Fréttablaðið - 02.04.2016, Page 10

Fréttablaðið - 02.04.2016, Page 10
Bretland Áherslur á mannréttindi eru ólíkar eftir löndum, þótt megin- línurnar séu svipaðar. Þetta kemur fram í nýrri viðhorfskönnun sem breska könnunarfyrirtækið YouGov hefur birt. Þannig líta íbúar fimm af þeim átta löndum, sem höfð voru með í könnuninni, svo á að kosninga- rétturinn sé mikilvægastur allra mannréttinda. Í tveimur landanna er kosningarétturinn í öðru sæti, en í Þýskalandi lenti hann í sjöunda sæti. Meira en helmingur aðspurðra í öllum löndunum telur síðan mál- frelsið til mikilvægustu mannrétt- inda okkar. Næst á eftir þessum tvennum grundvallarréttindum setja aðspurð- ir svo ýmis félagsleg réttindi, og eru þar víðast hvar efst á blaði rétturinn til þess að njóta ókeypis heilsugæslu, ókeypis menntunar, lífs án mismun- unar og öryggis á götum úti. Áherslurnar eru þó mismunandi eftir löndum. Þannig leggja Frakkar minnsta áherslu á rétt fólks til að þurfa ekki að búa við mismunun. Hins vegar leggja Frakkar mesta áherslu allra á réttinn til að hafa atvinnu og réttinn til þess að taka þátt í mótmælaaðgerðum gegn stjórnvöldum. Bandaríkjamenn skera sig síðan sérstaklega úr vegna hins mikla áhuga þeirra á byssum. Nærri helm- ingur Bandaríkjamanna, eða 46 prósent, telur réttinn til skotvopna- eignar meðal mikilvægustu mann- Mannréttindi raðast ólíkt eftir löndum Kosningarétturinn varð efstur á blaði í skoðanakönnun meðal íbúa átta ríkja um mikilvægustu mannréttindin. Tjáningarfrelsið lenti víðast hvar í öðru sæti. Nærri helmingur Bandaríkjamanna telur réttinn til að eiga byssu meðal mikilvægustu mannréttinda. Kona í kjörklefa í Andalúsíu á Spáni þegar kosið var þar á síðasta ári. FréttAblAðið/EPA ✿ Mannréttindi sem íbúar átta ríkja á Vesturlöndum telja mikilvægust 66% Kosninga réttur 61% Ókeypis/ódýr heilbrigðisþjónusta 61% Sanngjörn réttarhöld 60% Öryggi á götum úti 57% Ókeypis menntun 54% Líf án mismununar 52% Málfrelsi 69% Málfrelsi 63% Réttur til einkalífs 61% Kosningaréttur 60% Sanngjörn réttarhöld 53% Trúfrelsi 51% Líf án mismununar 46% Skotvopnaeign 66% Málfrelsi 57% Réttur til einkalífs 52% Ókeypis menntun 50% Ókeypis/ódýr heilbrigðisþjónusta 50% Sanngjörn réttarhöld 48% Kosningaréttur 48% Líf án mismununar 54% Kosningaréttur 52% Málfrelsi 50% Lífeyrisréttur aldraðra 48% Lágmarkslaun 45% Öryggi á götum úti 42% Ókeypis menntun 40% Sanngjörn réttarhöld 72% Málfrelsi 71% Kosningaréttur 67% Ókeypis/ódýr heilbrigðisþjónusta 67% Sanngjörn réttarhöld 57% Ókeypis menntun 52% Líf án mismununar 42% Öryggi á götum úti 72% Kosningaréttur 71% Málfrelsi 58% Öryggi á götum úti 56% Ókeypis/ódýr heilbrigðisþjónusta 55% Ókeypis menntun 54% Líf án mismununar 50% Sanngjörn réttarhöld 63% Kosninga réttur 60% Öryggi á götum úti 58% Málfrelsi 57% Ókeypis/ódýr heilbrigðisþjónusta 55% Ókeypis menntun 51% Líf án mismununar 50% Búsetufrelsi innanlands 64% Kosningaréttur 60% Ókeypis/ódýr heilbrigðisþjónusta 60% Ókeypis menntun 59% Líf án mismununar 51% Málfrelsi 49% Öryggi á götum úti 45% Sanngjörn réttarhöld Í töflunni eru tilgreind þau réttindi sem íbúar átta landa settu í sjö efstu sætin af alls þrjátíu sem spurt var um. n Málfrelsi er auðkennt með bláum lit. n Kosningaréttur er