Fréttablaðið - 02.04.2016, Page 8

Fréttablaðið - 02.04.2016, Page 8
Grikkland Tyrkir senda allt að hundrað flóttamenn daglega aftur yfir landamærin til Sýrlands. Þar á meðal hafa verið bæði barnshafandi konur og fylgdarlaus börn. Mannréttindasamtökin Amnesty International segja þetta hafa við- gengist vikum saman og nauðungar- flutningar af þessu tagi brjóti alger- lega í bága við alþjóðareglur, reglur Evrópusambandsins og tyrknesk lög. Þá hélt breska blaðið The Times því fram nú í vikunni að tyrkneskir landamæraverðir hefðu skotið á Sýr- lendinga sem reyndu að komast yfir landamærin frá Sýrlandi til Tyrk- lands. Sextán manns hefðu fallið fyrir byssukúlum Tyrkja. Á grísku eyjunum næst Tyrklandi sitja síðan þúsundir flóttamanna fastar, því samkvæmt samkomulagi Evrópusambandsins við Tyrkland ber Grikkjum að senda fólkið aftur til Tyrklands. Þeir fyrstu eiga að fara strax á mánudaginn. Allt þangað til Evrópusambandið gerði samning við Tyrkland, þann 20. mars síðastliðinn, höfðu Grikkir flutt flóttafólkið áfram með ferjum yfir til gríska meginlandsins. Þeir sem komið hafa eftir 20. mars þurfa hins vegar að bíða og geta reiknað með að verða sendir aftur til baka yfir til Tyrklands. Hundruð manna hafa flúið úr flóttamannabúðum á eyjunum, þar sem þeir eiga að bíða á meðan mál þeirra eru afgreidd. Amnesty International gagnrýnir harðlega samninginn sem leiðtogar Evrópusambandsins gerðu við Tyrk- land í mars. „Í örvæntingu sinni við að loka landamærum sínum, þá hafa leiðtogar Evrópusambandsins vísvitandi litið fram hjá einföldustu staðreynd málsins: Tyrkland er ekki öruggt land fyrir sýrlenska flótta- menn og verður óöruggara með hverjum deginum sem líður,“ segir John Dalhuisen, framkvæmdastjóri Amnesty International í Evrópu og Mið-Asíu. „Þetta er samningur sem ekki er hægt að framfylgja nema af kaldlyndi og með því að sniðganga alþjóðalög af andvaraleysi,“ segir hann í umfjöllun á vef samtakanna. Að sögn Amnesty International eru um 200 þúsund Sýrlendingar, sem hrakist hafa að heiman, komnir að landamærum Tyrklands og hafast þar við í flótta- mannabúðum, þar sem aðstæður eru mjög bágbornar. gudsteinn@frettabladid.is SÖNGSTJÓRI KARLAKÓRINN STEFNIR Karlakórinn Stefnir óskar eftir að ráða söngstjóra, æskilegt að hann hafi reynslu í kórstjórn og tónlistarmenntun. Allar upplýsingar gefur formaður kórsins Ingvi Rúnar Guðmundsson irg@simnet.is, sími 896 0421 Rafvædd framtíð í takt við samfélagið – hverjar eru áskoranir Landsnets í stóru myndinni? Landsnet býður til vorfundar á Hilton Reykjavík Nordica, kl. 9-11 þriðjudaginn 5. apríl 2016, þar sem fjallað verður um hlutverk raforku í tengslum við stöðu loftslagsmála á Íslandi:  Hvaða áskorunum stöndum við frammi fyrir varðandi stefnu- mótun, þróun og uppbyggingu flutningskerfis raforku á Íslandi?  Hver er staða loftslagsmála í heiminum, umræðan á Íslandi og hvernig geta Íslendingar lagt sitt lóð á vogarskálarnar?  Með hvaða hætti má draga enn frekar úr losun gróðurhúsa- loftegunda til framtíðar í íslenskum sjávarútvegi? Morgunhressing er í boði frá kl. 8:30 og á fundinum. Þátttökuskráning á landsnet.is, eða í síma 563 9300. Allir velkomnir! Dagskrá: Pallborðsumræður Áhugasamir, sem eiga þess ekki kost að mæta á fundinn, geta fylgst með beinni útsendingu frá honum á landsnet.is og á mbl.is. Þá verður hægt að senda fyrirspurnir á twitter með merkingunni #landsnet. Ávarp – Ragnheiður Elín Árnadóttir, iðnaðar - og viðskiptaráðherra Stöðugra umhverfi og styrkari stoðir – Geir A. Gunnlaugsson, stjórnarformaður Landsnets Leysa þarf knýjandi þarfir samtímans í takt við þróun til framtíðar – Guðmundur Ingi Ásmundsson, forstjóri Landsnets Íslands þúsund ár: Náttúruvernd á tímum loftslagsbreytinga – Guðni Elísson, prófessor Forsendur tækifæra og sægrænnar uppbyggingar í sjávarútvegi – Kolbeinn Árnason, framkvæmdastjóri Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi Fundarstjóri – Edda Hermannsdóttir AT H YG LI – 0 4- 03 -1 6 Flóttafólk kemur til grísku eyjunnar Lesbos eftir að hafa siglt yfir sundið frá Tyrk- landi. NordicphoTos/AFp Send aftur til Sýrlands Hundruð flóttamanna hafa flúið úr búðum á grísku eyjunum næst Tyrklandi. Samkvæmt samningi við Evrópusambandið á að flytja fólkið aftur til Tyrklands. stjórnmál Júlíus Vífill Ingvarsson, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, greindi í gær frá vörslusjóði sínum sem skráður er í Panama. Sagði hann sjóðinn hafa verið stofnaðan í sviss- neskum banka. Tilgangurinn var að mynda eigin eftirlaunasjóð en sjóður- inn lýtur svipuðu regluverki og sjálfs- eignarstofnun. Segist Júlíus Vífill ekki hafa haft neinar tekjur eða haft heimild til þess að ráðstafa fjármunum úr sjóðnum. Segir hann að ef greitt væri úr sjóðn- um yrðu greiðslurnar skattskyldar á Íslandi líkt og gerist til dæmis með séreignarsparnaðarreikninga. „Enda þótt þess sé ekki krafist að geta eftirlaunasjóðs í hagsmuna- greiningu borgarfulltrúa tel ég, eftir á að hyggja, að betur hefði farið á því og biðst velvirðingar á að hafa ekki gert það,“ segir í yfirlýsingu frá Júlíusi Vífli en ekki náðist í hann þrátt fyrir ítrek- aðar tilraunir. – þea, tpt Júlíus Vífill með eftirlaunasjóð í Panama Tyrkland er ekki öruggt land fyrir sýrlenska flóttamenn, og verður óöruggara með hverjum deginum sem líður. John Dalhuisen, framkvæmdastjóri hjá Amnesty International 2 . a p r í l 2 0 1 6 l a U G a r d a G U r8 f r é t t i r ∙ f r é t t a B l a ð i ð
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.