Dagblaðið Vísir - DV - 20.12.2019, Blaðsíða 50
50 FÓKUS 20. desember
Suðurnes
Reykjavík
Suðurnes
Sími 845-0900 • cargoflutningar@gmail.com • Finndu okkur á facebook
Tvisvar
á dag!
milli Suðurnesja og
höfuðborgarsvæðis
cargoflutningar.is
Flutningaþjónusta
Suðurnes
Reykjavík
Suðurnes
Sími 845-0900 • cargoflutningar@gmail.com • Finndu okkur á facebook
Tvisvar
á dag!
milli Suðurnesja og
höfuðborgarsvæðis
cargoflutningar.is
Flutningaþjónusta
„Ég er alltaf meira fyrir persónulegar gjaf-
ir með hugsun í heldur en dýrar gjafir,
sú sem stendur upp úr var falleg stílabók
sem litla systir mín hafði föndrað fyrir
mig, með myndum af okkur sem börn,
og eldri í bland, ásamt fallegum einlæg-
um skilaboðum og einkahúmor til mín.
Ég reyni að setja því frekar hugsun í þær
gjafir sem ég gef, en að eyða bara x mikl-
um pening í þær.“
Karitas Harpa Davíðsdóttir söngkona
„Jólagjöfin sem hefur reynst mér best kom frá Ingu Nasa, vinkonu
minni og aðstoðarkonu fyrir þremur árum síðan. Stundum er ég
eins og undin tuska eftir að hafa troðið upp á dansiböllum langt
fram á nótt. Inga hefur svo sannarlega tekið eftir því. Hún gaf mér
því stóra nuddrúllu úr korki. Ég hélt fyrst að þetta væri plat-drasl í
anda Clairol-fótanuddtækisins. En þessi korkrúlla hefur reynst mér
gríðarlega vel síðustu þrjú ár. Nú rúlla ég mér upp úr þessu fyrir og
eftir gigg og það svínvirkar. Þetta jafnast á við góðan nuddtíma. Ég
hef sjaldan verið jafn mjúkur og góður í skrokknum síðan ég fékk
þessa jólagjöf frá Ingu Nasa.“
Páll Óskar Hjálmtýsson tónlistarmaður
„Ég hef fengið margar góðar gjafir en eftir-
minnilegasta var líklega frá litlu systur minni
fyrir nokkrum árum. Það árið hélt ég upp á
jólin í fyrsta skipti án fjölskyldunnar minnar
– verandi skilnaðarbarn var það nú ekki mik-
ið vandamál, en eitt hafði ég aldrei upplifað
og það var að vera án litlu systur minnar um
jólin. Frá því að við vorum litlar skottur höfum
við alltaf haldið upp á jólin saman, hvort sem
það var hjá mömmu, pabba eða ömmu og afa.
En ekki þetta árið. Þetta árið var hún í Asíu og
ég hjá tengdafjölskyldunni minni. Aðfanga-
dagskvöld leið, allir opnuðu pakka, og und-
ir lokin kom allt í einu óvæntur pakki undan
trénu frá henni sem ég hafði ekki hugmynd
um að hafði laumast með. Það voru nú bara
rúmföt í pakkanum en með fylgdi langt kort
sem varð til þess að stóra systir fór að háskæla
fyrir framan alla. Og það er held ég uppá-
haldið mitt við pakka almennt; kortin. Enda
legg ég sjálf mikið upp úr fallegum og einlæg-
um kortum og á fjölmörg kort frá hinum ýmsu
afmælum og jólum sem ég hef sankað að mér
í gegnum tíðina. En þetta jólakort er efst í
bunkanum og fátt sem toppar það!“
Milla Ósk Magnúsdóttir, aðstoðarkona
mennta- og menningarmálaráðherra
„Ein eftirminnilegasta jólagjöf sem ég hef fengið var Arsenal-bún-
ingurinn frá mömmu og pabba þegar ég var sex ára gamall. Þau
gáfu mér Arsenal-búning ásamt fullt af Arsenal-dóti. Ég gleymi því
ekki hvað ég var himinlifandi þegar ég opnaði pakkann og sá bún-
ing sem mig dreymdi um að klæðast. Ég reyni að troða mér í hann
á tyllidögum en hef því miður vaxið upp úr honum.“
Nökkvi Fjalar Orrason frumkvöðull
Stóra systir
fór að háskæla
Hugsun ekki
peningur
Aldrei betri
í skrokknum
Himinlifandi