SSFblaðið - des. 2014, Blaðsíða 26
26
ólafuR RagnaR gRÍmsson, foRseti Íslands, vakti athygli á
alþjóðlegRi Ráðstefnu um sjálfbæRni á vegum sameinuðu
þjóðanna. Ráðstefnan var haldin í New York og voru fjölmargir
þjóðarleiðtogar og virtir vísindamenn viðstaddir. Ræða Ólafs
vakti mikla athygli en hann hvatti heimsbyggðina til að umbreyta
hugsunarhætti sínum um orkumál. Nú þegar sé til tækni á sviði
jarðhita, sólarorku og vindorku sem væri hægt að nýta á smærri
mælikvarða en nú er gert, til að mynda fyrir hvert heimili fyrir
sig, minni þorp, héruð eða bæi.
mp banki tilkynnti að bankinn hefði ákveðið að leggja meiRi
áheRslu á að þjónusta fyRiRtæki og einstaklinga með mikil
fjaRhagslega umsvif. Af því tilefni
bauð bankinn eignaminni viðskiptavi-
num sínum aðstoð við að færa viðskipti
sín yfir í annan banka því í kjölfarið
yrðu allir viðskiptavinir bankans með
innan við tvær milljónir í formi innlána, séreignarsparnaðar eða
útlána rukkaðir um sérstakt viðskiptagjald, 60.000 kr. á ári.
jónas kRistjánsson, fyRRveRandi foRstöðumaðuR stofnunaR
áRna magnússonaR, lést nÍRæðuR að aldRi. Jónas gegndi lykil-
hlutverki við að endurheimta íslensk fornrit frá Danmörku. Jónas
var áberandi í íslensku samfélagi og skrifaði fjölda greina, fyrirlestra
og rita um íslensk fornrit, bókmenntasögu og sagnfræði, og hel-
gaði sig útgáfu íslensku fornritanna og rannsóknum á byggðum
norrænna manna í Ameríku eftir að hann settist í helgan stein.
RottuR voRu ábeRandi Í fRéttum
þennan dag og hófst upp úR hádegi
en þá höfðu alliR sundlaugaRgestiR
Í vestuRbæjaRlaug Í ReykjavÍk veRið
RekniR upp úR eftiR að Rotta sást
spóka sig á sundlaugaRbökkunum. Lauginni var lokað á meðan
meindýraeyðir handsamaði dýrið. Það var svo nokkrum tímum
síðar sem rotta beit litla stúlku í Hlíðunum í Reykjavík.
fRamtakssjóðuR Íslands seldi allt hlutafé sitt Í
eldsneytisfélaginu n1. Ekki kom fram í tilkynningu sjóðsins
hver kaupandinn væri. Sjóðurinn átti um 21% hlut í félaginu.
nýR meiRihluti vaR kynntuR til leiks á akuReyRi. Þar höfðu
fulltrúar meirihluta Samfylkingar, Framsóknarflokks og L-lista
bæjarlista Akureyrar, ákveðið að mynda meirihlutasamstarf í
bæjarstjórn Akureyrar. Á síðasta kjörtímabili hafði L- listinn hreinan
meirihluta en tapaði meira en helmingi þess fylgis í kosningunum
til síðustu sveitarstjórnarkosninga. Ákveðið var að framlengja
ráðningu Eiríks Björns Björgvinssonar sem bæjarstjóra.
seðlabankinn tilkynnti að peningastefnunefnd bankans hefði
ákveðið að stýRivextiR skyldu haldast óbReyttiR.
nýR meiRihluti vaR myndaðuR Í ReykjavÍk.
Að meirihlutanum standa Samfylkingin, Björt
Framtíð, Vinstri græn og Píratar. Tilkynnt var
á blaðamannafundi að Dagur B. Eggertsson,
oddviti Samfylkingarinnar í borginni, yrði
borgarstjóri.
maRguR skotáhugamaðuRinn sem og mataRaðdáenduR Íslensku
RjúpunnaR uRðu himinlifandi þegaR náttúRufRæðistofnun
Íslands tilkynnti að skv. talningum hefði fjölgað Í
Rjúpnastofninum um 41%. Rjúpnastofninn var þó undir meðal-
stærð enda hafði fækkað í stofninum frá því árið 2010 að mat
Náttúrufræðistofnunnar.
máR guðmundsson, seðlabankastjóRi, tilkynnti að hann
hyggðist sækja um stöðu seðlabankastjóRa. Umsóknarfrestur
um stöðu Seðlabankastjóra var til næstu mánaðarmóta.
sólaRhRings vinnustöðvun hófst hjá flugviRkjum icelandaiR.
Aflýsa þurfti 65 áætlunarflugum sem höfðu áhrif á um 12.000
farþega.
daguR b. eggeRtsson, tók foRmlega við staRfi boRgaRstjóRa
Í ReykjavÍk.
umfangsmikil leit hafði staðið yfiR Í Rúma viku Í fljótshlÍð að
ástu stefánsdóttuR. Leitin hófst eftir að vinkona og ferðalangur
Ástu, Pino De Los Angeles Becerra Bolanos, hafði fundist látin í
Bleiksárgljúfri. Hún lést eftir hátt fall. Yfir 100 björgunarsveitar-
menn tóku þátt í leitinni við erfiðar aðstæður.
b a n k a m á l
b a n k a m á l
s t j ó R n m á l
s t j ó R n m á l
s t j ó R n m á l
s t j ó R n m á l
v i ð s k i p t i o g e f n a h a g s m á l
v i ð s k i p t i o g e f n a h a g s m á l
v i ð s k i p t i o g e f n a h a g s m á l
a l m e n n t
a l m e n n t
a l m e n n t