SSFblaðið - des. 2014, Blaðsíða 20
20
páll matthÍasson vaR skipaðuR Í embætti
foRstjóRa landspÍtala til fimm áRa. Skip-
unin tók gildi 1. apríl. Páll hafði verið settur
forstjóri sjúkrahússins í október 2013, eftir
að Björn Zoëga sagði starfi sínu lausu.
allt stefndi Í veRkfall fRamhaldsskólakennaRa. Nemendur
mættu í skólann vitandi það að fyrirhugað verkfall hæfist daginn
eftir. Lítið þokaðist í samningaátt er að virtist hjá Ríkissáttasemjara.
Íslensku tónlistaRveRðlaunin fóRu fRam og fengu
hljómsveitiRnaR hjaltalÍn og mammút þRenn veRðlaun á
hátÍðinni. Lagið Salt með hljómsveitinni Mammút var valið lag
ársins í flokki popp eða rokktónlistar og var hljómsveitin einnig
verðlaunuð fyrir rokk- og poppplötu ársins, Komdu til mín svarta
systir, sem og fyrir besta plötuumslagið. Platan Days of Grey með
Hjaltalín var valin hljómplata ársins í opnum flokki. Plata ársins
í flokki djass- og blústónlistar var valin Meatball Evening með
KTríó. Plata ársins í samtímatónlist var valin Over Light Earth
eftir Daníel Bjarnason. Grísalappalísa vann verðlaun í nýjum flokki
sem kallast Coca-cola plata ársins, fyrir plötuna Ali. Grísalappalísa
hlaut einnig verðlaun fyrir tónlistarmyndband ársins. Þá var Sig-
ríður Thorlacius valin söngkona ársins og John Grant söngvari
ársins og þungarokkssveitin Skálmöld flytjandi ársins í popp og
rokk-flokki. Að lokum var það hljómsveitin Mezzoforte sem fékk
heiðursverðlaun hátíðarinnar.
félag viðskiptafRæðinga og hagfRæðinga veRðlaunaði
ölgeRðina sem þekkingaRfyRiRtæki áRsins. Össur, Já og LS
Retail voru einnig tilnefnd til verðlaunanna.
menntaskólinn Í hamRahlÍð sigRaði Í spuRningakeppni
fRamhaldskólanna, gettu betuR. Lið MH sigraði Borgar-
holtsskóla í úrslitaviðureign. Þetta var í fyrsta sinn sem lið MH
sigrar spurningakeppnina.
kjaRasamninguR ssf og sa vaR samþykktuR Í atkvæðagReiðslu.
Af 4270 skráðum félagsmönnum var fjöldi svarenda 2840, sem er
svarhlutfall upp á 66,51%. Já, sögðu 1866 eða 65,70% svarenda.
Nei, sögðu 875 eða 30,81% svarenda. 99 skiluðu auðu. Kjar-
asamningurinn byggir á sáttatillögu Ríkissáttasemjara sem lögð var
fyrir stéttarfélög á almennum vinnumarkaði. Meginniðurstöður
kjarasamningsins voru eftirtaldar:
• Kauptaxtar hækkuðu um 2,8% frá 1. feb. 2014 (þó að
lágmarki 8.000 kr. fyrir dagvinnu í fullu starfi).
• Aðrir kjaratengdir liðir hækkuðu um 2,8% frá 1. feb. 2014.
• Sérstök hækkun kauptaxta hjá þeim sem eru með 230.000
kr. á mánuði eða lægri en kauptaxtar þeirra hækkuðu um
1.750. kr.
• Desember- og orlofsuppbætur hækkuðu samtals um 32.300
kr. frá síðast gildandi samningi. Desemberuppbót miðuð við
fullt starf á árinu 2014 var 73.600 kr. Orlofsuppbót fyrir
orlofsárið, miðuð við fullt starf, á árinu 2014 var 39.500 kr.
• Í stað launabreytinga frá 1. janúar 2014 kom sérstök ein-
greiðsla, kr. 14.600 kr. miðað við fullt starf.
• Framlag atvinnurekenda í Menntunarsjóð SSF hækkaði um
0,1%.
seðlabankinn boðaði til blaðamannafundaR og tilkynnti
stýRivaxtaákvöRðun sÍna. Í yfirlýsingu peningastefnunefndar sagði
að stýrivextir Seðlabanka Íslands yrðu óbreyttir. Í yfirlýsingunni
kom fram að verðbólga hefði hjaðnað umfram spá.
aðalfunduR landsbankans fóR fRam. Á fundinum kom fram
að Landsbankinn hefði hagnast um tæpa 29 milljarða króna árið
2013 og sjötíu prósent þess, eða tuttugu milljarðar yrðu greiddir
í arð til eigenda bankans; helmingi meira en í fyrra.
aðalfunduR aRionbanka fóR fRam. Tilkynnt var að bankinn
hefði hagnast um 12,7 milljarða árið 2013. Ákveðið var að greiða
7,8 milljarða í arð.
fyRsta tölublað ssf blaðsins áRið 2014 kom út.
gunnaR bRagi sveinsson, utanRÍkisRáðheRRa, hélt til úkRaÍnu
og hitti þaRlenda Ráðamenn og kynnti séR stöðu mála Í landinu
en mikil átök áttu séR stað á kRÍmskaga og sveitiR hliðhollaR
Rússum höfðu tekið yfiR stjóRn á stóRu landsvæði.
bjaRni benediktsson, foRmaðuR sjálfstæðisflokksins, fundaði
með david cameRon, foRsætisRáðheRRa bRetlands og foRmanni
bReska Íhaldsflokksins, um efnahagsmál og samvinnu landanna
Í bRussel en bjaRni vaR þaR stadduR á Ráðstefnu leiðtoga
Íhaldsflokka.
m e n n i n g
s t j ó R n m á l
v i ð s k i p t i o g e f n a h a g s m á l
a l m e n n t
a l m e n n t
b a n k a m á l