowan, ritstjóra Wired Magazine, sem margir komu gagngert til að sjá. Auk hans fluttu þeir Friðrik Þór Snorrason, forstjóri RB, og Þorsteinn Björns, framkvæmdastjóri Viðskiptaþróunar og ráðgjafar RB, erindi um stöðu RB gagnvart upplýsingatækni og að hverju væri stefnt í þeim málum innan RB. Þá fór Birna Einarsdóttir, bankastjóri Íslandsbanka, yfir framtíðarsýn Íslandsbanka í þjónustu með tilliti til upplýsingatækni. Jean Yves Bruna, framkvæmdastjóri stefnumála og þróunar hjá Sopra Banking Software, fjallaði um komandi áskoranir viðskiptabanka innan upplýsingatækni. Ragnheiður Magnúsdóttir, framkvæmdastjóri Hugsmiðjunnar, fór yfir stöðu jafnréttismála innan upplýsingatæknigeirans og hvers vegna skortur væri á konum í þeim iðnaði og hvað sé til ráða. Að lokum var það Theódór Gíslason, sérfræðingur í tölvuöryggismálum hjá Syndis, sem fór yfir það hversu auðvelt og algengt það er að verið sé að brjótast inn í tölvur og gagnaveitur og hvaða þjónustu Syndis byði upp á til að koma í veg fyrir slíkar tölvuárásir. 10 tæknistRaumaR sem munu hafa áhRif á fjáRmálageiRann David Rowan fjallaði um þá 10 tæknistrauma sem að hans mati munu hafa hvað mest áhrif á fjármálageirann í fyrirsjáanlegri framtíð. David er ritstjóri virts og útbreidds tímarits, Wired Magazine, sem fjallar um tækninýjungar og hvernig þær hafa áhrif á daglegt líf fólks og rekstur fyrirtækja. David náði ótruflaðri athygli ráðstefnugesta með því að hefja fyrirlesturinn á því að sýna mjög áhugavert myndband frá árinu 1967 um það hvernig stórt fyrirtæki í Bandaríkjunum sá verslun fyrir sér árið 1999. Í myndbandinu eru allar vörur keyptar í gegnum tölvuna, og má segja að margt annað í myndbandinu hafi staðist nokkurn veginn og sagði David myndbandið sýna vel að það er hægt að spá fyrir um tækniframfarir framtíðarinnar. 10 tæknistRaumaR sem munu hafa áhRif á fjáRmálageiRann: #1 sÍmaRniR Fyrsta atriðið sem David nefndi eru símarnir. Hann sagði að síminn yrði mun stærra markaðstæki en við gerðum okkur flest grein fyrir. Hann sagði að smartsímanotendum fjölgaði um 1 milljón á hverjum degi, sem er þrisvar sinnum fleiri en áætlaður fjöldi nýbura í heiminum á degi hverjum. Með tilkomu smartsíma og ört fjölgandi notenda er orðinn til nýr markaður í gegnum snjallsímaforrit. Hann tók dæmi um stofnanda “WhatsApp” snjallsímaforritsins og sagði þar sögu innflytjenda í Bandaríkjunum sem þróa forrit sem varð selt á 19.000.000.000 $ einungis örfáum árum eftir að forritið kom á FRAMTÍÐIN Í UPPLÝSINGATÆKNI FJÁRMÁLAFYRIRTÆKJA 2.0 Reiknistofa bankanna (Rb) hélt í lok októbeR áhugaveRða Ráðstefnu um fRamtíð upplýsingatækni innan fjáRmálageiRans. Ráðstefnan baR yfiRskRiftina fRamtíðin í upplýsingatækni fjáRmálafyRiRtækja 2.0. fæRRi komust á Ráðstefnuna en vildu því uppselt vaR nokkRum dögum fyRiR og því fullt út að dyRum í Ráðstefnusal icelandaiR hótel Reykjavík natuRa. það vaR hReinn jakobsson, stjóRnaRfoRmaðuR Rb, sem setti Ráðstefnuna.

x

SSFblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: SSFblaðið
https://timarit.is/publication/980

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.