Fréttablaðið - 02.04.2016, Page 65

Fréttablaðið - 02.04.2016, Page 65
| AtvinnA | LAUGARDAGUR 2. apríl 2016 23 Læknisstaða á Umdæmissjúkrahúsi Austurlands/FSN SÉRFRÆÐINGUR Í LYFLÆKNINGUM Laus er til umsóknar staða sérfræðings í lyflækningum við Umdæmissjúkrahús Austurlands/FSN í Neskaupstað. Starfshlutfall er 100% en hlutastarf kemur til greina og starfið gæti hentað 2-3 læknum að deila með sér. Staðan veitist frá 1. júní 2016 eða eftir nánara samkomulagi. Helstu verkefni og ábyrgð Helstu verkefni og ábyrgð eru þátttaka í daglegri læknisþjónustu á deildum um- dæmissjúkrahússins og heilsugæslunnar þar. Þetta innifelur m.a. vaktskyldu, samskipti og þjónustu við sjúklinga, kennslu og þverfaglega samvinnu (teymisvinnu). Hæfnikröfur Fullgild sérfræðiréttindi í almennum lyflækningum. Lögð er áhersla á faglegan metnað, jákvæðni og sveigjanleika. Lipurð og áreiðanleiki í samskiptum eru skilyrði. Áskilinn er réttur til að hafna umsóknum frá einstaklingum sem ekki teljast upp- fylla framangreind skilyrði. Umsóknarfrestur er til og með 1. maí 2016. Kjör fara eftir kjarasamningi fjármálaráðherra og Læknafélags Íslands. Umsóknum skal skilað á eyðublöðum sem fást á vef Embættis landlæknis; www.landlaeknir.is, til HSA, mannauðsstjóra, Lagarási 22, 700 Egilsstöðum. Öllum umsóknum verður svarað. Tekið er mið af jafnréttisstefnu HSA við ráðningar. Umsókn fylgi staðfestar upplýsingar um nám, starfsreynslu, kennslu og vísindastörf, ásamt afriti af greinum sem umsækjandi kann að hafa birt eða skrifað. Mat HSA byggist á innsendum umsóknargögnum. Viðtöl verða tekin við umsækjendur og byggist ákvörðun um ráðningu í starfið einnig á þeim. Tóbaksnotkun er ekki heimil á vinnutíma innan HSA. Nánari upplýsingar veita Kristín B. Albertsdóttir, forstjóri, s. 470-3050, netf. kba@hsa.is, Pétur Heimisson, framkvæmdastjóri lækninga, s. 470-3052 og 860-6830, netf. petur@hsa.is, Jón H. H. Sen, forstöðulæknir, s. 840-4144, netf. jon@hsa.is og Emil Sigurjónsson mannauðsstjóri, s. 470 3053 og 895 2488, netf. emils@hsa.is. Umdæmissjúkrahús Austurlands/FSN í Neskaupstað starfrækir blandaða lyf- og handlækningadeild, hjúkrunardeild, fæðingarþjónustu og endurhæfingardeild ásamt stoðdeildum, sem og heilsugæslu fyrir íbúa í Neskaupstað og Mjóafirði. Auk lyflæknis starfa svæfingalæknir, skurðlæknir og deildarlæknir á FSN. Þjónustusvæði sjúkrahússins nær frá Bakkafirði til Djúpavogs, svæðis sem telur um 11.000 íbúa. Meginhlutverk sjúkrahússins er að veita almenna sjúkrahúsþjónustu samanber lög um heilbrigðisþjónustu nr. 40/2007 og það er hlekkur í þjónustukeðju HSA, sem starfar á þremur fagsviðum; heilsugæslu-, hjúkrunar- og sjúkrasviði. Á þjónustusvæði HSA eru auk FSN sjö heilsugæslur, en alls eru starfseiningarnar ellefu talsins. HSA vill byggja þjónustu sína á mannvirðingu, þekkingu og þverfaglegri samvinnu. Læknateymið Sérfræðingur í lyflækningum myndar ásamt skurðlækni, svæfingalækni, deildarlækni og heimilislækni öflugt teymi lækna við sjúkrahúsið. Sjúkrahúsið er vel búið tækjum, s.s. CT tæki, ómtæki af nýjustu gerð og rannsóknarstofan er góð. Farandsérfræðingar í ýmsum greinum heimsækja sjúkrahúsið og sinna þannig sérfræðiþjónustu í nærumhverfinu. Samfélagið Í Neskaupstað er sterkt skólasamfélag; leikskóli, grunnskóli, tónlistarskóli og verkmenntaskóli. Spölkorn er í næsta menntaskóla yfir á Fljótsdalshéraði. Vegalengdir eru að jafnaði stuttar og fólk því fljótt í förum milli staða, hvort sem um er að ræða t.d. skóla eða þjónustu af ýmsum toga. Íbúarnir eru samheldnir og samfélagið líflegt. Íþróttir Íþróttalífið á svæðinu er bæði fjölbreytt og fjörugt, hvort sem um er að ræða fótbolta, blak, sund, hestamennsku eða karate. Oddskarð er skíðasvæði í fjöllunum milli Norðfjarðar og Eskifjarðar. Það er rómað fyrir náttúrufegurð og góðan aðbúnað. Mjög góður 9 holu golfvöllur er í Norðfirði. Æfingagjöld barna þykja hér hagstæðari en víða annars staðar. Samgöngur Ný Oddskarðsgöng munu gjörbylta samgöngum í Fjarðabyggð. Þau opna á næsta ári. Egilsstaðaflugvöllur er í aðeins klukkustundaraksturs- fjarlægð. Náttúrufegurð Náttúra Austurlands er í senn mikilúðleg og fíngerð. Útivistarfólk á auðvelt með að finna eitthvað við sitt hæfi frá fjörum til fjalla og náttúruunnendur eru óvíða betur í sveit settir en einmitt í Fjarðabyggð. Hvort sem menn vilja lóna á fjörðum eða sigra fjöll er það allt innan seilingar. Áhugafólk um veiðar hefur fjölbreytta möguleika til sjós og lands og allir eru þeir nærtækari en menn gæti að óreyndu grunað. Fjarðabyggð er ákjósanlegur kostur jafnt í starfi og leik: Ljósm. EÞK. Ef þú ert með rétta starfið — erum við með réttu manneskjuna www.capacent.is Ráðgjafar okkar búa yfir víðtækri þekkingu á atvinnulífinu og veita trausta og persónu lega ráðgjöf. Vantar starfsmenn í uppsettningar á vinnupöllum sem og almenna verkamannavinnu. Góð laun í boði fyrir góða menn. Umsóknir skal senda á pallaleiga@pallaleiga.is STÖRF HJÁ GARÐABÆ Garðaskóli • Deildarstjórar • Grunnskólakennarar • Skólaliðar Leikskólinn Akrar • Leikskólakennari eða annar uppeldismenntaður starfsmaður Samkvæmt jafnréttisáætlun Garðabæjar eru allir hvattir til að sækja um - karlar jafnt sem konur. Nánari upplýsingar á www.gardabaer.is. G A R Ð A T O R G I 7 S Í M I 5 2 5 8 5 0 0 G A R D A B A E R . I S
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.