SSFblaðið - des. 2014, Blaðsíða 42

SSFblaðið - des. 2014, Blaðsíða 42
42 gÍsli fReyR valdóRsson vaR dæmduR til átta mánaða skiloRðsbundinnaR fangelsisRefsingaR fyRiR að leka minnisblaði um hælisleitandann tony omos Í héRaðsdómi ReykjavÍkuR. Gísli Freyr sagði í dómsal eftir að dómur var kveðinn upp að hann myndi una dóminum. foRmanna- og tRúnaðaRmannafunduR ssf vaR á selfossi. Um 80 félagar úr stjórnum og trúnaðarmannahópi aðildarfélaga SSF komu saman. Á fundinum var lögð áhersla á stöðu kjarasamningsmála ásamt kröfugerð og launaþróun félagsmanna. Undirbúningur fyrir komandi kjaraviðræður hafði staðið yfir innan vébanda Samtaka starfsmanna fjármálafyrirtækja. Farið höfðu fram trúnaðarman- nafundir hjá aðildarfélögum þar sem kallað var eftir umræðum um komandi kjarasamningsviðræður og kröfugerð SSF. menntamálaRáðheRRa skipaði aRa matthÍasson Í embætti þjóðleikhússtjóRa til næstu fimm áRa, fRá og með 1. janúaR 2015. Hann tekur við af Tinnu Gunnlaugsdóttur sem hefur verið þjóðleikhússtjóri frá árinu 2005. veRkfall lækna á heilsugæslum höfuðboRgaRsvæðisins, á heilbRigðisstofnunum á landsbyggðinni og á kvenna- og baRnasviði og RannsóknaRsviði landspÍtala hófst. Ekkert miðaði áfram á samningafundum deiluaðila. Gert var ráð fyrir að þessi verkfallslota stæði yfir í tvo sólarhringa. SkuRðlæknaR lögðu niðuR stöRf og bættust Í hóp þeiRRa lækna sem voRu Í miðRi veRkfallslotu. Einungis var bráðatilvikum sinnt hjá skurðlæknum en verkfall þeirra stóð yfir í þrjá daga. 1,7% Íslendinga sem eRu Í vinnu voRu fjaRveRandi vegna veikinda Í meiRa en eina viku á sÍðasta áRi, þetta kemuR fRam Í noRRænum hagtölum og fRéttastofa RÍkisútvaRpsins gReindi fRá. Hlutfal- lið á Íslandi er það lægsta af Norðurlöndunum. Fjarvistir vegna veikinda voru mestar í Noregi, 3,5%, þar á eftir koma Finnar með 2,6%, og Svíar með 2,3%. Fjarvistir kvenna vegna veikinda eru almennt meiri er karla. 1,7% kvenna í Danmörku og á Íslandi voru fjarverandi í meira en eina viku í fyrra en 4,3% norskra kvenna. Íslandsbanki tilkynnti að bankinn hefði hagnast um 18,2 milljaRða kRóna eftiR skatta á fyRstu 9 mánuðum áRsins 2014. Það er 2,8 milljörðum meiri hagnaður en en á sama tímabili árið 2013. hagstofan biRti mánaðaRlegaR vÍsitöluR kaupmáttaR launa. Í tölunum nú mátti sjá að kaupmáttur launa hefði hækkað um 0,5% frá september til október árið 2014. Síðustu tólf mánuði hafði vísitala kaupmáttar launa hækkað um 4,6%. bjöRn ingi hRafnsson keypti 70% hlut Í fjölmiðlafyRiRtækinu dv. Í tilkynningu frá Birni segir að Pressan, móðurfélag Vefpres- sunnar og vefmiðlanna Pressan.is, Eyjan.is og Bleikt.is, hafi náð samkomulagi við eigendur meirihluta hlutafjár í útgáfufélagi DV. Kaupin voru tilkynnt Samkeppniseftirlitinu og beðið var endan- legrar staðfestingar þaðan. hanna biRna kRistjánsdóttiR tilkynnti afsögn sÍna úR embætti innanRÍkisRáðheRRa. „Eftir umtalsverða umhugsun hef ég nú tilkynnt formanni Sjálfstæðisflokksins að ég vilji hætta sem ráðherra og sækist ekki lengur eftir að gegna embætti innanríkisráðherra,“ sagði Hanna Birna Kristjánsdóttir, þáverandi innanríkisráðherra í yfirlýsingu, um starfslok sín sem ráðherra. Hanna Birna sagði í yfirlýsingunni að ár væri nú liðið frá upphafi lekamálsins og „með þær upplýsingar um atburðarrásina, sem nú liggja á borðinu, er ljóst að aðstoðarmaður minn braut af sér án minnar vitneskju. Hann starfaði í pólitísku umboði mínu og ég bar traust til hans enda hef ég alltaf haft það að leiðarljósi að treysta fólki. Ég hafði ekki forsendur til að rengja ítrekaðar yfirlýsingar hans um sakleysi í nánast heilt ár og viðbrögð mín voru í samræmi við það. Játning hans vegna málsins var mér því mikið persónulegt áfall og ljóst er að viðbrögð mín á ýmsum stigum málsins hefðu verið allt önnur ef ég hefði vitað hvernig málinu var háttað“. Með þessu varð Hanna Birna fjórði ráðherrann á lýðveldistímanum sem biðst lausnar í kjölfar mikillar gagnrýni. Mikil spenna ríkti um það í kjölfarið hver það yrði úr hópi þingflokks Sjálfstæðismanna sem tæki við. Flestir virtust gera ráð fyrir því að það yrði Einar K. Guðfinnsson, Ragnheiður Ríkharðsdóttir eða Brynjar Nielson. ákveðið vaR á fundi fRamkvæmdastjóRnaR alþjóða handknattleikssambandsins að Íslenska liðið fengi keppnisRétt á heimsmeistaRamótinu áRið 2015 sem haldið veRðuR Í kataR. Ísland tekur sæti Sameinuðu arabísku furstadæmanna og Sádi- Arabía fær sæti Barein á mótinu. Bæði Barein og Sameinuðu arabísku furstudæmin höfðu afsalað sætum sínum á HM vegna deilna ríkjanna við Katar. Í tilkynningu landhelsgisgæslunnaR kom fRam að landhelgisgæslan og noRski heRinn hefðu komist að samkomulagi um að þeim 250 hRÍðskotabyssum sem höfðu vakið talsveRða gagnRýni héR á landi yRði skilað. Í yfirlýsingu Landhelgisgæslunnar sagði að stofnunin hefði allan tíman gert ráð b a n k a m á l m e n n i n g s t j ó R n m á l s t j ó R n m á l s t j ó R n m á l v i ð s k i p t i o g e f n a h a g s m á l v i ð s k i p t i o g e f n a h a g s m á l a l m e n n t

x

SSFblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: SSFblaðið
https://timarit.is/publication/980

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.