SSFblaðið - des. 2014, Síða 41
41
fólki vaR Ráðlegt að halda sig innandyRa á húsavÍk sökum
mikillaR gosmengunnaR en styRkuR bRennisteinsdÍóxÍðs mældist
þaR hæst 4.800 mÍkRógRömm á RúmmetRa um tÍma. Ekkert lát
virtist vera á gosinu í Holuhrauni.
peningastefnunefnd seðlabanka Íslands Ráðlagði bReytta
stýRivexti, úR 6% Í 5,75%. Stýrivextir höfðu haldist óbreyttir í
tvö ár. M‘ar Guðmundsson, Seðlabankastjóri, sagði í samtali við
Ríkisútvarpið að „allir dauðöfunda Íslendinga af stöðunni í efna-
hagsmálum“. Hann sagði að útlitið væri harla gott ef framtíðarspár
bankans rætast. Verðbólga hafði verið undir 2,5% prósenta mark-
miði Seðlabankans síðan í febrúar og hafði minnkað enn frekar í
haust. Í október mældist hún 1,9% miðað við 3,6% á sama tíma
árið 2013.
iceland aiRWaves tónlistaRhátÍðin Í ReykjavÍk vaR sett. Við
upphaf hátíðarinnar stigu um 50 hljómsveitir og listamenn á svið
á sjö tónleikastöðum víðs vegar um miðborg Reykjavíkur. Alls
koma um 220 listamenn fram á hátíðinni, þar af um 70 erlendar
hjómsveitir. Áætlað er að um 9000 manns hafi sótt hátíðina.
ekkeRt gekk Í að semja við lækna og tónlistaRkennaRa. Tón-
listarkennarar höfðu verið í verkfalli í um tvær vikur og þá höfðu
læknar boðað áframhaldandi verkfallsaðgerðir.
landsbankinn tilkynnti um hagnað bankans um 20 milljaRða
kRóna fyRstu nÍu mánuði áRsins 2014. Það er tveimur milljörðum
króna minna en á sama tíma árs 2013. Í tilkynningu bankans
kemur fram að lækkun hagnaðar stafi af hækkun skatta en skv.
tilkynningu nam hækunin um 32%.
fjáRaukafRumvaRpið vaR lagt fyRiR alþingi. Í frumvarpinu kom
fram að afkoma ríkissjóðs batnar um hátt í 46,7 milljarða króna
á árinu 2014. Skýringin er arðgreiðslur frá bönkum og lækkun
skuldar Seðlabankans við ríkissjóð.
veRkfalli bæjaRstaRfsmanna Í kópavogi vaR aflýst skömmu
áðuR en það átti að hefjast á þessum degi. Samningar voru
undirritaðir hjá Ríkissáttasemjara örfáum klukkustundum áður
en boðað verkfall átti að hefjast.
mikið hafði veRið um eRlenda oginnlenda kvikmyndafRamleiðslu
á Íslandi á áRinu, RÍkisútvaRpið gReindi fRá þvÍ Í úttekt á
fjáRaukalögum að RÍkissjóðuR enduRgReiði 1,4 milljaRða áRið
2014 vegna kvikmyndafRamleiðslu og hefuR þessi upphæð aldRei
veRið hæRRi. „Kvikmyndaiðnaður á Íslandi veltir því rúmum sjö
milljörðum á þessu ári. Langstærstur hluti þeirrar upphæðar er
tilkominn vegna erlendra kvikmyndaverkefna. Á fjárlögum ársins
2014 var gert ráð fyrir 837 milljóna króna framlagi í endurgreiðslur
vegna kvikmyndagerðar“ sagði í frétt Ríkisútvarpsins. Í frumvarpi
til fjáraukalaga bættust 580 milljónir við þá upphæð og heildarup-
phæðin því 1,4 milljarðar.
sigunduR davÍð gunnlaugsson, foRsætisRáðheRRa, og bjaRni
benediktsson, fjáRmálaRáðheRRa, héldu blaðamannafund Í
höRpu um leiðRéttingu
veRðtRyggðRa fasteigna-
veðlána. Fram kom að
mun fleiri hefðu sótt um
skuldaleiðréttingu en búist
hefði verið við. Á fundinum
kom fram að skuldir heimila
sem féllu undir skilyrði skuldaleiðréttingar lækkuðu um 20% og
meðallækkun næmi 1.350 þúsund krónum. Sigmundur sagði að
engu að síður væri verið að uppfylla fyrirheit og að niðurstaðan
væri margt betri en hann hefði gert ráð fyrir. Bjarni sagði að bætt
staða í ríkisfjármálunum leyfði meiri hraða í aðgerðunum en áður
hafði verið gert ráð fyrir. „Við náum að lágmarka vaxtakostnaðinn
með því að hraða þessum aðgerðum,“ var haft eftir Bjarna í frét-
tum Ríkisútvarpsins. Gert hafði verið ráð fyrir að fjármögnun
aðgerðanna yrði lokið í árslok 2016 en ekki 2017 eins og áður
hafði verið áætlað. „Ríkissjóður borgar alltaf reikninginn vegna
þess að þetta er fjármagnað af skattfé sem hefði þá verið hægt að
ráðstafa í að lækka skuldir eða eitthvað annað,“ sagði Friðriki Már
Baldursson, prófsessor í hagfræði, um skuldalækkunaraðgerðir
ríkisstjórnarinnar í fréttum Ríkisútvarpsins.
tilkynning baRst til fjölmiðla fRá hönnu biRnu
kRistjánsdóttuR, innanRÍkisRáðheRRa, vaRðandi játningu
fyRRveRandi aðstoðaRmanns sÍns gÍsla fReys valdóRssonaR.
Fram kom í tilkynningunni að Gísli hefði játað að hafa afhent
skjal úr ráðuneytinu varðandi hælisleitanda til fjölmiðla í nóvem-
ber 2013. „Trúnaðarbrot Gísla Freys gagnvart mér, ráðuneytinu
og almenningi öllum er algjört og alvarlegt. Gísli Freyr hefur
ítrekað haldið fram sakleysi sínu, ekki aðeins gagnvart yfirvöldum
og fjölmiðlum, heldur einnig gagnvart samstarfsfólki sínu og
yfirmönnum í ráðuneytinu. Í framhaldi af játningu Gísla Freys
var honum fyrirvaralaust vikið úr störfum í ráðuneytinu“ sagði í
tilkynningu Hönnu Birnu.
b a n k a m á l
m e n n i n g
s t j ó R n m á l
s t j ó R n m á l
v i ð s k i p t i o g e f n a h a g s m á l
a l m e n n t
v i ð s k i p t i o g e f n a h a g s m á l
v i ð s k i p t i o g e f n a h a g s m á l
v i ð s k i p t i o g e f n a h a g s m á l