SSFblaðið - dec 2014, Qupperneq 35
35
og þvottavélar, auk annarra raftækja eins og sjónvörp og hljóm-
flutningstæki. Einnig var lagt til að barnabætur yrðu hækkaðar
um 13%. Forystumenn stjórnarandstöðunnar á þingi gagnrýndu
frumvarpið. Árni Páll Árnason, formaður Samfylkingarinnar,
og Guðmundur Steingrímsson, formaður Bjartrar framtíðar,
sögðu frumvarpið hygla þeim best stöddu og Katrín Jakobsdóttir,
formaður Vinstri grænna, sagði frumvarpið frjálshyggjutilraun.
Hækkun virðisaukaskatts á matvæli mætti mikilli gagnrýni stjór-
narandstöðu, verkalýðshreyfingarinnar og fleiri aðila.
Íslenska kaRlalandsliðið
Í knattspyRnu hóf keppni
Í undankeppni em með
miklum kRafti þegaR
þeiR mættu tyRkjum á
laugaRdalsvelli. Íslenska
liðið var mun betri aðilinn
á vellinum og vann öruggan 3:0 sigur.
gosmengun mældist mjög mikil á ReyðaRfiRði og vaR böRnum
og viðkvæmum Ráðlagt að halda sig innandyRa Í tilkynningu
fRá almannavöRnum. Styrkur brennisteinsdíoxíðs fór upp í tæplega
2600 míkrógrömm á rúmmetra sem var langhæsta gildi sem nok-
kurn tíman hafði mælst á Íslandi.
fyRsti funduR fjáRmálastöðugleikaRáðs fóR fRam Í fjáRmála- og
efnahagsRáðuneytinu. Í ráðinu sitja fjármála- og efnahagsráðherra,
sem er formaður ráðsins, seðlabankastjóri og forstjóri Fjármálaeft-
irlitsins. Fjármálastöðugleikaráð er formlegur samstarfsvettvangur
stjórnvalda um fjármálastöðugleika. Á heimasíðu ráðsins segir að
verkefni þess sé m.a. að móta opinbera stefnu um fjármálastöðu-
gleika, meta efnahagslegt ójafnvægi, áhættu í fjármálakerfinu,
aðstæður sem þykja líklegar til að ógna fjármálastöðugleika og
skilgreina mögulegar aðgerðir til að varðveita stöðugleika.
Í maRkaðspunktum gReiningaRdeildaR aRion banka kom fRam
að deildin teldi stjóRnvöld kunna að veRa að vanmeta áhRif
viRðisaukaskattsbReytinga og bReytinga á vöRugjöldum. Sam-
kvæmt fjárlagafrumvarpinu var gert ráð fyrir að breytingin yrði
til lækkunnar á verðlagi um 0,2%. Í markaðspunktunum kom
fram að erfitt væri að meta bein verðlagsáhrif skattabreytinganna
en sagði þó að nokkrir þættir bentu til þess að verðlagsáhrifin
yrðu meiri en gert er ráð fyrir í frumvarpinu. Þar vísa starfsmenn
greiningardeildarinnar til þess að hækkun á neðra þrepi virðisau-
kaskattsins skili sér líklega af meiri krafti út í verðlag en lækkun
efra þrepsins og afnám vörugjalda.
landsbankinn sagði upp 18 staRfsmönnum bankans. Þetta kom
fram í tilkynningu frá bankanum vegna hagræðingaraðgerða
bankans. Í tilkynningu bankans kom fram að „áfram er unnið að
breytingum í Landsbankanum sem leiða munu til hagræðingar
og einföldunar í rekstri líkt og gert hefur verið undanfarin ár.
Breytingar síðustu ára snúa annars vegar að aukinni skilvirkni og
einföldun á vinnulagi og hins vegar að hagræðingu vegna þess að
stórum verkefnum, t.d. fjárhagslegri endurskipulagningu viðskip-
tavina er að ljúka og staða bæði heimila og fyrirtækja fer jafnt og
þétt batnandi“ sagði í tilkynningunni. Þessar aðgerðir hafa leitt til
þess að stöðugildum hefur fækkað um 150 á undanförnum árum.
Í tilkynningu bankans sagði að fyrirséð væri að um 40 starfsmenn
til viðbótar láti af störfum fram að áramótum, 18 vegna uppsagna
nú, en aðrir vegna aldurs. Jafnframt sagði að afgreiðslu bankans
í Sandgerði yrði lokað og bakvinnsla sem starfrækt hefði verið í
Reykjanesbæ yrði flutt í starfsstöð bankans í Mjódd í Reykjavík.
Starfsmönnum úr Reykjanesbæ buðust störf þar. Þá var jafnframt
tilkynnt að starfsemi þjónustuvers bankans á Selfossi yrði hætt
og skiptiborð bankans á Akureyri yrði sameinað starfsemi þjó-
nustuversins þar.
bRennisteinsmengun fRá gosstöðvunum Í holuhRauni náði
nýjum hæðum þegaR styRkuR bRennisteinsdÍoxÍðs fóR yfiR 3600
mÍkRógRömm á skömmum tÍma á ReyðaRfiRði. Aldrei áður hefur
mælst svo hár styrkur í byggð hér á landi.
stjóRn bsRb mótmælti fyRiRætlunum stjóRnvalda að
„hækka skatta á nauðsynjavöRuR, dRaga úR áunnum Rétti
atvinnulausRa og aukningu á gReiðsluþátttöku almennings
fyRiR almannaþjónustu líkt og hún birtist í frumvarpi til fjárlaga
fyrir árið 2015“ þetta kom fram í ályktun stjórnar BSRB.
Íslenska kvennalandsliðið Í knattspyRnu sigRaði lið ÍsRaela
3-0 á laugaRdalsvelli Í undankeppni hm.
gosviRkni vaR áfRam stöðug og jaRðskjálftaviRknin hélt áfRam.
Mesta gosvirkni stóð frá miðgígnum í gígaröðinni.
ákæRan á henduR gÍsla fRey valdóRssyni, þáveRandi
aðstoðaRmaðuR innanRÍkisRáðheRRa, vaR þingfest Í héRaðsdómi.
Gísli Freyr lýsti sig saklausan yfir ákæruliðum saksóknara og lagði
fram frávísunarkröfu byggða á þeim forsendum að rannsókn málsins
og ákæran sjálf hafi verið háð miklum annmörkum.
daguR ÍslenskRaR náttúRu vaR haldinn hátÍðleguR. Umhverfis-
og auðlindaráðuneytið verðlaunaði Ríkisútvarpið annarsvegar fyrir
fjölmiðlaumfjöllun um umhverfis- og náttúruverndarmál og svo
hinsvegar Tómas J. Knútsson sem hlaut Náttúruverndarviðurken-
ningu Sigríðar í Brattholt, en Tómas stofnaði Bláa herinn, frjáls
s t j ó R n m á l
s t j ó R n m á l
v i ð s k i p t i o g e f n a h a g s m á l
a l m e n n t
a l m e n n t
a l m e n n t
a l m e n n t
b a n k a m á l