SSFblaðið - des. 2014, Blaðsíða 14
14
f R é t t a a n n á l l s s f
Í fréttaannál SSF er farið yfir það helsta sem gerðist á árinu hjá SSF. Þá er stiklað á stóru á sviði bankamála og viðskipta – og
efnahagsmála. Jafnframt er leitast við að birta helstu tíðindi á sviði menningarmála og einnig annað markvert sem gerðist á
sviði þjóðmálanna.
Annállinn inniheldur ekki tæmandi lista yfir fréttnæmustu viðburði ársins en gefur ágætis nasasjón af því helsta sem gerðist
innanlands á árinu sem er að líða. Við vinnslu og heimildaöflun annálsins var notast við vef Fjölmiðlavaktar Creditinfo, fréttavef
RÚV, Morgunblaðsins og Viðskiptablaðsins.
janúaR
sigmunduR davÍð gunnlaugsson, foRsætisRáðheRRa, hafði
lokið við sitt fyRsta áRamótaávaRp sem foRstæðisRáðheRRa. Í
ávarpinu rifjaði hann upp ýmis afrek sem hefðu áunnist á því ári
og voru þar bæði íþróttaafrek og sigur Íslands í Icesave deilunni
fyrirferðamikil. Hann sagði að Íslendingar ættu þakkir skildar fyrir
ósérhlífni á erfiðum tímum og boðaði sóknaráætlun fyrir listir,
menningu og annað nýsköpunarstarf.
ólafuR RagnaR gRÍmsson, foRseti Íslands, hélt nýáRsáRvaRp og
fóR þaR yfiR náttúRuvá og bReytt loftslag, mikilvægi samhjálpaR
og samstöðu á hættu- og/eða kRepputÍmum. Þá gagnrýndi hann
það öngstreiti sem umræðan um nýja stjórnarskrá væri komin í
og sagði það miður að í stað samstöðu um nýja stjórnarskrá „geisa
djúpstæðar deilur og virtir fræðimenn við háskóla landsins hafa
áréttað að margt sé óskýrt og flókið í tillögunum“.
fyRsta baRn áRsins, stúlka, fæddist Í gaRðabænum klukkan
hálf sex að moRgni.
ellefu ÍslendingaR voRu sæmdiR Íslensku fálkaoRðunni við
athöfn á bessastöðum. Eftirfarandi einstaklingar voru sæmdir
fálkaorðunni; Alfreð Gíslason, handknattleiksþjálfari, fyrir framlag
til íþrótta, Ingileif Jónsdóttir, prófessor, fyrir kennslu og rannsóknir
á sviði ónæmisfræða, Ingvar E. Sigurðsson, leikari, fyrir framlag til
íslenskrar leiklistar, Kolbrún Björgólfsdóttir, myndlistarmaður, fyrir
framlag til íslenskrar myndlistar, Magnús Eiríksson, tónlistarmaður,
fyrir framlag til íslenskrar tónlistar, Ólafur B. Thors, fyrrverandi
framkvæmdastjóri, fyrir framlag til menningar og þjóðlífs, Smári
Geirsson, framhaldsskólakennari og rithöfundur, fyrir framlag til
sögu og framfara á Austurlandi, Soffía Vagnsdóttir, skólastjóri, fyrir
framlag til félagsmála og menningar í heimabyggð, Stefán Eiríksson,
lögreglustjóri, fyrir frumkvæði og forystu á sviði löggæslu, Svanf-
ríður Jónasdóttir, bæjarstjóri, fyrir störf að sveitarstjórnarmálum,
og Unnur Kolbrún Karlsdóttir, formaður líknar- og vinafélagsins
Bergmáls, fyrir framlag til mannúðarmála.
bandalag staRfsmanna RÍkis og bæja gáfu út að bandalagið
kRefðist RÍflegRa launahækkana Í komandi kjaRaviðRæðum
en flestiR kjaRasamningaR bhm og bsRb Runnu út um
mánaðaRmótin janúaR – febRúaR. BSRB benti á að laun á almen-
num markaði hafi hækkað mun meira en laun hjá hinu opinbera.
icelandaiR tilkynnti að faRþegum hefði fjölgað um 12% milli
áRa og hefðu veRið Rúmlega 2.257.000 áRið 2013 og höfðu
þeiR aldRei veRið fleiRi fRam til þessa.
s t j ó R n m á l
v i ð s k i p t i o g e f n a h a g s m á l
a l m e n n t