Fréttablaðið - 02.04.2016, Blaðsíða 60
| AtvinnA | 2. apríl 2016 LAUGARDAGUR18
Menntaskóli Borgarfjarðar
auglýsir eftirfarandi störf:
Íslenskukennari í 100% starf
• Kennsluréttindi á framhaldsskólastigi í íslensku skilyrði.
• Laun greiðast samkvæmt kjarasamningi KÍ.
Félagsmálafulltrúi, vef- og tölvuumsjón með meiru í 100% starf
• Nánari upplýsingar hjá skólameistara.
• Laun greiðast samkvæmt kjarasamningum SGS og ríkis
Umsóknir með ítarlegum upplýsingum um menntun og fyrri störf
skulu berast Guðrúnu Björgu Aðalsteinsdóttur skólameistara
í netfangið gudrunbjorg@menntaborg.is
Einnig er hægt að nálgast nánari upplýsingar í síma 433-7700.
Umsóknir þurfa að berast í síðasta lagi 22. apríl 2016.
Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur
verið tekin.
Sunnulækjarskóli
Við Sunnulækjarskóla á Selfossi eru lausar stöður umsjónar-
kennara á yngsta stigi og stöður kennara á elsta stigi. Meðal
kennslugreina á elsta stigi er enska, danska og stærðfræði. Þá
vantar íþróttakennara til að kenna íþróttir, sund og dans.
Umsækjandi þarf að hafa kennsluréttindi, góða skipulags-
hæfileika og mikla hæfni í mannlegum samskiptum. Reynsla
af teymisvinnu og áhugi á þróunarstarfi eru mikilvægir eigin-
leikar.
Í skólanum eru um 600 nemendur og þar er lögð áhersla á
sveigjanlega og fjölbreytta kennsluhætti, einstaklingsmiðað
nám, teymisvinnu kennara, ábyrgð nemenda og góða sam-
vinnu allra sem að skólastarfinu koma. Laun og starfskjör
eru samkvæmt kjarasamningi Launanefndar Sveitarfélaga og
Kennarasambands Íslands. Starfið hentar jafnt konum sem
körlum.
Nánari upplýsingar má finna á vefsíðu skólans:
http://www.sunnulaekjarskoli.is
Umsóknarfrestur er til 15. apríl 2016 en ráðið er í stöðurnar frá
1. ágúst 2016
Umsókn með upplýsingum um menntun, starfsreynslu og um-
sagnaraðilum sendist Birgi Edwald, skólastjóra,
birgir@sunnulaek.is eða Sunnulækjarskóli, Norðurhólum 1,
800 Selfoss.
Skólastjóri
Laugavegur 182, 105 Reykjavik
Tel: 510-8600
e-mail: japan@rk.mofa.go.jp
Embassy clerk
The Embassy of Japan seeks capable, responsible
and flexible driver / butler at ambassador’s residence
(1 person).
Basic conditions for application are below:
• Good skills in car-driving and administration
works
• Experienced waiter will be very welcome
• Good command of language (Icelandic and
English) and computer
• Star t of work from 25 April 2016 and contract
renewal every 2 years
CV should be sent to the following address until
5 April 2016.
* CV should be writ ten in English.
HH Ráðgjöf • Fiskislóð 81 • 101 Reykjavík • Sími: 561 5900 • Fax: 561 5909 • hhr@hhr.is • www.hhr.is
Ráðningarþjónusta
RÁÐNINGARÞJÓNUSTA
Leitar þú að starfsmanni?
HH Ráðgjöf er alhliða ráðningarþjónusta og við státum okkur af því að veita framúrskarandi
þjónustu hvort sem um ræðir ráðningu ófaglærðra, faglærðra eða sérfræðinga.
Ráðgjafar okkar veita fúslega frekari upplýsingar í síma 561 5900 eða sendu okkur tölvupóst: hhr@hhr.is
Vinnusparnaður
Við vinnum úr umsóknum, leitum í gagnagrunni okkar,
tökum forviðtöl og öflum umsagna.
