SSFblaðið - des. 2014, Blaðsíða 36

SSFblaðið - des. 2014, Blaðsíða 36
36 félagasamtök sem hafa starfað síðan árið 1995 að umhverfisvernd í hafinu. miðstjóRn alþýðusambandsins gagnRýndi fjáRlagafRumvaRp RÍkisstjóRnaRinnaR og sagði RÍkisstjóRnina Ráðist gegn hagsmunum launafólks. Í ályktun miðstjórnar var lýst miklum vonbrigðum með að „ríkisstjórnin velji með fjárlagafrumvarpi sínu fyrir næsta ár að ráðast enn og aftur gegn hagsmunum launafólks í stað þess að hefja uppbyggingu velferðarkerfisins. Því sé haldið að launafólki að nauðsynlegt sé að mæta minni tekjum ríkissjóðs með aðhaldsaðgerðum og margháttuðum skerðingum gagnvart almenningi. Alþýðusambandið hafni alfarið þeim málflutningi. Skattar á eignafólk og hátekjumenn hafa verið lækkaðir svo um munar. Þá hafi skattar á fyrirtæki sem skila methagnaði verið læk- kaðir umtalsvert þannig að samtals hafi ríkisstjórnin skert tekjur sínar um tugi milljarða“ sagði í ályktun miðstjórnar ASÍ. flutningaskipið gReen fReeZeR stRandaði á skeRi Í fáskRúðsfiRði. bjöRgunaRsveitiR á austuRlandi voRu allaR kallaðaR út, þaR með talið bjöRgunaRbátuRinn geisli og aðRiR bátaR allt fRá vopnafiRði til hoRnafjaRðaR. Óttast var um mengunarslys en svo varð ekki og allt fór vel á endanum. Illa gekk þó að ná skipinu á flot þar sem m.a. dráttartaugin slitnaði. Ákveðið var að bíða eftir olíuskipi sem gæti dælt olíu frá skipinu svo að það myndi léttast til auðvelda í framhaldinu að draga það af strandstað. viðskiptaRáð Íslands og samtök atvinnulÍfsins stóðu fyRiR fundi um fRamvindu og hoRfuR Í RÍkisRekstRi og spuRðu Í ljósi fjáRlagafRumvaRpsins hvoRt aðhaldi Í RÍkisRekstRi væRi lokið. Á fundinum kom fram skýr krafa um að bregðast yrði við skuldastöðu ríkissjóðs m.a. með sölu ríkiseigna t.d. allt að 30% hlut í Landsvirkjun. landhelgisgæslan losaði loks flutningaskipið gReen fReeZeR af stRandstað, en skipið hafði stRandað Í sunnanveRðum fáskRúðsfiRði. Búið var að dæla olíu úr skipinu til að létta það. Skipið var dregið til hafnar á Fáskrúðsfirði þar sem hafist var handa við losun áður en endanlega yrði hægt að fara yfir skem- mdir skipsins. ekkeRt lát vaR á gosinu Í holuhRauni. hRaunið sem komið hafði upp úR holuhRauni vaR nú oRðið 37 feRkÍlómetRaR. kaupmáttuR launa hækkaði um 0,3% Í ágúst fRá þvÍ Í júlÍ áRið 2014 skv.tölum hagstofunnaR. Kaupmáttur launa hafði hækkað um 3,9% á síðustu tólf mánuðum. Launavísitala hækkaði um 0,6% í ágúst frá því í júlí árið 2014 og hafði hækkað um 6,3% á síðustu tólf mánuðum. samkeppniseftiRlitið ákvað að sekta mjólkuRsamsöluna um 370 milljóniR kRóna fyRiR misnotkun á maRkaðsRáðandi stöðu. Niðurstaða eftirlitsins var að MS hefði selt smærri keppinautum sínum mjólk á hærra verði, en fyrirtækjum tengdum MS. Það hafi veikt keppinauta. MS tilkynnti strax að fyrirtækið hygðist áfrýja ákvörðuninni. staRfsmannafélag kópavogsbæjaR samþykkti veRkfallsboðun með miklum meiRihluta gReiddRa atkvæða félagsmanna. Félagið tilkynnti að yrði ekki búið að samþykkja samninga fyrir dagana 14., 15., 21. og 22. október myndu félagsmenn leggja niður störf. Félagið tilkynnti að ótímabundið verkfall myndi hefjast 1. nóvember. Haft var eftir Jófríði Hönnu Sigfúsdóttur, formanni starfsmannafélagsins, í fréttum Ríkisútvarpsins að verkfall kæmi til með að lama starfsemi grunnskóla, leikskóla, sundlauga, íþrót- tamannvirkja og skrifstofa Kópavogsbæjar. mikið hafði veRið deilt á ákvöRðun stjóRnaRfoRmanns bankaRáðs seðlabankans fyRiR að gReiða málskostnað más guðmundssonaR, seðlabankastjóRa. Már hafði stefnt Seðla- bankanum fyrir dóm árið 2010 vegna þess að hann taldi laun sín vera lægri en þau ættu að vera, eftir úrskurð kjararáðs. Már tapaði dómsmálinu í Hæstarétti en bankinn greiddi málskostnað hans. Bankaráð ákvað engu að síður á fundi sínum að málskostnaðurinn yrði ekki greiddur af bankanum. Minnihlutinn í bankaráði Seðla- bankans taldi sanngirnisrök vera fyrir því að greiða málskostnaðinn upp á 7,4 milljónir króna. RÍkisútvaRpið gReindi fRá Rannsókn hagstofunnaR um kjöRsókn sÍðustu sveitaRstjóRnaRkosninga. Í rannsókninni kom fram að innan við helmingur kjósenda á aldrinum 20 til 29 ára hefðu nýtt sér kosningarétt sinn í sveitarstjórnarkosningum. Rétt tæplega helmingur fólks á aldrinum 25 til 29 ára greiddi atkvæði og aðeins 45,4 prósent 20 til 24 ára. Kjörsókn var mest meðal fólks á aldrinu 60 til 79 ára, um og yfir 80 prósent. Kjörsókn í heildina var 66,5 prósent og er sú lakasta í lýðveldissögunni. fRam kom Í tilkynningu fRá RannsóknaRsetRi veRslunaRinnaR að feRðamenn hefðu gReitt 17 milljaRða fyRiR vöRuR og þjónustu með gReiðslukoRtum sÍnum Í ágúst 2014. Það er 2,7 milljörðum krónum meira en í sama mánuði árið 2013. Í tilkynningu Rannsók- narsetursins sagði að á síðustu tólf mánuðum hefði erlend greiðs- lukortavelta aukist um rúm 19 prósent. b a n k a m á l s t j ó R n m á l v i ð s k i p t i o g e f n a h a g s m á l v i ð s k i p t i o g e f n a h a g s m á l v i ð s k i p t i o g e f n a h a g s m á l v i ð s k i p t i o g e f n a h a g s m á l a l m e n n t a l m e n n t

x

SSFblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: SSFblaðið
https://timarit.is/publication/980

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.