SSFblaðið - des. 2014, Síða 45
45
möRgum til mikillaR gleði skRifaði eiðuR smáRi guðjohnsen,
fyRRveRandi leikmaðuR m.a. baRcelona og chelsea, undiR
samning við sitt gamla félag bolton. Eiður mun spila með
liðinu út leiktíðina 2014/2015. Eiður hafði verið án samnings
eftir að hann yfirgaf belgíska liðið Club Brügge. Margir biðu því
spenntir eftir að sjá til þessa farsælla íslenska leikmanns aftur í
ensku knattspyrnunni.
gunnlauguR jónsson og ágeiR eyþóRsson, dagskRáRgeRðaRmenn
á Rás tvö fengu veRðlaunin lÍtinn fugl fyRiR þáttaRöð sÍna
„Árið er...“ Jakob Frímann Magnússon, formaður Félags tónskálda
og textahöfunda, afhenti verðlaunin. Þáttaröðin „Árið er...“ fjallar
um íslenska tónlistarsögu frá árinu 1983 og áfram og hefur vakið
talsverðar vinsældir landsmanna.
jón páll eyjólfsson vaR Ráðinn leikhússtjóRi leikfélags
akuReyRaR. Jón lauk leiklistarnámi frá Lundúnum árið 2000 og
hefur leikið og leikstýrt hjá Þjóðleikhúsinu, Borgarleikhúsinu,
Leikfélagi Akureyrar og víðar.
bRynjaR nielson sló fRéttamann RÍkisútvaRpsins út af laginu Í
tilRaun hans við að taka viðtal við þingmanninn. Fréttamaðurinn
hafði ætlað að spyrja Brynjar
út í það hvort hann væri svek-
ktur yfir því að hafa ekki verið
boðið að taka sæti sem innan-
ríkisráðherra. Brynjar sagði svo
ekki vera, hann væri of gamall
til þess að fara í fýlu og bætti
því við að hann væri ekki fýlug-
jarn þrátt fyrir að hann liti út
eins og raun ber vitni. Við það sprungu bæði fréttamaðurinn og
þingmaðurinn úr hlátri. Ekkert varð af hinu upprunalega viðtali
en hláturskastið svaraði aftur á móti spurningunni ágætlega.
Myndbandið af hlátrasköllunum vakti mikla athygli og vinsældir.
landsfRamleiðslan á fyRstu nÍu mánuðum áRsins 2014 jókst um
0,5% að Raungildi boRið saman við fyRstu nÍu mánuði áRsins
2013 skv. tilkynningu hagstofunnaR. Á sama tíma jukust
þjóðarútgjöld, sem eru samtala neyslu og fjárfestingar, um 3%.
Samkvæmt tilkynningunni jókst einkaneysla um 2,8%, samneysla
um rúmlega 1% og fjárfesting um 12%. Útflutningur jókst um
rúm 5% og innflutningur nokkru meira, eða um 10,8%.
valmunduR valmundsson vaR kjöRinn foRmaðuR
sjómannasambands Íslands. Hann tók við af Sævari Gunnarssyni
sem hafði verið formaður sambandsins í 20 ár.
lagið þannig týnist tÍminn eftiR bjaRtmaR guðlaugsson vaR
valið óskalag þjóðaRinnaR Í
sÍmakosningu. Óskalög þjóðarin-
nar var íslenskur skemmtiþáttur
sýndur í Ríkissjónvarpinu þar
sem þjóðinni gafst kostur velja
óskalögin sín. Flestir völdu lag
Bjarmars, Þannig týnist tíminn,
en lagið var flutt af Páli Rósink-
ranz. Í öðru sæti var Ást eftir
Magnús Þór Sigmundson við ljóð
Sigurðar Nordal og í þriðja sæti Söknuður eftir Jóhann Helgason
og Vilhjálm Vilhjálmsson. Bjartmar sagðist afskaplega þakklátur
íslensku þjóðinni fyrir að hafa valið lagið sem honum sjálfum
þykir mjög vænt um.
steinþóR pálsson, bankastjóRi landsbankans, gReindi fRá þvÍ
Í fRéttum RÍkisútvaRpsins að landsbankinn ætti Í viðRæðum
við aRion banka um sölu á hlut sÍnum Í valitoR. Landsbankinn
á í um 38% í Valitor.
enn ein lotan Í veRkfalli lækna hófst. Nú náði verkfallið til
heilsugæslulækna um allt land sem og lækna á kvenna-, barna-,
aðgerða- og rannsóknasviðum Landspítalans. Verkfallið olli tal-
sverðum óþægindum og lengingum á biðlistum en fjölmargir
þurftu frá að hverfa frá boðuðum tíma hjá lækni.
félag pRófessoRa við RÍkisháskóla samþykktu nýjan kjaRasamning
Í atkvæðagReiðslu.
þRátt fyRiR að aflaveRðmæti hefði dRegist saman á áRinu báRust
mjög jákvæð tÍðindi um stöðu þoRsksstofnsins en ástand hans
mældist betuR Í haustRalli hafRannsóknaRstofnunaR en það
hefuR nokkuRn tÍma geRt fRá þvÍ stofnmælingaR hófust áRið
1996. Vísitala þorsks hefur hækkað hratt síðastliðin sjö ár og árið
í ár var engin undantekning. Ýsan kom einnig mjög vel út eftir sex
slæma árganga í röð skv. upplýsingum Hafrannsóknarstofnunnar.
2014 árgangurinn mældist sá næststærsti síðan haustrall hófst árið
1996. Þá var heildarvísitala gullkarfa sú mesta frá upphafi en sá
stofn hefur stækkað jafnt og þétt frá árinu 2000. Þá sagði Guð-
mundur Jóhann Óskarsson, sérfræðingur í síldarrannsóknum hjá
Hafrannsóknarstofnun, í fréttum Ríkisútvarpsins að stofn íslensku
sumargotssíldarinnar sé á uppleið og óðum að ná sér eftir mikil
áföll síðustu ára.
peningastefnunefnd seðlabanka Íslands ákvað að lækka
vexti bankans um 0,5%. Í tilkynningu frá peningastefnunefnd
sagði: „Hagvöxtur á þessu ári, þar af einkum vöxtur einkaneyslu,
stefnir í að verða minni en áður var spáð, ef marka má nýjustu
þjóðhagsreikninga. Þær tölur eru hins vegar verulega á skjön við
aðrar vísbendingar um þróun eftirspurnar, hvort heldur gögn um
innflutning eða ýmsa mælikvarða á veltu. Batinn á vinnumarkaði
heldur áfram, þótt eitthvað hafi hægt á vexti vinnuaflseftirspur-
m e n n i n g
m e n n i n g
s t j ó R n m á l
v i ð s k i p t i o g e f n a h a g s m á l
v i ð s k i p t i o g e f n a h a g s m á l
a l m e n n t