SSFblaðið - dec. 2014, Side 11
11
annars blóðflæði og styrkir ónæmiskerfið auk þess að vera
hin ágætasta hreyfing.
göngufeRðiR: Hraustir göngugarpar Seðlabankans lögðu af stað
laugardagsmorguninn 28. júní sl. í Landmannalaugar. En þar
var hinn 55 km langi Laugavegur genginn á þremur dögum.
Heppnaðist gangan með eindæmum vel þó veðrið hefði mátt
vera betra. Nú þegar er farið að skipuleggja næstu göngu en
áður hefur gönguhópurinn gengið bæði Fimmvörðuhálsinn
og Leggjabrjót.
fótbolta: Starfsmenn Seðlabankans taka þátt í fótboltamóti
fjármálafyrirtækja sem haldið er á Akureyri síðustu helgi
janúarmánaðar, ár hvert. Til þess að standast leikjaálag,
æfa starfsmenn fótboltaleikni einu sinni í viku í íþróttahúsi
Fífunnar í Kópavogi. Á síðasta móti náðist besti árangur
Seðlabankans frá upphafi þegar liðið datt naumlega úr
keppni í 8-liða úrslitum gegn VÍS sem síðar tryggði sér
sigur á mótinu. Hingað til hafa konur Seðlabankans ekki
tekið þátt en í janúar 2015 stefnir Seðlabankinn á að senda
kvennalið í fyrsta skipti.
badminton: Vikulega er leigður völlur hjá TBR og gefst
starfsmönnum Seðlabankans tækifæri til að hittast og spila
hnit sér til skemmtunar.
hjólað Í vinnuna: Starfsmenn eru sérstaklega hvattir til að taka
þátt í átakinu Hjólað í vinnuna og hafa verið veitt verðlaun
í ýmsum flokkum fyrir besta árangurinn. Núna síðast lenti
Seðlabankinn í 15. sæti í vinnustaðakeppninni og lið sem
var eingöngu skipað starfsmönnum Seðlabankans náði að
komast í hóp topp tíu liða í heildarkílómetrakeppni átaksins.
maRaþon: Fulltrúar Seðlabankans sem hlaupa í
Reykjavíkurmaraþoninu eiga þess kost að fá þátttökugjaldið
endurgreitt.
jafnRéttisnefnd Seðlabankans er skipuð til tveggja ára í senn
og heyrir undir bankastjóra. Í henni sitja fjórir starfsmenn, tveir
tilnefndir af bankastjórn og tveir tilnefndir af starfsmannafélagi
bankans. Nefndin starfar í samræmi við jafnréttis-, starfsmanna- og
fræðslustefnu Seðlabanka Íslands og lög um jafna stöðu og jafnan rétt
kvenna og karla. Jafnréttisstefnunni fylgir jafnréttisáætlun bankans
þar sem kveðið er á um aðgerðir til þess að fylgja stefnunni eftir og
hver ber ábyrgð á þeim. Jafnréttisnefnd leggur fram tillögu að nýrri
jafnréttisstefnu á þriggja ára fresti. Núverandi nefnd telur að tvennt sé
mikilvægt til að ná árangri í jafnréttismálum: Í fyrsta lagi vilji æðstu
stjórnenda til breytinga þannig að tillögur jafnréttisáætlunar komist
í framkvæmd og í öðru lagi að tryggt sé að sá aðili sem ber ábyrgð
á framkvæmd áætlunarinnar sé þannig staðsettur innan stjórnkerfis
bankans að hann eigi auðvelt með að hafa áhrif á framvindu mála.
Nefndin hefur því lagt áherslu á að ábyrgð á framkvæmd tillagna í
jafnréttismálum sé hjá framkvæmdastjórum sviða eftir því sem við
á og að svið rekstrar- og starfsmannamála sjái um samræmingu og
eftirfylgni í samráði við jafnréttisnefnd fyrir hönd bankastjórnar.
Nefndin reiðir sig einnig á samvinnu við alla starfsmenn bankans
til þess að framfylgja jafnréttisstefnunni. Einnig er mikilvægt að
allir hafi heildrænt sjónarhorn á jafnréttisstarfið og hefur nefndin
því leitast við að taka mið af því við gerð jafnréttisáætlunar að tekið
sé tillit til margbreytileika starfsmanna í öllu starfi og að engum
hópum sé mismunað.
mötuneytisnefnd hefur verið starfandi síðan elstu menn muna.
Þegar RB flutti í nýtt húsnæði var nefndin endurskipulögð og í henni
sitja nú þrír aðilar: rekstrar- og starfsmannastjóri, matreiðslumeistari
bankans og fulltrúi starfsmanna. Óhætt er að segja að veigamiklar
breytingar hafi litið dagsins ljós síðustu tvö ár sem styðja m.a. við
starfsmannastefnu Seðlabankans. Bankinn telur það vera gagnkvæma
hagsmuni að vellíðan og heilbrigði starfsfólks sé haft að leiðarljósi
og stefnir að því að efla heilbrigði og starfsgetu starfsfólks með því
að hafa áhrif á vinnuumhverfið. Mötuneytisnefnd hefur einnig
heilsustefnu bankans að leiðarljósi. Samstarf mötuneytisnefndar
og starfsmanna eldhússins hefur skilað góðum árangri svo almenn
ánægja ríkir hjá starfsmönnum, fjölbreytileiki hefur aukist og geta
nú flestir fundið eitthvað við sitt hæfi.
öRyggisnefnd Seðlabankans er skipuð fjórum starfsmönnum til
tveggja ára í senn, tveimur öryggistrúnaðarmönnum sem kosnir
eru af starfsmönnum og tveimur öryggisvörðum sem skipaðir eru af
bankanum. Öryggisnefndin skipuleggur aðgerðir varðandi aðbúnað,
hollustuhætti og öryggi innan fyrirtækisins. Nefndin annast fræðslu
starfsmanna um þessi efni og hefur eftirlit með því að ráðstafanir er
varða aðbúnað, hollustuhætti og öryggi komi að tilætluðum notum.