SSFblaðið - des. 2014, Blaðsíða 44
44
seðlabankans Í desembeR þ.e. ef honum tækist að safna nægum
áheitum til styRktaR foRvaRnaRveRkefni baRnaheilla gegn
einelti. Forvarnarverkefni Barnaheilla ber einmitt nafnið Jólapeysan
2014. Fjölmargir hafa tilkynnt þátttöku í verkefninu m.a. Eygló
Harðardóttir, félagsmálaráðherra, sem ætlar að vera í jólapeysu á
Alþingi, Vilborg Arna Gissurardóttir, sem ætlar að ganga á Esjuna
í jólapeysu, og Thelma Tómasson, fréttaþulur á Stöð 2, sem ætlar
að segja fréttir í jólapeysu.
hagstofan biRti tölu um aflaveRðmæti sjávaRútvegsins fyRiR
það sem af vaR af áRinu, samanboRið við áRið 2013. Fram kom
að dregið hefði úr verðmæti afla íslenskra skipa síðustu 12 mánuði,
var 9,7% minna en mánuðina 12 þar á undan. Aflaverðmæti frá
september í fyrra til ágústloka, voru tæpir 138 milljarðar króna en
tæpir 153 milljarðar, á tímabilinu frá september 2012 til ágúst 2013.
RÍkisstjóRnin samþykkti fRamlagningu fRumvaRps RagnheiðaR
elÍnaR áRnadóttuR, iðnaðaRRáðheRRa, um gjaldtöku Í
feRðaþjónustu. Í frumvarpinu er lagt til að innheimta fari fram
með náttúrupassa. Lagt er til að passinn gildi í þrjú ár, kosti 1500
krónur fyrir 18 ára og eldri. Hefja á innheimtu strax haustið 2015.
Frumvarpið hafði verið talsvert lengi í smíðum og er enn afar
umdeilt. Í greinargerð frumvarpsins kemur fram að gæta þurfi
jafnræðis við innheimtuna, en lögum samkvæmt má ekki mismuna
eftir þjóðerni. Sé gjald tekið af erlendum ferðamönnum ber að
taka sama gjald af Íslendingum. Samtök ferðaþjónustunnar hafa
greint frá því að samtökin vilji fara aðra leið og vilja leggja á sérstakt
náttúrugjald á gistináttagjald, um eina Evru á hverja gistinótt.
desembeR
jólatRéð sem óslóaRbúaR ákváðu á endanum að gefa
ReykvÍkingum eftiR að hafa ákveðið að hætta gefa boRginni
tRé til að hafa á austuRvelli Í tilefni jólanna eyðilagðist Í
óveðRi sem skall á landsmenn. Svo fór að ákveðið var að setja
Oslóartréið inn í Ráðhús borgarinnar þar sem það var brotið,
borgarstjóri felldi svo tré við Rauðavatn sem prýðir nú Austurvöll.
baRnamenningaRveRðlaun velfeRðaRsjóðs voRu veitt Í tÍunda
sinn en veRðlaunin eRu afhent áRlega. Jóhannes Kr. Kristjáns-
son, fréttamaður Ríkisútvarpsins, fékk verðlaunin í ár en hann
stofnaði árið 2012 sjóð til minningar um dóttur sína, Sigrúnu
Mjöll, og hefur unnið ötullega að málum viðkomandi fíkniefna-
vanda unglinga. Verðlaununum fylgja tvær milljónir króna sem
verða nýttar til að fjármagna vinnu í þágu ungmenna sem glíma
við fíkni-eða vímuefnavanda.
kjaRamál lækna voRu enn óleyst og veRkfallslotuR voRu áfRam
yfiRvofandi. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, forsætisráðherra,
lýsti verulegum áhyggjum af verkfallinu og stöðunni í kjaradei-
lunni. Hann sagðist vilja koma á þjóðarsátt um forgangsröðun í
heilbrigðismálum.
feRðamálastofa gReindi fRá þvÍ að eRlendiR faRþegaR sem hefðu
faRið Í gegnum keflavÍkuRflugvöll hefðu veRið Rúmlega 915
þúsund talsins. Samkvæmt þeim tölum eru það eru 176 þúsund
fleiri en á sama tímabili ársins 2013. Aukningin nemur um 24%.
Bandarískum og kanadískum ferðamönnum fjölgaði um tæp
34% og breskum um 32%. Frá því í byrjun janúar 2014 höfðu
372 þúsund Íslendingar farið utan eða rúmlega 9% fleiri en árið
á undan.
möRgun að óvöRum vaR ólöf noRdal skipuð innanRÍkisRáðheRRa
eftiR að hanna biRna kRistjánsdóttiR hafði sagt af séR. Það
kom mörgum á óvart að Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæð-
isflokksins, hefði kosið að líta út fyrir þinghóp Sjálfstæðisflokksins
en Ólöf hafði tilkynnt að hún hyggðist hætta þingmennsku fyrir
síðustu kosningar. Síðar kom í ljós skv. tilkynningu frá Bjarna
Benediktssyni að Einari. K. Guðfinnssyni hefði verið boðinn
ráðherrastóllinn en hann hafi afþakkað og viljað halda áfram vinnu
sinni sem forseti þingsins. Ólöf tók við ráðuneytinu á ríkisráðsfundi
á Bessastöðum þennan dag. Ólöf sagði að ákvörðunin um að taka
við ráðuneytinu þýði ekki að hún hyggist í framboð á nýjan leik.
guðlaug kRistjánsdóttiR tilkynnti að hún væRi hætt sem
foRmaðuR bandalags háskólamanna og að hún hafi tilkynnt
stjóRn bhm um ákvöRðun sÍna. Ástæðan sagði Guðlaug vera
miklar annir, sérstaklega eftir að hún var kosin í bæjarstjórn
Hafnarfjarðar og varð forseti bæjarstjórnar. Páll Halldórsson, sem
gegnt hafði embætti varaformanns tók við af Guðlaugu. s t j ó R n m á l
s t j ó R n m á l
v i ð s k i p t i o g e f n a h a g s m á l
v i ð s k i p t i o g e f n a h a g s m á l
v i ð s k i p t i o g e f n a h a g s m á l
a l m e n n t