SSFblaðið - Dec 2014, Page 33
33
eftirvæntingu. Timberlake hafði
spókað sig um á Íslandi í nokkra
daga ásamt fylgdarliði og mært
landið í fjölmiðlum. Um 16.000
tónleikagestir sóttu tónleikana
skv. fréttum Ríkisútvarpsins.
Hljómsveitin GusGus hitaði
upp fyrir Timberlake.
almaR guðmundsson vaR Ráðinn fRamkvæmdastjóRi samtaka
iðnaðaRins. Hann tók við starfinu af Kristrúnu Heimisdóttur.
Almar hafði áður verið framkvæmdastjóri Félags atvinnurekenda
og gegnt því starfi í fimm ár.
umboðsmaðuR alþingis ákvað að taka samskipti hönnu biRnu
kRistjánsdóttuR, innanRÍkisRáðheRRa og stefán eiRÍkssonaR,
lögReglustjóRa á höfuðboRgaRsvæðinu, til foRmlegRaR
athugunaR, að eigin fRumkvæði. Hann sendi Hönnu Birnu
þriðja bréf sitt og óskaði eftir skýringum á samtölum ráðherra
við lögreglustjórann. Hanna Birna sagðist í yfirlýsingu í kjölfar
bréfsins að hún íhugaði hvort hennar framtíðarstaður væri í stjórn-
málum, eða utan þeirra. Hún sagði að í bréfi umboðsmanns væri
trúnaðarsamtöl lögreglustjóra við hana og aðra sett í óskiljanlegt
samhengi. Hún sagðist ætla að „nýta það svigrúm næstu misseri
til að skýra betur en ég hef áður getað hvernig þetta smáa mál
í stórum verkahring ráðuneytisins hefur orðið að farsakenndu
stórmáli og hvernig það horfir við mér pólitískt – en einnig til að
taka persónulega ákvörðun um það með mínum nánustu hvort
stjórnmálin eru minn framtíðarstaður eða hvort baráttan fyrir betra
samfélagi verði betur háð utan kerfisins en innan þess.“
vÍsiR.is gReindi fRá þvÍ að laugaR ehf. hefði keypt 4,42% hlut
Í dv ehf. en mikil átök voRu um eignaRhaldið á fjölmiðlinum.
Björn Leifsson, einn eigenda Lauga, sagðist í samtali við Vísi vilja
hafa áhrif á að hér á landi væri rekið gott dagblað og að Reyni
Traustasyni, ritstjóra DV, yrði komið frá.
atvinnuleysi mældist 3,3% Í júlÍ 2014 samkvæmt tölum
hagstofu Íslands. Atvinnuþátttaka var nokkuð meiri og atvin-
nuleysi minna en sama mánuð árið 2013. Atvinnulausum hafði
fækkað um 1.400 milli ára.
veRðbólga undanfaRna tólf mánuði hafði veRið 2,2%,
samkvæmt tölum fRá hagstofu Íslands. Húsnæðisverð hækkaði
talsvert sem hafði þau áhrif að verðbólga mældist meiri.
kjaRninn gReindi fRá þvÍ að seðlabanki hollands hefði selt
deutsche bank kRöfuR sÍnaR á henduR landsbankanum vegna
icesave. Þetta kom fram í tilkynningu á vef hollenska seðlabankans.
Í svari hollenska fjármálaráðuneytisins við fyrirspurn fréttastofu
Ríkisútvarpsins sagði að hollenska ríkið hefði með sölunni endur-
heimt allt það fé sem það greiddi til innstæðueigenda í Icesave
þegar Landsbankinn féll 2008. Heildarkrafan nam að jafnvirði
um 219 milljörðum íslenskra króna.
sigmunduR davÍð gunnlaugsson foRsætisRáðheRRa tók við
embætti dómsmálaRáðheRRa. Sex málaflokkar
færðust þar með úr innanríkisráðuneytinu.
Hanna Birna Kristjánsdóttir, innanríkisráðherra,
hafði beðist undan málefnum dóms- og ákæru-
valds eftir að aðstoðarmaður hennar var ákærður
fyrir að leka minnisblaði um hælisleitanda.
hagnaðuR aRion banka á fyRRi helmingi áRsins 2014 nam 17,4
milljöRðum kRóna eftiR skatta samanboRið við 5,9 milljaRða
kRóna á sama tÍmabili áRsins 2013. Arðsemi eigin fjár var 23,4%
samanborið við 8,9% á sama tímabili árið 2013. Heildareignir
námu 949,0 milljörðum króna samanborið við 938,9 milljarða
króna í árslok 2013. Eiginfjárhlutfall bankans í lok tímabilsins var
25,6% en var 23,6% í árslok 2013. Þetta kom fram í afkomutilkyn-
ningu Arion banka fyrir fyrri hluta ársins 2014.
eldgos hófst Í holuhRauni. Hraun rann til suð-austurs og virtist
renna hratt. Eldgosið varði ekki lengi yfir, stóð að mati jarðvísin-
damanna í 3-4 klst. Jarðhræringar höfðu staðið yfir í tæpar tvær
vikur í norðanverðum Vatnajökli.
hluthafafunduR fóR fRam hjá advania. Á fundinum eignuðust
alþjóðlegir fagfjárfestar tæplega 57% hlut í fyrirtækinu. Framtakss-
jóður Íslands átti 71% hlut í fyrirtækinu fyrir fundinn en átti að
honum loknum 32%. Thomas Ivarson tók við stjórnarformennsku
í félaginu
eldgos hófst að nýju Í holuhRauni noRðan vatnajökuls.
Gossprungan var um einn og hálfur kílómetri að lengd og norðar
en fyrri sprunga. Hraunstrókar náðu um 70 metra upp í loftið
samkvæmt fréttum Ríkisútvarpsins. Gufubólstrar risu upp frá
sprungunni og náðu nokkur hundruð metra hæð. Ekkert gjóskufall
var og enginn gosmökkur. Gosið hafði engin áhrif á flugumferð.
b a n k a m á l
s t j ó R n m á l
s t j ó R n m á l
v i ð s k i p t i o g e f n a h a g s m á l
v i ð s k i p t i o g e f n a h a g s m á l
v i ð s k i p t i o g e f n a h a g s m á l
a l m e n n t
a l m e n n t