Dagblaðið Vísir - DV - 20.12.2019, Blaðsíða 31
KYNNING
LINDARFISKUR -
Ferskasti fiskurinn á landinu
Lindarfiskur er lítið fjölskyldufyrirtæki staðsett í Meðallandinu rétt austan við
Vík. „Móðir mín er frá þessari jörð og
er staðurinn algerlega einangraður.
Aðalverðmætin á jörðinni er allt
þetta tæra lindarvatn sem streymir
hér beint úr eldhrauninu og því er
staðurinn fullkominn fyrir bleikjueldi,”
segir Drífa Bjarnadóttir, einn eigandi
Lindarfisks. „Við fjölskyldan eigum og
rekum Lindarfisk saman. Það eru ég
og maðurinn minn, Árni Jóhannsson,
systir mín, Sigrún Bjarnadóttir, og
foreldrar okkar, þau Helga Ólafsdóttir
og Bjarni Jón Finnsson,” segir Drífa.
Alger sjálfbærni
Fyrstu bleikjuhrognin voru tekin hjá
fyrirtækinu árið 2011 og síðan þá
hefur Lindarfiski svo sannarlega
vaxið fiskur um hrygg. „Við stefnum
að algerri sjálfbærni og gerum því
allt sjálf. Nýlega fengum við okkur
svín sem éta nánast allan afskurðinn
af bleikjunum og afgangurinn er
svo notaður í áburð. Fiskinn vinnum
við alfarið á svæðinu. Það hefur
gengið hægt en örugglega að koma
fyrirtækinu á þann stað sem það
er í dag og munum við von bráðar
selja vörur okkar í stórmarkaði.
Við höfum meðal annars hannað
neytendaumbúðir sem eru svartar og
nær ógegnsæjar til þess að stuðla að
ferskari og betri vöru. Að auki höfum
við hugsað okkur að fara í útflutning
á eldisbleikju, enda erum við með
ótrúlega ferska vöru í höndunum.”
Tærasta vatnið, ferskasti fiskurinn
„Við leggjum mjög mikið upp úr
ferskleika, það er eitthvað sem við
getum bara alls ekki slegið af hérna
hjá Lindarfiski. Hrognin fáum við frá
kynbótastöðinni á Hólum í Hjaltadal
sem framleiðir fyrsta flokks hrogn.
Þau ölum við svo hér í Meðallandinu
í kerjum og svokölluðum
lengdarstraumsrennum. Hér
rennur ferskt og tært vatn beint úr
lindaruppsprettum og fiskurinn er
eins ferskur og getur orðið.”
Hafðu samband
„Við erum aðallega að selja
bleikju til veitingastaða sem
undantekningalaust lofa bleikjuna
okkar í hástert,” segir Drífa. Enn
sem komið er selur Lindarfiskur ekki
vörur í stórmörkuðum en til þess að
versla beint við Lindarfisk er hægt
að hringja í Drífu í síma 663-4528
eða senda henni netpóst á drifa@
lindarfiskur.com.
Nánari upplýsingar má nálgast
á lindarfiskur.com eða Facebook:
Lindarfiskur.
Einnig heldur Lindarfiskur úti síðu
á Instagram: lindarfiskur, sem er
stórskemmtilegt að fylgjast með.
Drífa Bjarnadóttir og Bjarni Jón Finnsson.
Bleikja er alltaf góð.