SSFblaðið - des. 2014, Blaðsíða 37

SSFblaðið - des. 2014, Blaðsíða 37
37 aðalfunduR læknafélags Íslands fóR fRam Í kópavogi. Á fundi- num var ákveðið að skora á ráðamenn á Íslandi að gera „íslenskt heilbrigðiskerfi að fýsilegum atvinnuvettvangi fyrir lækna með því að leiðrétta kjör þeirra“. mánuðuR vaR liðinn fRá þvÍ hRaungos hófst Í holuhRauni noRðan vatnajökuls. Nokkuð stöðug gosvirkni hafði til þessa verið í sprungunni frá byrjun en gosið er talið eitt mesta hraun- gos á Íslandi í áratugi. Hraunið úr Holuhrauni var nú orðið um 44 fer- kílómetrar að lengd var haft eftir vísindamönnum í fréttum Ríkisútvarpsins. Til samanburðar var nefnt að Mývatn væri 37 ferkíl- ómetrar. Hraunið hafði á þessum tímapunkti náð yfir veginn um Gæsavatnaleið. þoRbjöRn jónsson, foRmaðuR læknafélags Íslands, sagði Í fRéttum RÍkisútvaRpsins að slitnað hefði upp úR fundi samninganefndaR lækna og RÍkisins. Hann sagði næstu skref vera fólgin í því að leita eftir umboði lækna fyrir verkfallsboðun í lok október. októbeR peningastefnunefnd seðlabankans ákvað að halda vöxtum bankans óbReyttum. Í tilkynningu Seðlabankans sagði að dregið hefði úr hagvexti á fyrri hluta ársins en að þróunin hafi verið í meginatriðum í samræmi við ágústspá Peningamála. Verðbólgan hefur verið undir markmiði í átta mánuði samfleytt. ólafuR stephensen vaR Ráðinn fRamkvæmdastjóRi félags atvinnuRekenda. Hann tók við af Almari Guðmundssyni, sem hafði tekið við starfi framkvæmdastjóra Samtaka iðnaðarins. Ólafur hafði fyrr á árinu látið af störfum sem ritstjóri Fréttablaðsins. maRgiR ÍslendingaR fylgdust gRannt með baRdaga gunnaRs nelson og Rick stoRy fRá bandaRÍkjunum, Í ufc sem fóR fRam Í svÍþjóð. Rick Story kom mörgum að óvörum og hafði betur í bardaganum. gunnaR bRagi sveinsson, utanRÍkisRáðheRRa, tilkynnti að RÍkisstjóRnin hefði ákveðið að lýsa yfiR stuðningi við aðgeRðiR gegn hRyðjuveRkasamtökunum Íslamska RÍkið. skjálftaviRkni vaR áfRam mikil Í noRðvestanveRðum vatnajökli og ekkeRt viRtist dRaga úR gosinu. félagsmenn Í læknafélagi Íslands samþykktu með miklum meiRihluta Í atkvæðagReiðslu að boða til veRkfalls. Verk- fallsaðgerðir áttu að hefjast þann 27. október. Þetta var í fyrsta sinn sem læknar boða til verkfalls á Íslandi frá því að þeir fengu takmarkaðan verkfallsrétt fyrir nær 30 árum. héRaðsdómuR ReykjavÍkuR hafnaði fRávÍsunaRkRöfu gÍsla fReys valdóRssonaR, þáveRandi aðstoðaRmanns innanRÍkisRáðheRRa, Í lekamálinu svokallaða. Íslenska kaRlalandsliðið Í knattspyRnu vann lið letta, 0-3, Í Riga Í undankeppni em. Íslenska liðið hafði þar með unnið fyrstu tvo leiki undankeppninnar og var það í fyrsta sinn sem íslenska landsliðið hefur haft fullt hús stiga eftir tvær fyrstu umferðir undankeppninnar. Rjúpnastofninn hafði tekið við séR eftiR að hafa dalað mikið undanfaRin áR. Náttúrufræðistofnun Íslands taldi rjúpnastofninn þola að veiddar yrði 48 þúsund rjúpur. Umhverfisráðuneytið tilkynnti óbreytt veiðifyrirkomulag þar sem veiðidagarnir yrðu 12 talsins og skiptust á fjórar helgar, frá 24. október – 16. nóvember. biRgitta jónsdóttiR, þingmaðuR pÍRata, benti á að hRyðju- veRkasamtökin sem kenna sig við Íslamska RÍkið, væRu með skRáð lén á Íslandi, WWW.khalifah.is. Málið var litið alvarlegum augum og var síðunni lokað. Íslenska kaRlalandsliðið Í knattspyRnu vann einn fRæknasta siguR Íslands fRá upphafi þegaR liðið lagði holland á heimavelli, 2-0 Í undankeppni em. Eftir leikinn var Ísland efst í riðlinum með fullt hús stiga ásamt Tékklandi. Robin van Persie, v i ð s k i p t i o g e f n a h a g s m á l v i ð s k i p t i o g e f n a h a g s m á l v i ð s k i p t i o g e f n a h a g s m á l a l m e n n t a l m e n n t a l m e n n t a l m e n n t a l m e n n t s t j ó R n m á l s t j ó R n m á l s t j ó R n m á l

x

SSFblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: SSFblaðið
https://timarit.is/publication/980

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.