Fréttablaðið - 02.04.2016, Page 58

Fréttablaðið - 02.04.2016, Page 58
Sölumaður Smiðjuvegi 2, Kóp - S. 554 0400 Okkur vantar öugan sölumann til starfa í einu sérverslun landsins með grill og grillvörur Umsóknir og fyrirspurnir sendast á starf@grillbudin.is Ert þú heiðarlegur, samviskusamur og metnaðarfullur einstaklingur sem hefur áhuga á bílum? Þá erum við kannski að leita af þér! Erum að bæta við okkur starfsmanni vegna aukinna umsvifa í sölu á notuðum bifreiðum. Helstu verkefni og ábyrgðir: Þjónusta viðskiptavini bílasölunnar, fylgja eftir fyrirspurnum og vinna með kaupanda og seljanda í 100% trúnaði. Töluverð teymisvinna fylgir starfinu og mikil upplýsingaskylda. Starfinu fylgir helgarvinna mismikil eftir árstíðum. Hæfniskröfur: Leitum af kraftmiklum einstaklingi með áhuga á þjónustu og sölumennsku. • almenn tölvukunnátta • góðir skipulagshæfileikar og jákvætt lífsviðhorf • frumkvæði og samstarfsvilji, öguð vinnubrögð • hæfni í mannlegum samskiptum • löggiltur bifreiðasali, kostur Áhugasamir geta sent umsóknir á asgeir@planid.is, allar frekari upplýsingar fást á staðnum eða í síma 517-0000, hjá Ásgeiri A. Ámundssyni. Umsóknarfrestur er til 11. apríl. 2016Viltu vera góður gestgjafi ferðamanna í Reykjavík? Menningar- og ferðamálasvið Deildarstjóri á Upplýsingamiðstöð ferðamanna. Höfuðborgarstofa leitar að reynslumiklum og metnaðarfullum einstaklingi til að stýra daglegum rekstri Upplýsingamiðstöðvar ferðamanna í Aðalstræti. Leitað er að stjórnanda sem hefur eldmóð og áhuga á að leiða Upplýsingamiðstöðina inn í nýja tíma. Viðkomandi ber ábyrgð á daglegum rekstri miðstöðvarinnar, þar með talið umsjón með þjónustu, starfsmannamálum, gerð og eftirfylgni áætlana. Hefur umsjón með samskiptum upplýsingamiðstöðvarinnar við ferðaþjónustufyrirtæki og aðra hagaðila með það að markmiði að efla faglega ráðgjöf og aðstoð við ferðamenn og ferðaskipuleggjendur, og kynna Reykjavík sem áfangastað. Ábyrgð á sérverkefnum m.a. þróun og sölu á Gestakorti Reykjavíkur. Áherslur starfsins byggja á Ferðamálastefnu Reykjavíkurborgar og starfsáætlun Höfuðborgarstofu á hverjum tíma. Starfið krefst: • Háskólamenntunar sem nýtist í starfi. Framhaldsmenntun er ótvíræður kostur. • Að lágmarki 3ja ára reynsla á sviði ferðamála. • Frumkvæðis, sjálfstæðis í vinnubrögðum og góðra skipu- lagshæfileika. • Umtalsverðrar reynslu af rekstri, áætlanagerð og verkefna- stjórnun. • Yfirgripsmikillar þekkingar á ferðaþjónustu á höfuðborgar- svæðinu. • Þekkingar og áhuga á náttúru- og menningartengdri ferða- þjónustu á landsvísu. • Færni og getu til að vinna undir álagi og sinna mörgum viðfangsefnum. • Góðrar tungumálakunnáttu, íslensku, ensku og þriðja tungumáls auk færni til að tjá sig vel í ræðu og riti. • Framúrskarandi færni í mannlegum samskiptum og ríkrar þjónustulundar. Laun eru samkvæmt samningi Reykjavíkurborgar og hlutaðeigandi stéttarfélags. Um er að ræða fullt starf og þarf viðkomandi að geta hafið störf sem fyrst. Nánari upplýsingar veitir: Áshildur Bragadóttir forstöðumaður Höfuðborgarstofu, ashildur.bragadottir@reykjavik.is, sími 782 1202. Vakin er sérstök athygli á markmiðum starfsmanna- og mannréttindastefnu Reykjavíkurborgar sem er að finna á www.reykjavik.is. Umsóknarfrestur er til og með 14. apríl nk. Umsóknir skulu sendar á vef Reykjavíkurborgar www.reykjavik.is/storf. Hlutverk Menningar- og ferðamálasviðs er að fara með framkvæmd menningar- og ferðamála hjá Reykjavíkurborg. Sviðinu tilheyra menningarstofnanir Reykjavíkurborgar; Borgarbóksafn Reykjavíkur - menningarhús, Borgarsögusafn Reykjavíkur og Listasafn Reykjavíkur. Höfuðborgarstofa ber ábyrgð á heildarkynningu Reykjavíkur á sviði ferðamála innanlands og utan, rekur upplýsingamiðlun til ferðamanna og sér um skipulag og framkvæmd stærstu borgarhátíðanna í Reykjavík. Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut kynja í störfum og að vinnustaðir borgarinnar endurspegli það margbreytilega samfélag sem borgin er. Skrifstofa Alþingis óskar eftir starfsmanni á ármálaskrifstofu í fullt starf. Sjá nánari upplýsingar á starfatorg.is. Vinnumálastofnun Þjónustufulltrúi Verkefni og ábyrgð: • Samskipti við viðskiptavini í afgreiðslu, síma og tölvupósti. • Móttaka og upplýsingagjöf. • Samskipti og upplýsingagjöf til samstarfsmanna á öðrum sviðum. • Bakvinnsla. Hæfnikröfur: • Menntun sem nýtist í starfi. • Góð þjónustulund og mikil færni í mannlegum samskiptum. • Góð almenn tölvukunnátta skilyrði. • Gott vald á íslensku og ensku í töluðu og rituðu máli. • Reynsla af sambærilegu starfi æskileg. Vinnutími er frá kl 8:30-16:30 Laun eru samkvæmt kjarasamningi fjármála­ ráðherra og hlutaðeigandi stéttarfélags. Sækja skal um starfið á Starfatorgi: www.starfatorg.is/skrifstofustorf/thjonustufull­ trui­vinnumalastofnun­reykjavik­201603­467 Umsóknarfrestur er til og með 16. apríl 2016. Nánari upplýsingar um starfið veitir Þröstur Sigurðsson þjónustustjóri í gegnum netfangið throstur.sigurdsson@vmst.is Vinnumálastofnun leitar að öflugum starfsmanni í áhugavert og fjölbreytt starf í þjónustuveri. Leitað er eftir einstaklingi sem á auðvelt með að tileinka sér gildi Vinnumálastofnunnar: Fyrirmyndarþjónusta; Virðing; Áreiðanleiki. Umsækjendur þurfa að hafa framúrskarandi samskiptafærni, áhuga á velferðarmálum og reynslu af almennum skrifstofustörfum. Vinnumálastofnun Kringlunni 1, 103 Reykjavík Sími 515 4800 www.vmst.is Fyrirmyndarþjónusta Virðing Áreiðanleiki
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.