SSFblaðið - Dec 2014, Page 18
18
ársins 2013; Ritstjórn Kastljóss fyrir Umfjöllun ársins 2013; og
Bergljót Baldursdóttir, RÚV, fékk Blaðamannaverðlaun ársins
2013. Þá átti Páll Stefánsson Mynd ársins 2013.
lagið enga foRdóma með hljómsveitinni pollapönk vaR
valið fRamlag Íslands Í
söngvakeppni evRópskRa
sjónvaRpsstöðva, Eurovi-
sion, sem átti eftir að fara
fram í Danmörku síðar á
árinu. Lagið vann forkepp-
nina með yfirburðum og
naut mikilla vinsælda hér
á landi á árinu.
Íslandsbanki tilkynnti að bankinn hefði hagnast um Rúma
23 milljaRða kRóna áRið 2013. Í tilkynningunni kom fram að
dregist hefði úr arðsemi eiginfjár úr 17,2 % árið 2012 í 14,7 %
árið 2013, sú lækkun skýrist þó fyrst og fremst af hækkun eigin
fjár um 14,4 prósent sagði í tilkynningu bankans. Þá kom fram
að eiginfjárhlutfall hefði hækkað úr 25,5 % í 28,4 %.
21 bjaRni benediktsson, fjáRmálaRáðheRRa, tilkynnti að
ákveðið hefði veRið að auglýsa staRf seðlabankastjóRa laust til
umsóknaR. Már Guðmundsson, seðlabankastjóri, tilkynnti starfs-
fólki bankans að hann liti ekki svo á að um vantraustsyfirlýsingu
væri að ræða og útilokaði ekki að hann myndi sækja um stöðuna.
þingsályktunaRtillaga gunnaRs bRaga sveinssonaR,
utanRÍkisRáðheRRa, um að umsókn Íslands um aðild að
evRópusambandinu yRði dRegin til baka, vaR lögð fRam á alþingi.
Miklar umræður fóru fram um málið á Alþingi. Yfir 15 þúsund
undirskriftir höfðu safnast þar sem skorað var á ríkisstjórnina að
draga umsóknina ekki til baka. Boðað var til mótmæla fyrir utan
Alþingishúsið og lögreglan taldi ástæðu til að reisa girðingar fyrir
framan húsið. Talið var að um 3500 manns hefðu safnast saman
á Austurvöll, mótmælin fóru friðsamlega fram.
miklaR deiluR stóðu yfiR á alþingi. 21 mál voru skráð á dag-
skrá Alþingis og hafði þingfundur staðið lengi fram eftir daginn
áður. Þá hafði verið tekist á um skýrslu Hagfræðistofnunar um
aðildarviðræður Íslands við ESB. Stjórnmálaumræðan var fyrirfer-
ðamikil í öllum miðlum og var m.a. deilt um þingsályktunartillögu
Gunnars Braga Sveinssonar, utanríkisráðherra og um ákvörðun
fjármálaráðherra að auglýsa stöðu seðlabankastjóra. Þingfundi var
að lokum frestað þegar fór að nálgast miðnætti.
hagstofan tilkynnti að samkvæmt vinnumaRkaðsRannsókn
hagstofunnaR hefði atvinnuleysi aukist um 1,6% fRá desembeR
2013 til janúaR 2014. Hlutfall atvinnulausra mældist 6,1% í
janúar.
aRion banki tilkynnti um hagnað upp á 12,7 milljaRða kRóna
eftiR skatta áRið 2013 samanboRið við 17,1 milljaRð kRóna áRið
2012. „Arðsemi eigin fjár var 9,2% samanborið við 13,8% árið
2012. Arðsemi af kjarnastarfsemi var 10,5% en var 11,4% árið
2012. Heildareignir námu 938,9 milljörðum króna samanborið við
900,7 milljarða króna í árslok 2012“ sagði í tilkynningu bankans.
umRæðuR á alþingi héldu áfRam um tillöguna um að dRaga
til baka umsókn Íslands að esb. Yfir þrjátíu þúsund Íslend-
ingar höfðu skrifað undir áskorun um að hætt yrði við að draga
aðildarumsóknina til baka. Fresta þurfti þingfundi í þrígang áður
en hægt var að hefja umræður á þingfundi þar sem reynt var að
semja og ná sáttum um dagskrá þingfundar.
fRéttastofa RÍkisútvaRpsins gReindi fRá þvÍ að veRðbólga héR
á landi væRi 2,1 % á áRsgRundvelli og hefði ekki veRið lægRi
Í þRjú áR. Fréttastofan ræddi við hagfræðinga ASÍ og SA sem voru
sammála um að stöðugleiki í verðlagi gæti verið að nást.
stjóRn leikfélags ReykjavÍkuR tilkynnti að
kRistÍn eysteinsdóttiR hefði veRið Ráðin
leikhússtjóRi boRgaRleikhússins. Staðan var
auglýst eftir að Magnús Geir Þórðarson, var ráðinn útvarpsstjóri
Ríkisútvarpsins.
félagsmenn kennaRasambands Íslands Í RÍkisReknum
fRamhaldsskólum samþykkt Í atkvæðagReiðslu að boða til
veRkfalls 17. maRs hafi samningaR ekki náðst fyRiR þann tÍma.
88% greiddu atkvæði með boðun verkfalls.
matthÍas bjaRnason, fyRRveRandi RáðheRRa og
þingmaðuR sjálfstæðisflokksins, lést, 92 áRa að aldRi.
Matthías var fyrst kosinn á þing fyrir Vestfirði árið 1963 og átti
þar sæti til ársins 1995, eða í 32 ár.
maRs
mikil mótmæli höfðu staðið yfiR Í úkRaÍnu sem endaði með þvÍ
að þáveRandi stjóRnvöld hRökkluðust fRá völdum og Viktor
Janúkovítsj, þáverandi forseti Úkraínu, flúði land og var í kjölfarið
b a n k a m á l
b a n k a m á l
m e n n i n g
s t j ó R n m á l
s t j ó R n m á l
s t j ó R n m á l
v i ð s k i p t i o g e f n a h a g s m á l
v i ð s k i p t i o g e f n a h a g s m á l
a l m e n n t