Fréttablaðið - 02.04.2016, Page 116

Fréttablaðið - 02.04.2016, Page 116
Á morgun mun rappsveitin Reykja- víkurdætur selja af sér spjarirnar á Prikinu. Steinunn Jónsdóttir, einn af meðlimum sveitarinnar, segir að meðal þess sem verður til sölu verði fatnaður sem stelpurnar hafa klæðst á tónleikum sínum. „Það verða samt engir spítalagallar á boð- stólum, því miður. Okkur langar að endurnýja fataskápinn okkar og við vorum með svipaðan fatamarkað fyrir seinasta sumar sem gekk mjög vel og það voru allir rosa ánægðir. Þetta árið verðum við samt líka með Reykjavíkurdætravarning en salan á honum rennur til fjármögn- unar nýju plötunnar okkar sem er væntanleg í sumar.“ Ljóst er að nægt úrval fata verður á markaðinum enda ætla tíu stelpur úr þessari 16 manna hljómsveit að selja fötin sín. Steinunn segir að öll hin mikla samvinna í svona stórum hópi hafi gengið vonum framar og það að taka upp lög eða halda tón- leika gangi eins og vel smurð vél. „Við erum mjög margar í þessari hljómsveit en það hefur ekki verið neitt vandamál. Við erum allar mjög ólíkar og með mismunandi skoðanir en við erum búnar að þekkjast lengi og vinna náið saman þannig að við erum farnar að kunna hver á aðra. Við látum þetta virka.“ Það hefur verið nóg um að vera hjá Reykjavíkurdætrum upp á síð- kastið og það lítur allt út fyrir að sumarið verði þeirra allra anna- samasta hingað til. „Við fórum til London í byrjun mars og komum þá fram á þrennum tónleikum sem gekk alveg eins og í sögu. Svo í sumar erum við að fara á smá túr. Við spil- um á tónlistarhátíðum í Noregi og Belgíu og svo loksins í Hróarskeldu í Danmörku.“ Rappsveitin er nú að leggja loka- hönd á sína fyrstu plötu og eru þær að fjármagna hana að mestu með framlögum í gegnum Kickstarter. „Ég mundi segja að um 80% af plöt- unni séu tilbúin. Þetta verður mjög fjölbreytt plata og við erum að fá takta frá mjög mismunandi upp- töskustjórum. Það verður líka nýtt hóplag á plötunni sem er framleitt af Ólafi Arnalds og Helga Sæmundi. Það eru tvær vikur eftir af Kickstar- ter-söfnuninni og við erum að bjóða upp á alls konar skemmtilegt fyrir þá sem leggja okkur lið. Til dæmis fyrir væna upphæð ætlum við að bjóða upp á ferð um Gullna hringinn, nema í okkar eigin stíl.“ – gj Selja allar spjarir sínar nema spítalagallana Fjórar af þeim tíu Reykjavíkurdætrum sem munu selja úr fataskápunum sínum í dag. Á myndinni eru þær Jóhanna, Salka, Bergþóra og Steinunn. FRettaBlaðið/SteFÁn Reykjavíkurdætur ætla að selja af sér spjar- irnar á Prikinu í dag. Meðal þess sem verður til sölu eru ýmsir tónleikabúningar. Aðalfundur Félags tæknifólks í rafiðnaði verður haldinn í húsnæði RSÍ að Stórhöfða 31, Grafarvogsmegin miðvikudaginn 13. apríl 2016 kl. 17. Dagskrá: Venjuleg aðalfundarstörf samkvæmt lögum félagsins Kosning fulltrúa á ársfund Stafa Önnur mál Reykjavík 31.04.2016 Stjórn Félags Tæknifólks í rafiðnaði AÐALFUNDUR FÉLAGS TÆKNIFÓLKS Í RAFIÐNAÐI YKKAR FÉLAG www.rafis.is/ftr | www.ftr.is „Ég á lítinn guðson, þriggja ára, sem var að fá frumgreiningu einhverfu. Þetta er svolítið sérstakt en maður reynir bara að líta á þetta með jákvæðum augum og öðlast skilning á þessu. Ég á eftir að kynna mér þessi mál betur og finnst að sem flestir ættu að gera það,“ segir söngvarinn Valdimar sem ásamt samnefndri hljómsveit auk Hjálma og Júníusar Meyvants kemur fram á styrktartón- leikum í Gamla bíói í kvöld í tilefni alþjóðlegs dags einhverfunnar. Allur ágóði rennur til málefnisins. Í ár safnar Styrktarfélag barna með einhverfu fyrir gerð á uppbyggilegu fræðsluefni um einhverfu ætluðu börnum en mikill skortur er á slíku. Í dag kl. 14 stendur félagið fyrir góðgerðarspinning þar sem frægir Íslendingar hjóla til góðs. Fjölmörg fyrirtæki hafa lagt málefninu lið með því að „kaupa“ hjól og senda sinn full- trúa, þjóðþekkt- an, til að hjóla fyrir sig. – ibs Hjólað og spilað fyrir börn með einhverfu 2 . a p r í l 2 0 1 6 l a U G a r D a G U r68 l í f i ð ∙ f r É T T a B l a ð i ð
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.