SSFblaðið - des. 2014, Blaðsíða 24

SSFblaðið - des. 2014, Blaðsíða 24
24 narandstaðan var þessu ósammála og Katrín Jakobsdóttir, formaður Vinstri grænna, sagði að ríkisstjórnin hefði fallið á réttlætisprófinu sökum þess að stjórnin hefði lækkað m.a. opinber gjöld á útgerðina, álögur á tóbak og áfengi hefði einnig lækkað á meðan komugjöld á heilsugæslur hefðu hækkað. Árni Páll Árnason, formaður Samfylkingarinnar, tók í sama streng og kallaði ríkisstjórnina, ríkisstjórn hinna ríku, og sagði þá ríkustu fá gjafir frá ríkisstjórninni, kvölds, morgna og um miðjan dag. fyRsta boðaða vinnustöðvun gRunnskólakennaRa hófst, en félag gRunnskólakennaRa hafði boðað þRjáR veRkfallslotuR sem allaR voRu sólaRhRinguR að lengd. Því var engin kennsla í grunnskólum landsins þennan dag. Fundað var hjá ríkissáttasem- jara og voru samningamenn nokkuð bjartsýnir þrátt fyrir að fyrsta lota verkfallsaðgerða væri hafin. Grunnskólakennarar fjölmenntu á Ingólfstorg og héldu þar útifund og kröfðust kjarabóta. Þá hófst önnur lota í verkfallsaðgerðum SFR og Sjúkraliðafélags Íslands. Þar höfðu starfsmenn í velferðarþjónustu lagt niður störf, sem náði til um fimmhundruð starfsmanna í um tuttugu stofnu- num, og stóð vinnustöðvunin í nokkrar klukkustundir. flugvallaRstaRfsmenn samþykktu kjaRasamning Í atkvæðagReiðslu. landsbankinn kynnti afkomutöluR sÍnaR fyRiR fyRsta áRsfjóRðung áRsins 2014. Í tilkynningu bankans kom fram að afkoman hafi verið jákvæð um 4,3 milljarða króna eftir skatta á fyrsta ársfjórðungi. Hagnaður á sama tíma árið 2013 nam tæpum 8 milljörðum króna. fRumvaRp RÍkisstjóRnaRinnaR um leiðRéttingu veRðtRyggðRa fasteignaveðlána vaR samþykkt sem lög fRá alþingi. almenninguR gat sótt um leiðRéttingu á veRðtRyggðum húsnæðislánum að uppfylltum ákveðnum skilyRðum. Vefsíðan leidretting.is var opnuð þar sem almenningi gafst kostur á að sækja um með nokkuð auðveldum hætti. Á innan við sólarhring höfðu um 18 þúsund manns sótt um höfuðstólsleiðréttingu. dR. eyjólfuR guðmundsson vaR Ráðinn RektoR háskólans á akuReyRi. Hann tók við rektorsstöðunni af Stefáni B. Sigurðssyni. áRsfunduR samáls, samtaka álfRamleiðenda, fóR fRam. Á árs- fundinum var rannsóknarsetur fyrir ál og efnisvísindi sett á laggir- nar. Setrinu er ætlað að styrkja menntun, rannsóknir og nýsköpun í áliðnaði. Ragnheiður Elín Árnadóttir, iðnaðarráðherra, undirritaði viljayfirlýsingu um stofnun setursins á ársfundinum. félag gRunnskólakennaRa skRifaði undiR nýjan kjaRasamning. Þar með var fyrirhuguðum frekari verkfallsaðgerðum aflýst a.m.k. á meðan félagsmenn kynntu sér efni samningsins og kysu um hann. Samningurinn var talin marka tímamót, en hann þykir flókinn og mjög umfangsmikill. Inga Rún Ólafsdóttir, formaður samninganefndar sambands íslenskra sveitarfélaga, sagði samn- inginn veita mörg tækifæri til kennara eftir miklar breytingar á vinnutímákvæði kjarasamningsins. peningastefnunefnd seðlabankans ákvað óbReytta stýRivexti. þeiR höfðu sÍðast bReyst Í nóvembeR áRið 2012. flugmenn icelandaiR skRifuðu undiR nýjan kjaRasamning en þeiR höfðu háð langa og eRfiða kjaRabaRáttu sem endaði með þvÍ að lög voRu sett á alþingi til að fyRiRbyggja fRekaRi aðgeRðiR en þegaR höfðu átt séR stað. Kjarasamningur þeirra var skammtímasamningur fram á haustið og átti að nota tímann fram að því til að undirbúa nýjan langtíma samning. miklaR anniR voRu hjá RÍkissáttasemjaRa þessa daga. Verkfall félagsmanna í SFR og Sjúkraliðafélagi Íslands á stofnunum innan Samtaka fyrirtækja í velferðarþjónustu hófst. Fundað var stíft í húsakynnum Ríkissáttasemjara. Ekki reyndi þó mikið á verkfall- saðgerðir því samið var eftir að verkfall hafði staðið yfir í þrjá tíma. hagstofan biRti launavÍsitöluþRóun. Samkvæmt tölum hagsto- funnar höfðu laun hækkað um 4,8 % á einu ári.Þá hafði kaupmáttur einnig aukist um 2,5 % á sama tíma. johan Rönning, miRacle og vinnuföt voRu veRðlaunuð sem fyRiRtæki áRsins 2014 af vR. Verðlaunin byggja á niðurstöðum árlegrar könnunar á vegum VR. Johan Rönning var fyrirtæki ársins í sínum stærðarflokki, fyrirtæki með að lágmarki 50 starfsmenn, Miracle, vann í hópi fyrirtækja með starfsmannafjölda á bilinu 20- 49 og Vinnuföt í hópi fyrirtækja með færri en 20 starfsmenn, samkvæmt niðurstöðum árlegrar könnunar VR. moRgunblaðið gReindi fRá þvÍ að heildaRúttekt séReignaRspaRnaðaR launafólks fRá þvÍ Í maRs 2009 hefðu numið 98,4 milljöRðum kRóna. Frá áramótum hafði launafólk tekið út um rúman 7,5 milljarð sem olli áhyggjum enda merki um kröftugan vöxt í einkaneyslu drifinn að hluta með því að ganga á sparifé. b a n k a m á l b a n k a m á l s t j ó R n m á l v i ð s k i p t i o g e f n a h a g s m á l v i ð s k i p t i o g e f n a h a g s m á l v i ð s k i p t i o g e f n a h a g s m á l a l m e n n t

x

SSFblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: SSFblaðið
https://timarit.is/publication/980

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.