SSFblaðið - des. 2014, Blaðsíða 43

SSFblaðið - des. 2014, Blaðsíða 43
43 fyrir því að umrædd vopn væru ekki háð endurgreiðslu eins og fyrirkomulag vopnakaupa milli þjóðanna og fleiri nágrannaþjóða höfðu verið á „undanförnum árum og áratugum. Gert hafi verið ráð fyrir að það sama ætti við í þessu tilfelli“. Norðmenn höfðu ítrekað í fjölmiðlum hér á landi að vopnin væru ekki gjöf og að Landhelgisgæslunni myndi berast reikningur fyrir kaupunum. efta- dómstóllinn komst að þeiRRi niðuRstöðu að ekki mætti miða við 0% veRðbólgu við útReikning á heildaRlántökukostnaði, ef veRðbólgustig eR annað. Héraðs- dómur Reykjavíkur hafði óskað eftir ráðgefandi áliti dómstólsins í máli Sævars Jóns Gunnarssonar gegn Landsbankanum. Málið var höfðað vegna verðtryggðs neytendaláns sem Sævar tók haustið 2008. Á áliti EFTA er það sett í hendur íslenskra dómstóla að skera úr um hversu víðtækar afleiðingarnar verða. langRi samningalotu lauk hjá RÍkissáttasemjaRa Í kjaRadeilu félag tónlistaRkennaRa og sambands ÍslenskRa sveitaRfélaga. Fundinum lauk með undirritun samnings sem þýddi að þriggja vikna verkfalli tónlistarkennara væri lokið. Næstu skref voru að kynna félagsmönnum samninginn og fara með hann í atkvæða- greiðslu. magnús tumi guðmundsson, pRófessoRs Í jaRðeðlisfRæði við háskóla Íslands, sagði Í moRgunstund RásaR 1 og 2 að engin meRki væRu um að eldgosinu Í holuhRauni væRi að ljúka. Hann sagði möguleika á því að sprungan færi sig upp í jökulinn. „Með gosi undir jökli, hætti hins vegar að berast gas úr gosinu, því ísinn myndi þvo það úr“ sagði Magnús. veRkfallsaðgeRðiR lækna héldu áfRam en nú voRu það læknaR á aðgeRðasviði og flæðissviði landspÍtala sem lögðu niðuR stöRf. Undir flæðisvið falla m.a. bráðamóttaka, endurhæfingardeildir og öldrunardeildir en undir aðgerðasvið falla meðal annars gjörgæsla, skurðstofur, speglanir og svæfing. Áhrifin af verkfallinu voru þau að biðtími á bráðamóttöku lengdist en bráðatilvikum var sinnt, þá var röskun á bókuðum endurkomum á bráða- og göngudeild. kRistján þóR júlÍusson, heilbRigðisRáðheRRa, skipaði biRgi jakobsson Í embætti landlæknis til fimm áRa, fRá 1. janúaR áRið 2015. „Birgir hefur um langt skeið sinnt stjórnunarstörfum við ýmis sjúkrahús í Svíþjóð, síðast sem forstjóri Karolinska sjúkrahússins í Stokkhólmi“ sagði í tilkynningu heilbrigðisráðuneytisins. Birgir tekur við embætti landlæknis af Geir Gunnlaugssyni sem hefur gegnt því starfi undanfarin fimm ár. landsbankinn tilkynnti um sölu á öllum hlut sÍnum Í boRgun, en bankinn átti þaR 31,2%. Söluverð er 2.184 milljónir króna skv. tilkynningu Landsbankans. Í tilkynningunni sagði að „að kaupunum stendur breiður hópur fjárfesta ásamt félagi á vegum stjórnenda Borgunar.“ Fljótlega kom upp gagnrýni á þá ákvörðun Landsbankans að selja hlut sinn í Borgun ekki í opnu söluferli. Nokkrir þingmenn kröfðust rannsókna og svara og gáfu í skyn að óeðlilega hefði verið staðið að sölunni með því að hafa söluferlið lokað og þá skapaði það tortryggni að ættingi Bjarna Benedik- tssonar, fjármálaráðherra, hefði verið í hópi þeirra sem keypt hefðu hlut Landsbankans í Borgun. Steinþór Pálsson, bankastjóri Landsbankans, svaraði gagnrýninni á þá vegu að sökum þess að Íslandsbanki væri meirihlutaeigandi í Borgun hefði landsbankinn mjög takmarkaðan aðgang að upplýsingum um Borgun vegna sáttar við Samkeppniseftirlitsins sem gert hafði verið árið 2008 og því hefði opið söluferli verið verulegum takmörkunum háð. LÍtið viRtist benda til þess að samninguR milli lækna RÍkisins væRi að takast. Verkfallslota sem stóð í tvo sólarhringa hjá læknum á geðsviði og skurðlækningasviði Landspítala hófst. niðuRstöðuR vinnumaRkaðsRannsóknaR hagstofu Íslands voRu biRtaR og kom fRam að 189.300 á aldRinum 16-74 áRa voRu á vinnumaRkaði Í októbeR áRið 2014, sem jafngildi 81,9% atvinnuþátttöku. „Hlutfall starfandi af mannfjölda var 77,8% og hlutfall atvinnulausra af vinnuafli var 5%. Samanburður mælinga í október 2013 og 2014 sýnir litlar breytingar hvort sem litið er til atvinnuþátttöku, hlutfalls starfandi fólks eða atvinnuleysis“ sagði í tilkynningu Hagstofunnar. VeRðbólgan mældist 1% samkvæmt útReikningum hagstofu Íslands á vÍsitölu neysluveRðs. Þetta er lægsta verðbólga sem mælst hefur hér á landi í sextán ár. Verðbólga lækkaði um 0,52% milli mánuða. mikill hiti vaRð á þingi Í kjölfaR þess að á fundi atvinnuvega- nefndaR alþingis lagði meiRihlutinn til að átta viRkjanakostiR faRi úR biðflokki Í nýtingaRflokk, þar með talið Hvammsvirkjun sem búist hafði verið við. Þingmenn stjórnarandstöðu gagnrýndu stjórnarliða harðlega fyrir að fara fram með þessum hætti. Stjór- narandstaðan sagði að stríðshanska hefði verið kastað inn í þing- húsið og fóru þess a leit að forseti þingsins myndi skerast í leikinn þar sem meirihlutatillagan innan atvinnuveganefndar myndi setja þingstörf næstu daga í uppnám. máR guðmundsson, seðlabankastjóRi, tilkynnti að hann myndi klæðast jólapeysu þegaR hann myndi tilkynna vaxtaákvöRðun b a n k a m á l b a n k a m á l s t j ó R n m á l v i ð s k i p t i o g e f n a h a g s m á l v i ð s k i p t i o g e f n a h a g s m á l v i ð s k i p t i o g e f n a h a g s m á l a l m e n n t a l m e n n t

x

SSFblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: SSFblaðið
https://timarit.is/publication/980

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.