SSFblaðið - Dec 2014, Page 27
27
samband ÍslenskRa sveitaRfélaga og félag leikskólakennaRa
skRifuðu undiR nýjan kjaRasamning og þar með var komið í veg
fyrir að fyrirhugað verkfall leikskólakennara hæfist en boðaðar
verkfallsaðgerðir áttu að hefjast þann 19. júní. Um skammtí-
masamning til eins árs var að ræða.
gRÍman, Íslensku sviðslistaveRðlaunin, voRu veitt Í
boRgaRleikhúsinu. Eftirtaldir voru verðlaunaðir:
Sýning ársins 2014; Ragnheiður eftir Gunnar Þórðarson og
Friðrik Erlingsson í sviðsetningu Íslensku óperunnar.
Leikrit ársins 2014; Stóru börnin eftir Lilju Sigurðardóttur í
sviðsetningu Lab Loka.
Leikstjóri ársins 2014; Egill Heiðar Anton Pálsson fyrir Gullna
hliðið í sviðsetningu Leikfélags Akureyrar.
Leikari ársins 2014 í aðalhlutverki; Hilmir Snær Guðnason
fyrir Eldraunina í sviðsetningu Þjóðleikhússins.
Leikkona ársins 2014 í aðalhlutverki; Margrét Vilhjálmsdóttir
fyrir Eldraunina í sviðsetningu Þjóðleikhússins.
Leikari ársins 2014 í aukahlutverki; Bergur Þór Ingólfsson fyrir
Furðulegt háttalag hunds um nótt í sviðsetningu Borgarleikhússins.
Leikkona ársins 2014 í aukahlutverki; Nanna Kristín Mag-
núsdóttir fyrir Óskasteina í sviðsetningu Borgarleikhússins.
Barnasýning ársins 2014; Hamlet litli eftir Berg Þór Ingólfsson
í sviðsetningu Borgarleikhússins.
Leikmynd ársins 2014; Egill Ingibergsson fyrir Gullna hliðið
í sviðsetningu Leikfélags Akureyrar.
Búningar ársins 2014; Helga Mjöll Oddsdóttir fyrir Gullna
hliðið í sviðsetningu Leikfélags Akureyrar.
Lýsing ársins 2014; Björn Bergsteinn Guðmundsson og Petr
Hloušek fyrir Furðulegt háttalag hunds um nótt í sviðsetningu
Borgarleikhússins.
Tónlist ársins 2014; Gunnar Þórðarson fyrir Ragnheiði í svið-
setningu Íslensku óperunnar.
Hljóðmynd ársins 2014; Vala Gestsdóttir og Kristinn Gauti
Einarsson fyrir Litla prinsinn
í sviðsetningu Þjóðleikhússins.
Söngvari ársins 2014; Elmar Gilbertsson fyrir Ragnheiði í
sviðsetningu Íslensku óperunnar.
Dansari ársins 2014; Brian Gerke fyrir Farangur í sviðsetningu
Íslenska dansflokksins.
Danshöfundur ársins 2014; Valgerður Rúnarsdóttir fyrir Far-
angur í sviðsetningu Íslenska dansflokksins.
Útvarpsverk ársins 2014; Söngur hrafnanna eftir Árna Kristjáns-
son, leikstjórn Viðar Eggertsson. Framleiðandi; Útvarpsleikhúsið
á RÚV.
Sproti ársins 2014; Tyrfingur Tyrfingsson,leikskáld, fyrir Bláskjá
í sviðsetningu Óskabarna ógæfunnar og Borgarleikhússins.
70 áRa afmæli lýðveldisins. Vegleg hátíðarhöld fóru fram víða um
land. Í Reykjavík lagði Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands,
blómsveig frá Íslensku þjóðinni að minnisvarða Jóns Sigurðsso-
nar. Þá flutti Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, forsætisráðherra,
hátíðarræðu á Austurvelli.
fabian stang, boRgaRstjóRi osló, tilkynnti að oslóaRboRg
hefði ákveðið að hætta við að hætta að gefa Íslendingum
jólatRé. Hann sagði að það hefði komið sér á óvart hversu vinsæl
jólatréin væru og því hafi verið tilvalið að hætta við ákvörðunina
og tilkynna hana á þjóðhátíðardegi Íslendinga.
lögReglan gReindi fRá þvÍ að hún hefði Rökstuddan gRun um
að staRfsmaðuR innanRÍkisRáðuneytisins hefði látið fjölmiðlum
Í té minnisblað um málefni hælisleitandans tony omos. Þetta
kom fram í dómi Hæstaréttar, þar var kröfu lögreglunnar um að
fréttastjóri mbl.is yrði látinn svara spurningum varðandi málið
var hafnað.
Illugi gunnaRsson, menntamálaRáðheRRa, gaf út „hvÍtbók um
umbætuR Í menntun“. Í skýrslunni, sem kynnt var víða um land,
voru lagðar til róttækar breytingar á kennsluháttum og námsefni
í grunn- og framhaldsskólum.
fyRiRhugaðRi veRkfallslotu flugviRkja icelandaiR, þeiRRi
annaRRi Í Röðinni, vaR aflýst en innan við sólaRhRinguR vaR
þangað til aðgeRðin átti að hefjast. Forsvarsmenn samnin-
ganefndar flugvirkja töldu það skynsamlega leið af ótta við að
lagasetning Alþingis kæmi í veg fyrir frekari verkfall. Áfram átti
þó að láta reyna á samningaleiðina.
99 áR voRu liðin fRá þvÍ að ÍslenskaR konuR yfiR feRtugu fengu
kosningaRétt og kjöRgengi til alþingis.
söguleguR daguR vaR Í háskóla Íslands þegaR metfjöldi
kandÍdata útskRifaðist. 2065 kandídatar fengu afhent prófskír-
teini sem er mesti fjöldi útskrifaðra nemenda í einu frá stofnun
skólans.
kennaRasamband Íslands gagnRýndi hugmyndiR
menntamálaRáðheRRa vaRðandi styttingu fRamhaldsskóla sem
komu fRam Í hvÍtbók RáðheRRa um umbætuR Í menntakeRfinu.
Sambandið sagði þó að margar jákvæðar áherslur og umbætur
væru að finna í Hvítbókinni. Í yfirlýsingu frá Kennarasambandinu
sagði meðal annars „Innleiðing menntastefnunnar frá 2008 hefur
að stórum hluta legið niðri vegna efnahagskreppunnar. Kennar-
asamtökin eru sammála um nauðsyn þess að nú þurfi að veita
skýrari leiðsögn um framkvæmd og áherslur. Skólar þurfa fjármagn
í samræmi við það meginmarkmið að öllum nemendum bjóðist
innihaldsríkt og fjölbreytt nám við hæfi, list-, verk- og bóklegar
greinar og skapandi kennsluhættir.“
s t j ó R n m á l
s t j ó R n m á l
v i ð s k i p t i o g e f n a h a g s m á l
v i ð s k i p t i o g e f n a h a g s m á l
a l m e n n t
a l m e n n t
m e n n i n g