SSFblaðið - des. 2014, Blaðsíða 30

SSFblaðið - des. 2014, Blaðsíða 30
30 samRuna fyRiRtækjanna. Ritað var undir viljayfirlýsingu fyrirtæk- janna og tilkynnt að samkomulag hefði náðst. Samruninn var með þeim fyrirvara að Samkeppniseftirlitið myndi samþykkja samrunann. jafnRéttisstofa tók saman kynjadReifingu Í sveitaRstjóRnum eftiR nýafstaðnaR kosningaR. Samkvæmt tölum Jafnréttisstofu voru konur 44% kjörinna sveitarstjórnarfulltrúa um landið og hafa aldrei verið fleiri. Það er um 4% meira en í kosningunum árið 2010. laun höfðu hækkað um 5,4% á undanföRnu áRi samkvæmt launavÍsitölu hagstofunnaR. Kaupmáttur launa hafði aukist um 3,1% á sama tíma. Launavísitala hækkaði um 0,5% milli maí og júní. gylfi þóR siguRðsson, landsliðsmaðuR Í knattspyRnu, gekk á ný til liðs við úRvalsdeildaRlið sWansea. Kaupverðið fráTot- tenham var sagt um tíu milljónir punda. vinnumaRkaðsRannsókn hagstofu Íslands leiddi Í ljós að atvinnuleysi á landinu öllu hafði veRið 4,6% Í júnÍ sem vaR 1,8% minna en Í júnÍ áRið 2013. álagningaRseðlaR voRu geRðiR aðgengilegiR á vef RÍkisskattsstjóRa. Samkvæmt frétt á vef Ríkisskattsstjóra voru 268.452 framteljendur á skattgrunnskrá, 4.260 fleiri en árið áður. 12.478 skiluðu ekki skattframtali og sættu því áætlun opinberra gjalda. Það eru 4,65% heildarfjöldans og nokkuð færri en undan- farin ár. bRæðsluhátÍðin á boRgaRfiRði eystRa vaR sett. Áætlað var að um 3000 manns hafi mætt á tónlistarhátíðina sem haldin var í tíunda sinn. Veðrið lék við tónlistargesti fyrstu daga hátíðarinnar. tekjublað fRjálsRaR veRslunaR kom út. Í blaðinu kom fram að laun millistjórnenda í einkafyrirtækjum hafi hækkað um allt að 40% milli ára. Vilhjálmur Birgisson, formaður Verkalýðsfélags Akranes, sagði málið „viðbjóðslegt óréttlæti“. Elín Björg Jónsdót- tir, formaður BSRB, sagði að launahækkanirnar hefðu komið sér verulega á óvart og að þær muni ekki liðka fyrir lágstemmdum kröfum félagsmanna BSRB í kjarasamningsviðræðum árið 2015. fullyRt vaR Í blaði dv að RáðheRRa hefði Reynt að hafa áhRif á Rannsókn hins svokallaða „lekamáls“. Fullyrt var í blaðinu að hún hafi beitt Stefán Eiríksson, þáverandi lögreglustjóra í Reykjavík, þrýstingi sem hafi leitt til þess að hann ætli að hætta. Ráðherra segir fullyrðingarnar rangar og Stefán sagðist sjálfur í kjölfarið hafa hætt vegna þess að hann hafi fengið nýtt starf hjá Velferðarsviði Reykjavíkurborgar. Í fRétt hagstofunnaR kom fRam að halli á vöRuskiptum við útlönd hafi veRið 2,4 milljaRðaR á fyRRi helmingi áRsins 2014. Hann var því 27,5 milljörðum króna lakari en á sama tíma í fyrra. Vöruskiptahallinn í júní var 7,7 milljarðar, en var hagstæður um 1,1 milljarð í júní í fyrra. tRyggvi gunnaRsson, umboðsmaðuR alþingis, ákvað að afla upplýsinga hjá hönnu biRnu kRistjánsdóttuR, innanRÍkisRáðheRRa, vaRðandi „lekamálið“ eftir að ásakanir á hendur henni hefðu birts í DV um að hún hefði reynt að hafa áhrif á rannsókn málsins. Ákvörðun umboðsmanns Alþingis kom í kjölfar þess að hann ræddi við Stefán Eirkíksson, þáverandi lögre- glustjóra í Reykjavík, og Sigríði Friðjónsdóttur, ríkissaksóknara. Í tilkynningu fRá icelandaiR gRoup kom fRam að tekjutap og beinn kostnaðuR félagsins vegna kjaRadeilna hafði veRið um 400 milljóniR kRóna. Flugvirkjar, flugmenn og flugfreyjur höfðu öll átt í kjaradeilum við félagið á árinu, sem hafði töluverða röskun á flugi í för með sér. utanRÍkisRáðuneytið tilkynnti að RáðheRRa hefði skipað geiR h. haaRde, fyRRveRandi foRsætisRáðheRRa, Í embætti sendiheRRa. Þá var Árni Þór Sigurðsson, alþingismaður og fyrrverandi formaður utan- ríkismálanefndar einnig skipaður sendiherra. Skipunin tekur gildi frá og með fyrsta janúar á næsta ári. Ekki var greint frá því í upphafi hvar þeir ættu að gegna sendiherrastöðu. hanna biRna kRistjánsdóttiR, innanRÍkisRáðheRRa, skipaði þóRólf áRnason, foRstjóRa samgöngustofu. Starfið var auglýst í byrjun júní og bárust 24 umsóknir um starfið. Þórólfur hafði fyrir starfað sem sjálfstætt starfandi ráðgjafi en var áður m.a. borgarstjóri í Reykjavík, forstjóri Skýrr, Icelandic Group og Tals. m e n n i n g s t j ó R n m á l s t j ó R n m á l s t j ó R n m á l s t j ó R n m á l v i ð s k i p t i o g e f n a h a g s m á l v i ð s k i p t i o g e f n a h a g s m á l v i ð s k i p t i o g e f n a h a g s m á l v i ð s k i p t i o g e f n a h a g s m á l v i ð s k i p t i o g e f n a h a g s m á l a l m e n n t

x

SSFblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: SSFblaðið
https://timarit.is/publication/980

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.