SSFblaðið - des. 2014, Blaðsíða 46

SSFblaðið - des. 2014, Blaðsíða 46
46 nar. Áfram er útlit fyrir góðan vöxt innlendrar eftirspurnar og landsframleiðslu á næstu misserum. Verðbólga minnkaði í 1% í nóvember og lítils háttar verðhjöðnun mælist sé horft fram hjá áhrifum húsnæðiskostnaðar. Lítil alþjóðleg verðbólga og stöðugt gengi krónu halda aftur af verðbólgu þrátt fyrir töluverðar lau- nahækkanir. Því eru horfur á minni verðbólgu á næstunni en við síðustu vaxtaákvörðun í nóvember. Verðbólga verður því ef að líkum lætur nokkuð undir markmiði a.m.k. fram yfir mitt næsta ár. Verðbólguvæntingar hafa einnig lækkað á undanförnum mánuðum og eru nú á helstu mælikvarða við verðbólgumarkmiðið“ sagði í tilkynningu nefndarinnar. Már Guðmundsson, seðlabankastjóri, stóð við fyrirheit sín og tilkynnti vaxtaákvörðun bankans í jólapeysu til að vekja athygli á átaka Barnaheilla, Jólapeysan 2014, en átakið snéri að því að safna styrkjum fyrir baráttuna gegn einelti. Már safnaði 605.500 kr. Rauði kRossinn á Íslandi vaR stofnaðuR á þessum degi áRið 1924. Hjálparsamtökin eru því orðin 90 ára. hagstofan biRti upplýsingaR um launavÍsitölu. Í fréttatilkyn- ningu Hagstofunnar segir að regluleg laun hafi verið að meðaltali 1,4% hærri á þriðja ársfjórðungi 2014 en á ársfjórðungnum þar á undan. Frá árinu 2013 hækkuðu „laun um 6,3% að meðaltali, hækkunin var 5,9% á almennum vinnumarkaði og 7,6% hjá opinberum starfsmönnum. Þar af hækkuðu laun ríkisstarfsmanna um 6,8% en 8,4% hjá starfsmönnum sveitarfélaga.“ öldungadeild bandaRÍkjaþings samþykkti skipun RobeRts c. baRbeR sem sendiheRRa bandaRÍkjanna á Íslandi. Barack Obama hafði tilnefnt Barber í október árið 2013. olÍuleitaRfyRiRtækið eykon sagðist ætla að halda áfRam olÍuleit þRátt fyRiR að fyRiRtækin faRoe petRoleum, noRska RÍkisolÍufyRiRtækið petoRo iceland og Íslenskt kolvetni sem mynduðu fyRsta hópinn sem fékk séRleyfi fRá oRkustofnun áRið 2013 hefðu ákveðið að skila inn leyfinu. Fulltrúi Eykon sagði í fréttatíma RÚV að rannsóknum yrði haldið áfram og að útlitið væri gott. Hann sagði ákvörðun hópsins um að skila inn leyfinu hafi engin áhrif á áform Eykon. læknadeilan eR enn Í hnút og boðaðaR hafa veRið fleiRi veRkfallslotuR eftiR áRamót. gosið Í holuhRauni helduR áfRam ásamt skjálftaviRkni Í báRðaRbungu. Reglulega berast áfram fréttir af gosmengun í byggð. RitstjóRn samtaka staRfsmanna fjáRmálafyRiRtækja lýkuR við geRð hátÍðablaðs ssf. Stjórnin vill þakka öllum þeim sem hafa komið að útgáfumálum SSF á árinu fyrir samstarfið. skRifstofa ssf lokaR yfiR hátÍðiRnaR. Skrifstofan opnar aftur 2. jan. Stjórn og starfsfólk SSF óskar félagsmönnum og landsmönnum öllum gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári. Með þökkum fyrir samstarfið á árinu sem er að líða. Hátíðarkveðja Stjórn og starfsfólk SSF s t j ó R n m á l v i ð s k i p t i o g e f n a h a g s m á l a l m e n n t a l m e n n t v i ð s k i p t i o g e f n a h a g s m á l

x

SSFblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: SSFblaðið
https://timarit.is/publication/980

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.