Markviss leit
Sérskrifaður hugbúnaður gerir leit afar markvissa og
tryggir að við finnum hæfasta einstaklinginn.
Þriggja mánaða ábyrgð
Ef starfsmaður hættir störfum innan þriggja mánaða er
ráðning í hans stað án endurgjalds.
Ekkert staðfestingargjald
Við leggjum áherslu á að rækta árangursríkt og ánægjulegt
langtímasamband við viðskiptavini okkar og því greiðir þú
ekkert ef ekki verður af ráðningu.
Fjöldi hæfra umsækjenda
Fjöldi umsækjenda er á skrá í almennum gagnagrunni
okkar sem tryggir að við finnum rétta einstaklinginn
fyrir starfið.
Fjölbreyttar þjónustuleiðir
Í boði eru fjölbreyttar þjónustuleiðir sniðnar að þörfum
og væntingum viðskiptavina okkar. Þú finnur lausnina
hjá okkur.
Reynsla og þekking
Hjá HH Ráðgjöf starfa sérfræðingar á sviði starfsmanna-
mála sem búa m.a. yfir mikilli reynslu af ráðningum og
hagnýtri menntun.
Sanngjarnt verð
Bjóðum mjög hagstætt og samkeppnishæft verð á
þjónustu okkar. Gerðu verðsamanburð!
HH Ráðgjöf hefur vönduð vinnubrögð og fagmennsku að leiðarljósi. Við leggjum metnað okkar í að veita
afburðarþjónustu og finna réttan einstakling fyrir þá aðila sem leita okkar aðstoðar við ráðningu starfsfólks.
Kostir þess að nýta sér þjónustu HH Ráðgjafar eru m.a.:
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
7
3
9
0
2
Helstu verkefni
• Gerð fjárhagsáætlana
• Upplýsingaöflun og tölfræðileg úrvinnsla gagna
• Skýrslugerð og kynningar
• Vinna og eftirlit með uppgjöri afkomueininga
• Umsjón með kostnaðareftirliti
Menntunar- og hæfnikröfur
• Háskólapróf, viðskiptafræði eða önnur
háskólamenntun sem nýtist í starfið
• Góð kunnátta í reikningshaldi
• Yfirgripsmikil Excel kunnátta
• Reynsla af úrvinnslu og framsetningu
tölfræðilegra gagna
• Þekking á SAP er kostur
• Skipulagshæfni
Eiginleikar
• Samviskusamur og fylginn sér
• Góðir samskiptahæfileikar
• Kraftur og frumkvæði
• Vandvirkni
> Ertu klár? – sérfræðingur í hagdeild
Umsóknarfrestur er til og með 10. apríl nk.
Umsóknir skulu fylltar út á vef Samskipa www.samskip.is.
Umsækjendur eru beðnir um að skila inn ítarlegri ferilskrá ásamt greinargóðu kynningarbréfi sem tilgreinir á skilmerkilegan hátt
hvernig umsækjandi uppfyllir kröfur um menntun, reynslu, hæfni og eiginleika.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Ingólfur Rúnar Ingólfsson forstöðumaður hagdeildar í póstfanginu
ingolfur.runar.ingolfsson@samskip.com
Sérfræðingur ber ábyrgð á markaðs- og framlegðargreiningu fyrir fyrirtækið. Sérfræðingur kemur að
gerð fjárhagsáætlana ásamt því að vinna að upplýsingasöfnun og tölfræðilegri úrvinnslu gagna og
kynningum á niðurstöðum.
Samskip eru flutningafyrirtæki með starfsstöðvar víða um heim. Starfsfólk Samskipa býður viðskiptavinum
faglega ráðgjöf og heildarlausnir á sviði flutninga- og flutningatengdrar þjónustu. Við höfum á að skipa
fjölbreyttum hópi starfsfólks sem vinnur ávallt með frumkvæði, samheldni og þekkingu að leiðarljósi.
Öryggis- og heilbrigðismál starfsfólks eru í fyrirrúmi og bjóðum við upp á fyrirmyndar vinnuaðstöðu.