Fréttablaðið - 02.04.2016, Page 47

Fréttablaðið - 02.04.2016, Page 47
Rekstrarstjóri í verktaka- og þjónustufyrirtæki Garðlist ehf. hefur verið starfandi frá árinu 1989. Fyrirtækið hefur sérhæft sig í viðhaldsþjónustu í görðum og á grænum svæðum fyrir einstaklinga, fyrirtæki, húsfélög og bæjarfélög. Fyrirtækið hefurvaxið mikið á þessum tíma og aukið við sig mannskap og verkefnum. Á sumrin starfa um 90 manns hjá fyrirtækinu en á veturna eru rúmlega 30 fastir starfsmenn sem sinna vetrarverkum á borð við snjómokstur, jólaskreytingar og önnur tilfallandi verk. Nánari upplýsingar um fyrirtækið má finna á heimasíðu þess www.gardlist.is Nánari upplýsingar um starfið veita Ari Eyberg (ari@intellecta.is) og Þórður S. Óskarsson (thordur@intellecta.is), í síma 511-1225. Umsóknarfrestur er til og með 11. april nk. Umsókn óskast fyllt út á www.intellecta.is og þarf henni að fylgja starfsferilskrá og kynningarbréf. Farið verður með allar fyrirspurnir og umsóknir sem trúnaðarmál. Garðlist auglýsir laust til umsóknar starf rekstrarstjóra. Rekstrarstjóri er yfirmaður rekstrar og heldur utan um verkefnastöðu fyrirtækisins hverju sinni og eftirfylgni þeirra ásamt nýtingu á tækjum og mannskap. Staðan tilheyrir framkvæmdastjórn og heyrir beint undir framkvæmdastjóra. Intellecta Síðumúli 5, 108 Reykjavík, sími 511 1225. Menntunar og hæfniskröfur • Rekstrarmenntun • Reynsla af rekstri er nauðsynleg • Stjórnunarreynsla er nauðsynleg • Góð almenn tölvukunnátta • Jákvæðni, lausnamiðuð hugsun og lipurð í mannlegum samskiptum er mikilvæg Starfssvið • Ábyrgð á daglegum rekstri fyrirtækisins • Áætlanagerð og kostnaðareftirlit verka • Umsjón með tímaskráningu verka og starfsmanna • Stjórnunarleg ábyrgð starfsmanna • Samskipti við verkkaupa og aðra viðskiptavini Um er að ræða framtíðarstarf og mjög gott tækifæri fyrir réttan einstakling. Verksmiðjustjóri nýrrar verksmiðju ÍSAGA var stofnað árið 1919 í samstarfi við AGA, sem eignaðist meirihluta í fyrirtækinu 1991. Árið 1999 var AGA keypt af Linde frá Þýskalandi sem er eitt stærsta gasfyrirtæki heims með starfsemi í yfir 100 löndum og 50 þúsund starfsmenn. ÍSAGA ehf hefur aðsetur að Breiðhöfða í Reykjavík. Þar eru súrefnis- og köfnunarefnis verksmiðja fyrirtækisins, áfyllingastöð, skrifstofa, verslun o.fl. Einnig rekur ÍSAGA koldíoxíð-verksmiðju að Hæðarenda í Grímsnesi. Þess utan er ÍSAGA ehf með 7 afgreiðslustaði víðsvegar um landið. Hjá fyrirtækinu starfa um 28 manns. Nánari upplýsingar um fyrirtækið má finna á heimasíðu þess www.aga.is • Menntun sem nýtist í starfi s.s. verkfræði, tæknifræði, vélstjórn eða vélfræði • Reynsla af stjórnun úr framleiðsluumhverfi • Reynsla af framkvæmdaeftirliti er kostur • Þekking og reynsla af umhverfis-, heilsu- og öryggismálum (EHS) • Geta til að vinna sjálfstætt og í teymi • Mjög góð íslensku- og enskukunnátta • Mjög góð samskiptahæfni • Þátttaka í verkefnastjórnun og eftirliti á byggingarstað á meðan uppbyggingu stendur • Tengiliður á milli verktaka og verkkaupa • Tengiliður að hluta við byggingayfirvöld og aðra hagsmunaaðila • Ábyrgð á umhverfis-, heilsu- og öryggismálum • Dagleg rekstrar- og framleiðslustjórnun • Áætlanagerð s.s. vegna viðhalds og endurbóta ÍSAGA ehf. óskar eftir að ráða reyndan og öflugan einstakling til starfa. Um er að ræða starf verksmiðjustjóra (site/plant manager) við uppbyggingu nýrrar verksmiðju til framleiðslu á súrefni og köfnunarefni. Verksmiðjan verður staðsett í nágrenni höfuðborgarsvæðisins. Framleiðsla verksmiðjunnar verður sjálfvirk og eftirlit með henni fjarstýrt. Byrjað verður á jarðvegsvinnu í sumar og er áætlað að verksmiðjan komist í full afköst eftir mitt ár 2017. Á uppbyggingartíma verður viðkomandi tengiliður við verkefnastjóra og aðra hagsmunaðila. Þekking og reynsla af umhverfis-, heilsu- og öryggismálum (EHS) er skilyrði. Þetta er frábært tækifæri til að koma að spennandi uppbyggingu og kynnast starfseminni frá byrjun. Viðkomandi mun starfa áfram í stjórnunarteymi ÍSAGA eftir að uppbyggingu lýkur, í hlutverki verksmiðjustjóra fyrirtækisins. Nánari upplýsingar um starfið veita Ari Eyberg (ari@intellecta.is) og Þórður S. Óskarsson (thordur@intellecta.is), í síma 511-1225. Umsóknarfrestur er til og með 11. april 2016. Umsókn óskast fyllt út á www.intellecta.is og þarf henni að fylgja starfsferilskrá og kynningarbréf. Farið verður með allar fyrirspurnir og umsóknir sem trúnaðarmál. Intellecta Síðumúli 5, 108 Reykjavík, sími 511 1225. Menntunar- og hæfniskröfur:Helstu viðfangsefni og ábyrgð: Áfylling og afgreiðsla gashylkja ÍSAGA var stofnað árið 1919 í samstarfi við AGA, sem eignaðist meirihluta í fyrirtækinu 1991. Árið 1999 var AGA keypt af Linde frá Þýskalandi sem er eitt stærsta gasfyrirtæki heims með starfsemi í yfir 100 löndum og 50 þúsund starfsmenn. ÍSAGA ehf hefur aðsetur að Breiðhöfða í Reykjavík. Þar eru súrefnis- og köfnunarefnis verksmiðja fyrirtækisins, áfyllingastöð, skrifstofa, verslun o.fl. Einnig rekur ÍSAGA koldíoxíð-verksmiðju að Hæðarenda í Grímsnesi. Þess utan er ÍSAGA ehf með 7 afgreiðslustaði víðsvegar um landið. Hjá fyrirtækinu starfa um 28 manns. Nánari upplýsingar um fyrirtækið má finna á heimasíðu þess www.aga.is Nánari upplýsingar um starfið veita Ari Eyberg (ari@intellecta.is) og Torfi Markússon (torfi@intellecta.is) í síma 511 1225. Umsóknarfrestur er til og með 11. apríl 2016. Umsókn óskast fyllt út á www.intellecta.is og þarf henni að fylgja starfsferilskrá. Farið verður með allar umsóknir og fyrirspurnir sem trúnaðarmál og þeim svarað. Intellecta Síðumúli 5, 108 Reykjavík, sími 511 1225. Hæfniskröfur • Reynsla af sambærilegu starfi er æskileg • Samviskusemi, þjónustulund og dugnaður • Almenn tölvukunnátta • Lyftarapróf er æskilegt (annars mun fyrirtækið senda viðkomandi á námskeið til að taka prófið) • Geta til að vinna sjálfstætt og með öðrum Starfssvið • Móttaka viðskiptavina • Áfylling og afgreiðsla á hylkjum til einstaklinga, fyrirtækja og stofnana • Ferma og afferma bíla á lyftara ÍSAGA ehf. óskar eftir að ráða duglegan einstakling til starfa við áfyllingu og afgreiðslu á gashylkjum. Um fullt starf er að ræða. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst. Starfið hentar konum, ekki síður en körlum og eru þær hvattar til að sækja um.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.