SSFblaðið - des. 2014, Blaðsíða 39
39
mikið vaR deilt um kaup landhelgisgæslunnaR á 250 mp5
hRÍðskotabyssum. Við fyrstu var talið að lögreglan hefði keypt
byssurnar en síðar kom í ljós að það hefði verið Landhelgisgæslan
sem svo vildi meina að þær hefðu verið gjöf frá norska hernum. Það
gat Dag Aamont, upplýsingafulltrúi norska hersins, ekki staðfest í
samtali við Fréttastofu Ríkisútvarpsins og kannaðist ekki við neinn
gjafagjörning í þessu sambandi.
gReint vaR fRá þvÍ Í moRgunblaðinu að um 2.000 staRfsmenn
viðskiptabanka og spaRisjóða hefðu misst vinnuna fRá hRuni,
þaR af 1.500 konuR. Flestum bankastarfsmönnum, eða 1.200,
var sagt upp á árunum 2008 til 2009 en um 800 hafa misst vin-
nuna til viðbótar síðan þá. Hlutfall kvenna í störfum í bönkum
hefur verið á bilinu 70 til 80% undanfarin 30 ár og það eru fyrst
og fremst konur sem eru að missa störfin núna. „80 til 90% af
þeim sem eru að missa vinnuna í viðskiptabankaþjónustunni eru
konur. Fyrst í hruninu var þetta nokkuð jafnt, karlar og konur
sem misstu vinnuna, en af þeim 800 sem hafa misst vinnuna
frá 2010 til dagsins í dag eru örugglega um 600 konur,» sagði
Friðbert Traustason, framkvæmdastjóri Samtaka starfsmanna
fjármálafyrirtækja í Morgunblaðinu.
áRsfunduR alþýðusambands Íslands vaR haldinn. Á fundinum
var Gylfi Arnbjörnsson endurkjörinn sem forseti sambandsins.
Gylfi hlaut tæp 75 prósent atkvæða og Ragnar Þór Ingólfsson,
stjórnarmaður í VR, rúm 25 prósent.
samantekt lögReglu um mótmælin á austuRvelli áRin 2008-
2011 sem geiR jón þóRisson, þáverandi yfirlögregluþjónn hjá
Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu var afhent fjölmiðlum á grund-
velli úrskurðar úrskurðarnefndar um upplýsingamál. Skýrslan fékk
heilmikla umfjöllun en í henni er m.a. ítarlega fjallað um upplifun
lögreglunnar sem stóð vaktina við Alþingishúsið í mótmælunum
á árunum 2008-2011. Skýrslan fékk m.a. mikla gagnrýni sökum
þess að fjölmörg nöfn voru læsileg þótt búið sé að strika yfir þau,
lögreglan sagði að mistök hefðu átt sér stað.
allRa mesta mengun sem mælst hefuR Í byggð mældist á
hoRnafiRði. Styrkleiki gosmengunarinnar mældist 21.000
míkrógrömmum á rúmmetra sem er rúmlega þrefalt meira en
hæsti toppur hafi mælst þar áður. Fólki var ráðlagt að halda sig
innan dyra og ekki að reyna á sig. Ekkert virtist draga úr gosinu
í Holuhrauni.
fyRsta tÍmabundna veRkfall lækna hófst Í fyRstu boðuðu
veRkfallslotunni. Þessi verkfallslota varði í tvo sólarhringa og
fóru læknar á Kvenna- og barnasviði, Rannsóknarsviði Landspítala
og læknar á heilsugæslustöðvum landsins að ákveðnum marki í
verkfall. Allri bráðaþjónustu var sinnt.
fundað vaR Í kjaRadeilu félags tónlistaRkennaRa og sambands
ÍslenskRa sveitaRfélaga Í húsakynnum RÍkissáttasemjaRa. Sigrún
Geirdal, formaður félags tónlistarkennara, sagðist ekki finna neina
vöfflulykt í fréttum Ríkisútvarpsins aðspurð að því hvernig samn-
ingaviðræðum miðaði. Verkfall tónlistarkennara hafði næstum
varað í viku.
gosmengun hélt áfRam að plaga landsmenn. Í Suðursveit að
Jökulsárlóni fór gosmengun upp í um 3.000 mikrógrömm af
brennisteinsdíoxíði á rúmmetra.
Ísland vaRð Í fyRsta sæti sjötta áRið Í Röð Í áRlegRi úttekt
alþjóða efnahagsRáðsins, WoRld economic foRum á jafnRétti
kaRla og kvenna. Í úttektinni eru efnahagsleg og pólitísk völd,
menntun og heilbrigðismál mæld.
veRkfallslota hjá læknum stóð yfiR sem og veRkfall
tónlistaRskólakennaRa. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, for-
sætisráðherra, sagði í fréttatíma Ríkisútvarpsins að verkfall lækna
væri sérstakt áhyggjuefni fyrir Ísland þar sem eftirspurn eftir
læknum sé mikil annars staðar á Norðurlöndunum þar sem hærri
laun bjóðist. Kristján Þór Júlíusson, heilbrigðisráðherra, sagði ekki
tímabært að setja lög á verkfall lækna.
unicef, baRnahjálp sameinuðu þjóðanna, gaf út skýRsluna
kReppuböRnin, áhRif efnahagskReppunnaR á velfeRð baRna Í
RÍkum löndum. Í skýrslunni kom fram að fátækt barna hefur
aukist mest á Íslandi á árunum 2008 til 2012 af ríkjum OECD.
Ísland er í neðsta sæti af fjörutíu og einu ríki og er næst á eftir
Grikklandi. Mest fátækt er hjá börnum innflytjenda á Íslandi eða
um 38%. Borin voru saman gögn frá 41 ríki innan OECD og
Evrópusambandsins og athugað hvort fátækt barna hafði aukist
eða minnkað frá árinu 2008. Í skýrslunni segir að fátækt barna á
Íslandi hafi aukist um 20% frá árinu 2008 til 2012 eða frá 11,2%
og 31,6%.
hagstofan biRti útReikninga sÍna á veRðbólgu septembeRmánaðaR.
Verðbólga mældist þá 1,9% sem var tíunda mánuðinn í röð þar
sem verðbólgan mældist innan verðbólgumarkmiða Seðlaban-
kans, að húsnæðisverði undanskyldu nam verðbólga síðustu tólf
mánuði 0,5%.
v i ð s k i p t i o g e f n a h a g s m á l
v i ð s k i p t i o g e f n a h a g s m á l
v i ð s k i p t i o g e f n a h a g s m á l
a l m e n n t
a l m e n n t
s t j ó R n m á l
s t j ó R n m á l
s t j ó R n m á l