auðkenndur með rauðum lit. Heimild: YouGov bretland bandaríkin Þýskaland Frakkland Danmörk Svíþjóð Finnland Noregur 34% Bandaríkjamanna og Frakka telja það meðal mikilvæg- ustu mannréttinda okkar að einungis lágmarksskattur sé lagður á tekjur fólks. réttinda. Í öllum hinum löndunum eru einungis fá prósent aðspurðra á því að byssueign teljist til mikilvægra mannréttinda. Og þegar spurt var áfram, þá sögð- ust tíu prósent Bandaríkjamanna líta svo á að rétturinn til skotvopna- eignar væri mikilvægari en öll önnur mannréttindi. Könnunin fór nefnilega fram í tveimur skrefum. Fyrst var settur fram listi yfir þrjátíu mannréttindi, sem tilgreind eru í mannréttindayfir- lýsingu Sameinuðu þjóðanna, mann- réttindasáttmála Evrópu, bandarísku réttindaskránni og bresku réttinda- skránni. Fólk var síðan beðið um að velja af þessum lista allt að tíu mann- réttindi, sem það teldi mikilvægust. Í seinna skrefinu var fólk svo beðið um að tilgreina ein mannréttindi, af þeim sem það hafði valið, sem það teldi allra mikilvægust. Niðurstaðan þar varð svipuð, en þó dálítið frábrugðin niðurstöðunni úr fyrra skrefinu: Bandaríkjamenn, Þjóðverjar, Frakkar, Danir og Svíar settu þar málfrelsið í efsta sæti, en Bretar töldu réttinn til ókeypis eða ódýrrar heilbrigðisþjónustu mikil- vægustu réttindin. Finnar og Norðmenn sögðu hins vegar réttinn til þess að vera laus við mismunun, á grundvelli kynferðis, þjóðernis, kynhneigðar eða annars, mikilvægastan allra réttinda. Almennt skiptir eignarrétturinn Evrópubúa minna máli en félagsleg réttindi, en þetta er öfugt í Banda- ríkjunum: Þar eru 37 prósent á því að eignarrétturinn skipti jafn miklu máli og rétturinn til ókeypis skólagöngu og ódýrrar heilbrigðisþjónustu. Hins vegar er rúmlega þriðjungur bæði Frakka og Bandaríkjamanna sammála um að rétturinn til lág- marksskattlagningar sé meðal mikil- vægustu mannréttinda. PI PA R\ TB W A • S ÍA • 1 61 80 2 FJÖLBREYTT FRAMHALDSNÁM Breytingar á MS námi við Hjúkrunarfræði deild Opinn kynningarfundur í Eirbergi 7. apríl kl. 16–17 Thelma B. Árnadóttir, MS-nemi í heilsugæslu hjúkrun „Ég valdi meistara nám í heilsu­ gæslu hjúkrun því mig langaði að öðlast dýpri þekk ingu og fræðilega færni til að mæta þörfum barna og fjöl skyldna þeirra. Námið er krefjandi en jafn framt fjölbreytt og skemmtilegt. Áhugaverðast var að sjá hversu flott hjúkrun er sem fræðigrein.“ Diplómanám á meistarastigi haustið 2016 • Gjörgæsluhjúkrun • Hjúkrun aðgerðasjúklinga • Þverfræðilegt diplómanám í kynfræði Kandídatsnám á meistarastigi • Ljósmóðurfræði (embættispróf) Meistaranám • Barnahjúkrun • Geðhjúkrun • Heilsugæsluhjúkrun • Hjúkrun aðgerðasjúklinga og bráðveikra • Hjúkrun í langvinnum veikindum og á efri árum • Hjúkrunarstjórnun • Ljósmóðurfræði • Rannsóknaþjálfun • Skurðhjúkrun • Svæfingahjúkrun • Önnur klínísk sérhæfing Umsóknarfrestur er til 15. apríl 2016 Upplýsingar á www.hjukrun.hi.is og hjá verkefna stjórum framhaldsnáms; Margréti Gunnarsdóttur, maggagu@hi.is, sími 525 5204 og Elínu Helgadóttur, elinh@hi.is, sími 525 4910. Guðsteinn Bjarnason gudsteinn@frettabladid.is 2 . a p r í l 2 0 1 6 l a U G a r d a G U r10 f r é t t i r ∙ f r é t t a B l a ð i ð
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.