SSFblaðið - des. 2014, Blaðsíða 40
40
hRoss Í oss kvikmynd benedikts eRlingssonaR
og fRiðRiks þóRs fRiðRikssonaR hlaut
kvikmynda-veRðlaun noRðuRlandaRáðs
en verðlaunahátíð Norðurlandaráðs var
haldinn í Stokkhólmi. Þetta var í fyrsta sinn í
sögu Norðurlandaráðs sem Ísland hlýtur þau
verðlaun. Þá fékk Reykjavíkurborg náttúru- og
umhverfisverðlaun ráðsins.
mikil gosmengun mældist á akuReyRi og mældist styRkuR
bRennisteinsdÍoxÍðs um 4.000 mÍkRógRömm á RúmmetRa þegaR
veRst vaR.
foRmannskosning fóR fRam Í noRðuRlandaRáði en þing
noRðuRlandaRáðs fóR fRam. Aldrei áður hafði það gerst að
formannsefni í Norðurlandaráði fengi mótframboð, hvað þá að
frambjóðendurnir kæmu frá sama landi. Venja hafði skapast um að
valnefnd tilnefndi formannsefnið. Fulltrúar vinstri flokka í ráðinu
ákváðu mörgum að óvörum að bjóða fram Steingrím J. Sigfús-
son sem forsetaefna en valnefndin hafði áður tilnefnt Höskuld
Þórhallsson til forseta ráðsins. Svo fór að Höskuldur Þórhallsson
var kjörin forseti Norðurlandaráðs. Steingrímur fékk níu atkvæði
en Höskuldur 52 atkvæði.
Rb hélt fagRáðstefnu á icelandaiR hótel natuRa ReykjavÍk.
yfiRskRift RáðstefnunnaR vaR fRamtÍðin Í upplýsingatækni
fjáRmálafyRiRtækja 2.0. Færri komust að en vildu því mikill áhuga
var fyrir ráðstefnunni sem snéri að því hvernig upplýsingatækni
í fjámálageiranum mun þróast á næstu árum. Fyrirlesarar voru
David Rowan, ritstjóri Wired Magazine, Birna Einarsdóttur,
bankastjóri Íslandsbanka, Jean Yves BRUNA, framkvæmdastjóri
stefnumála og þróunar hjá Sopra Banking Software, Theódór
Gíslason, sérfræðingur í tölvuöryggismálum hjá Syndis, Ragnheiður
Magnúsdóttir, framkvæmdastjóri Hugsmiðjunnar, Friðrik Þór
Snorrason, forstjóri RB, og Þorstein Björnsson, framkvæmdastjóri
Viðskiptaþróunar og ráðgjafar hjá RB.
alþjóðlega noRðuRslóðaRáðstefnan - aRctic ciRcle – vaR
sett Í höRpu. Um 1400 manns sóttu ráðstefnuna frá 34 löndum
þ.m.t. fjölmargir fulltrúar erlendra ríkisstjórna, vísindamönnum
og fulltrúum stórra fyrirtækja. Angela Merkel, Þýskalandskeisari,
ávarpaði ráðstefnuna frá Þýskalandi en Ólafur Ragnar Grímsson,
forseti Íslands, hélt opnunarræðu og í kjölfarið ávarpaði Sigmundur
Davíð Gunnlaugsson, forsætisráðherra, ráðstefnuna.
landssamband ÍslenskRa útvegsmanna og
samtök fiskvinnslu-stöðva sameinuðust Í
eitt félag, samtök fyRiRtækja Í sjávaRútvegi.
Með því lagðist LÍÚ niður í þeirri mynd
sem það hafði verið. Markmið nýrra og
sameinaðra samtaka er að „gæta hagsmuna
íslensks sjávarútvegs í heild og sinna verkef-
num í sjávarútvegi, veiðum, umhverfisvernd,
menntun, markaðssetningu og sölu“ sagði
í tilkynningu nýrra samtaka. Á stofnfundinum tók Jens Garðar
Helgason við formennsku af Adolfi Guðmundssyni sem gegnt
hafði formennski í LÍÚ frá því árið 2008.
nóvembeR
Íslenska kvikmyndin vonaRstRæti Í leikstjóRn baldvins Z
fékk aðalveRðlaun noRRænu kvikmyndadaganna Í lübeck Í
þýskalandi. Þorsteinn Bachmann, einn aðalleikara myndarinnar,
veitti verðlaununum viðtöku.
þRátt fyRiR stÍfa samingafundi hjá samninganefnd félags
tónlistaRkennaRa og sambands ÍslenskRa sveitaRfélaga Í
húsakynnum RÍkissáttasemjaRa þokaðist lÍtið áfRam Í kjaRadeilu
þeiRRa. Verkfall hafði staðið yfir hjá tónlistarkennurum í á aðra viku.
faRþegaflugvél lenti á keflavÍkuRflugvelli með mann sem
talin vaR beRa ebólu- veiRuna. Almannavarnarnefnd var virkjuð
en síðar kom í ljós að ekki var um Ebólu að ræða.
um 4.500 manns komu saman á austuRvelli að mati lögReglu
til að mótmæla. Ýmist var verið að mótmæla ríkisstjórninni,
hækkun virðisaukaskatts á matvæli, afturköllun Evrópusamband-
saðildar sem og að sýna tónlistarkennurum og læknum samstöðu.
Forsætisráðherra sagðist sammála sumu en öðru ekki.
veRkfallslota hófst hjá skuRðlæknumog stóðu yfiR Í tvo
sólaRhRinga. Tveggja daga verkfall á flæðisviði og aðgerðasviði
spítalans hófst.
m e n n i n g
m e n n i n g
s t j ó R n m á l
s t j ó R n m á l
v i ð s k i p t i o g e f n a h a g s m á l
v i ð s k i p t i o g e f n a h a g s m á l
v i ð s k i p t i o g e f n a h a g s m á l
a l m e n n t
a l m e n n t
v i ð s k i p t i o g e f n a h a g s m á l