SSFblaðið - des. 2014, Blaðsíða 25

SSFblaðið - des. 2014, Blaðsíða 25
25 sveinbjöRg biRna sveinbjöRnsdóttiR, sem hafði nýtekið við oddvitasæti fRamsóknaR og flugvallaRvina eftiR að óskaR beRgsson sagði sig fRá boðaðRi enduRkomu sinni Í stjóRnmálin, olli talsverðum usla í stjórnmálunum með því að lýsa yfir þeirri skoðun sinni að draga ætti til baka úthlutun lóðar til félags múslima í Reykjavík. Rétt um vika var til kosninga. foRsætisRáðheRRaR noRðuRlandanna komu saman til áRlegs voRfundaR Í mývatnssveit. Úkraínudeilan var fyrirferðamikið umræðuefni á fundinum sem og málefni norðurslóða, Evrópuþing- skosningarnar og aukið samstarf þjóðanna. lögReglan á höfuðboRgaRsvæðinu tilkynnti að Rannsókn á lekamálinu svokallaða væRi á lokastigi. Þegar hafði verið greint frá því að rannsókn hefði leitt í ljós að minnisblaðið hafi orðið til í ráðuneytinu og farið þaðan til Morgunblaðsins. miklaR uppsagniR áttu séR stað Í flestum viðskiptabönkum landsins. Bæði MP banki og Íslandsbanki sögðu upp starfsfólki í mánuðinum i hagræðingarskyni í kjölfar þess að MP banki seldi eignaleigusvið sitt og Íslandsbanki sameinaði tvö útibú í eitt. félagsmenn Í félagi gRunnskólakennaRa samþykktu kjaRasamning Í atkvæðagReiðslu með afgeRandi hætti. hagfRæðideild landsbankans spáði 5,5 pRósenta hagvexti áRið 2015. Hagfræðideildin spáði aukinni einkaneyslu á næstu árum um 3,7%. gengið vaR til kosninga Í sveitaRstjóRnum landsins. Kjörsókn var áberandi slæm, um 66% og hafði ekki verið minni í um 60 ár. júnÍ úRslit sveitaRstjóRnaRkosninganna lágu fyRiR og ófoRmlegaR meiRihlutaviðRæðuR voRu þegaR hafnaR Í sumum sveitaRfélögum. Kosningavefur Ríkisútvarpsins hélt vel utan um kosningarnar um land allt og tók saman tölfræðiupplýsingar á sérstökum kosningavef útvarpsins. Samkvæmt samantekt RÚV urður þónokkrar breytingar hjá stærstu flokkum landsins á landsvísu. Framsóknarflokkurinn bætti mestu við sig eða alls fjórum á landsvísu, flokkurinn fór úr því að vera með 45 menn í 49. Sjálfstæðisflokkurinn bætti við sig þremur fulltrúum á landsvísu og fór úr 117 í 120. Samfylkingin tapaði sjö sveitarstjórnarfulltrúum frá því í kosningunum 2010, fór úr 42 niður í 35 á landsvísu og Vinstri hreyfingin grænt framboð missti fimm kjörna fulltrúa á milli kosninga, fór úr fjórtán niður í níu. Þá bauð Besti flokkurinn sig ekki fram í kosningunum en frambjóðendur flokksins fóru fram í Reykjavík undir merkjum Bjartrar framtíðar. Þau náðu tveimur mönnum inn í borginni og Píratar náðu þar einum manni inn. Á landsvísu fékk Björt framtíð ellefu menn kjörna. bÍlgReinasambandið gReindi fRá þvÍ að sala á nýjum bÍlum hafi veRið Rúmlega 51% meiRi Í maÍ 2014 en Í sama mánuði áRið 2013. Mikil aukning hefur verið í sölu nýrra bíla á árinu. tekin vaR fyRsta skóflustungan að noRðuRljósaRannsóknastöð á káRhóli Í Reykjadal. Fulltrúar utanríkisráðuneytisins og deil- darstjóri evrópumálefna hjá kínverska utanríkisráðuneytinu tóku skóflustunguna. Samkvæmt tilkynningu utanríkisráðuneytisins er stöðin liður í samkomulagi milli RANNÍS og Heimskautastofnu- nar Kína um stofnun sameiginlegrar miðstöðvar til norðurljósa- rannsókna. landsbankinn tilkynnti um sölu á um 10% hlut Í fRamtakssjóðnum og öllum eignaRhluta sÍnum Í fjáRfestingaRsjóðnum icelandic enteRpRise invest (iei) en bankinn átti 27,6% hlut Í sjóðnum. Kaupverðið var 7 milljarðar króna og kaupendur voru hluthafar Framtakssjóðsins og IEI. Rætt vaR við håkan fuRe, Ráðgjafa hjá dnb (eitt stæRsta fjáRmálafyRiRtæki noRegs), Í speglinum eftiR að hann flutti eRindi á fundi noRsk-Íslenska viðskiptaRáðsins. Í viðtali Spegilsins sagði hann að íslensku bankarnir stæðu sig vel í alþjóðlegum samanburði hvað varðar fjármögnun, framleiðni og styrk lánasafna. Bankarnir veki nú athygli erlendra fjárfesta. Í viðtali Spegilsins sagði Håkan Fure að staða íslensku bankanna væri mun betri en gert hafi verið ráð fyrir og efnahagsástand landsins hjálpi þar til og nefndi sem dæmi að atvinnuleysi hefði minnkað, landsframleiðsla aukist og fjárhagsstaða bankanna batnað. Gjaldeyrishöftin væru þó þröskuldur sem stæði frekari framþróun fyrir þrifum. flugviRkjaR icelandaiR stóðu Í kjaRabaRáttu þaR sem haRt vaR deilt Í fjölmiðlum. Fulltrúar flugvirkja sökuðu Samtök atvin- nulífsins um að stunda leðjuslag með því að fara með ósannindi um lau- nakröfur sínar í fjölmiðla. Samningaviðræður gengu hægt og svo virtist sem lítill trúnaður væri á milli aðila. b a n k a m á l b a n k a m á l s t j ó R n m á l s t j ó R n m á l s t j ó R n m á l v i ð s k i p t i o g e f n a h a g s m á l v i ð s k i p t i o g e f n a h a g s m á l v i ð s k i p t i o g e f n a h a g s m á l

x

SSFblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: SSFblaðið
https://timarit.is/publication/980

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.