Dagblaðið Vísir - DV - 20.12.2019, Blaðsíða 37
KYNNING
REYKJAVIKNAILBAR.COM -
Íslenskar konur eru óhræddar
við að tjá sig með nöglunum!
Reykjavik Nailbar and Beauty Lounge er í eigu Gísla og Hrafnhildar. „Við opnuðum
stofuna í fyrra í Síðumúlanum.
Þar vorum við með naglabar,
naglaheildsölu og naglanámskeið.
Fljótlega bættist svo við LPG
endermalogie nuddmeðferð.
Áhuginn fyrir naglanámskeiðunum
var töluvert meiri en við gerðum
okkur grein fyrir og á innan við ári
sprengdum við húsnæðið utan af
okkur,“ segir Hrafnhildur. Reykjavik
Nailbar and Beauty Lounge er nú
nýflutt í stórglæsilegt húsnæði að
Nýbýlavegi 14, sem rúmar aukna
starfsemi snyrtistofunnar.
LPG endermalogie nuddmeðferð
er frábær jólagjöf.
„Í dag er þetta lúxus snyrtistofa
með nokkuð öðruvísi sniði en gengur
og gerist hérlendis, en fyrirmyndin
kemur frá Los Angeles. Við erum
þá allt í senn
heildsala
með
naglavörur, naglaskóli, snyrtistofa
og bjóðum einnig upp á LPG
endermologie nudd og námskeið í
augnháralengingu.“
LPG fyrir heilsuna og útlitið
Reykjavik Nailbar and Beauty
Lounge býður upp á hið frábæra
LPG endermologie nudd. „LPG
endermologie nuddið er
alger snilld fyrir unga
sem aldna og hefur
margvísleg áhrif á
bæði heilsu og
útlit. Það var
ein sem kom
til okkar um
daginn og
sagði eftir á
að henni hefði
ekki liðið jafn
vel í skrokknum
í 25 ár.
Það
gersamlega vekur
líkamann með
auknu blóðflæði.
Það losar bólgur og
vöðvabólgu en er einnig
gott við gigt og verkjum.
Nuddið losar stíflur í
sogæðakerfinu svo
líkaminn fer að vinna
betur við að losa sig
við eiturefni og bjúg.
Nuddið er einnig gott
fyrir útlitið en það
stinnir og þéttir húðina,
vinnur á appelsínuhúð og
erfiðum fitusvæðum, örum,
sliti og örvef. Andlitsnuddið
eykur kollagen, elastín og
hýalúrónsýru í húðinni, gefur
ljóma, stinnir slappa húð og vinnur
á fínum línum. Gjafabréfin í LPG
seljast líka mjög vel fyrir jólin
enda tilvalin í jólapakkann
handa ástinni.“
Neglur eru ástríða okkar
„Íslenskar konur elska að
vera með gelneglur í dag,
enda eru neglurnar oft
það sem setur
punktinn yfir
i-ið. Það er
ótrúlega
gaman að
sjá hvernig allt
virðist vera í
tísku. Það er
gríðarlegur
fjölbreytileiki
í skrauti,
formi, lengd
og litavali.
Fólk getur í
rauninni hannað
neglurnar
algerlega eftir
sínu höfði og sínum
persónuleika. Við erum líka
að bjóða upp á augnháralengingar
sem og námskeið í því.“
Vantar fleiri karla í bransann
Reykjavik Nailbar and Beauty
Lounge býður upp á afar vinsæl
naglanámskeið. „Við verðum
bráðum með hópnámskeið í
gelnöglum. Einnig bjóðum við upp
á einkanámskeið í gel- og akrýl
en tímasetning á þeim er eftir
samkomulagi. Einnig bjóðum við
upp á masterclass fyrir þá sem eru
lengra komnir.
Við fáum til okkar alls konar
konur í námskeiðin. Sumar koma
út af áhuga eða
langar að gera
neglur á vini og
vandamenn.
Aðrar vilja
leggja þetta
fyrir sig og
opna sjálfar
snyrtistofu í
framtíðinni.
Það sem mér
finnst vanta
í bransann hér
heima eru fleiri
karlmenn. Hann Gísli
okkar er líklega eini karlinn á Íslandi
sem kann að gera neglur og ferst
það virkilega vel úr hendi. Vonandi
fáum við að sjá fleiri karlmenn í
faginu, þeir eru nefnilega líka miklir
listamenn.“
Skráning í námskeið
Skráning er nú hafin í hópnámskeið
í gelnöglum í síma 616-1229.
Síðar verða auglýst masterclass
námskeið. Reykjavik Nailbar and
Beauty Lounge verður svo með fullt
af skemmtilegum og skrautlegum
uppákomum á komandi mánuðum
og því er um að gera að fylgjast með
á Facebook: Reykjavík Nail Bar and
beauty lounge.
Nánari upplýsingar má nálgast á
vefsíðunni reykjaviknailbar.com og
Facebook-síðunni Reykjavík Nail Bar
and Beauty Lounge.
Fylgstu með okkur á Snapchat:
beautyfactory01 og Instagram: @
reykjaviknailbar
Reykjavik Nailbar and Beauty Lounge
er staðsett að Nýbýlavegi 14, Kópvogi.
Sími: 772-0100 og 616-1229.