Dagblaðið Vísir - DV - 20.12.2019, Síða 37

Dagblaðið Vísir - DV - 20.12.2019, Síða 37
KYNNING REYKJAVIKNAILBAR.COM - Íslenskar konur eru óhræddar við að tjá sig með nöglunum! Reykjavik Nailbar and Beauty Lounge er í eigu Gísla og Hrafnhildar. „Við opnuðum stofuna í fyrra í Síðumúlanum. Þar vorum við með naglabar, naglaheildsölu og naglanámskeið. Fljótlega bættist svo við LPG endermalogie nuddmeðferð. Áhuginn fyrir naglanámskeiðunum var töluvert meiri en við gerðum okkur grein fyrir og á innan við ári sprengdum við húsnæðið utan af okkur,“ segir Hrafnhildur. Reykjavik Nailbar and Beauty Lounge er nú nýflutt í stórglæsilegt húsnæði að Nýbýlavegi 14, sem rúmar aukna starfsemi snyrtistofunnar. LPG endermalogie nuddmeðferð er frábær jólagjöf. „Í dag er þetta lúxus snyrtistofa með nokkuð öðruvísi sniði en gengur og gerist hérlendis, en fyrirmyndin kemur frá Los Angeles. Við erum þá allt í senn heildsala með naglavörur, naglaskóli, snyrtistofa og bjóðum einnig upp á LPG endermologie nudd og námskeið í augnháralengingu.“ LPG fyrir heilsuna og útlitið Reykjavik Nailbar and Beauty Lounge býður upp á hið frábæra LPG endermologie nudd. „LPG endermologie nuddið er alger snilld fyrir unga sem aldna og hefur margvísleg áhrif á bæði heilsu og útlit. Það var ein sem kom til okkar um daginn og sagði eftir á að henni hefði ekki liðið jafn vel í skrokknum í 25 ár. Það gersamlega vekur líkamann með auknu blóðflæði. Það losar bólgur og vöðvabólgu en er einnig gott við gigt og verkjum. Nuddið losar stíflur í sogæðakerfinu svo líkaminn fer að vinna betur við að losa sig við eiturefni og bjúg. Nuddið er einnig gott fyrir útlitið en það stinnir og þéttir húðina, vinnur á appelsínuhúð og erfiðum fitusvæðum, örum, sliti og örvef. Andlitsnuddið eykur kollagen, elastín og hýalúrónsýru í húðinni, gefur ljóma, stinnir slappa húð og vinnur á fínum línum. Gjafabréfin í LPG seljast líka mjög vel fyrir jólin enda tilvalin í jólapakkann handa ástinni.“ Neglur eru ástríða okkar „Íslenskar konur elska að vera með gelneglur í dag, enda eru neglurnar oft það sem setur punktinn yfir i-ið. Það er ótrúlega gaman að sjá hvernig allt virðist vera í tísku. Það er gríðarlegur fjölbreytileiki í skrauti, formi, lengd og litavali. Fólk getur í rauninni hannað neglurnar algerlega eftir sínu höfði og sínum persónuleika. Við erum líka að bjóða upp á augnháralengingar sem og námskeið í því.“ Vantar fleiri karla í bransann Reykjavik Nailbar and Beauty Lounge býður upp á afar vinsæl naglanámskeið. „Við verðum bráðum með hópnámskeið í gelnöglum. Einnig bjóðum við upp á einkanámskeið í gel- og akrýl en tímasetning á þeim er eftir samkomulagi. Einnig bjóðum við upp á masterclass fyrir þá sem eru lengra komnir. Við fáum til okkar alls konar konur í námskeiðin. Sumar koma út af áhuga eða langar að gera neglur á vini og vandamenn. Aðrar vilja leggja þetta fyrir sig og opna sjálfar snyrtistofu í framtíðinni. Það sem mér finnst vanta í bransann hér heima eru fleiri karlmenn. Hann Gísli okkar er líklega eini karlinn á Íslandi sem kann að gera neglur og ferst það virkilega vel úr hendi. Vonandi fáum við að sjá fleiri karlmenn í faginu, þeir eru nefnilega líka miklir listamenn.“ Skráning í námskeið Skráning er nú hafin í hópnámskeið í gelnöglum í síma 616-1229. Síðar verða auglýst masterclass námskeið. Reykjavik Nailbar and Beauty Lounge verður svo með fullt af skemmtilegum og skrautlegum uppákomum á komandi mánuðum og því er um að gera að fylgjast með á Facebook: Reykjavík Nail Bar and beauty lounge. Nánari upplýsingar má nálgast á vefsíðunni reykjaviknailbar.com og Facebook-síðunni Reykjavík Nail Bar and Beauty Lounge. Fylgstu með okkur á Snapchat: beautyfactory01 og Instagram: @ reykjaviknailbar Reykjavik Nailbar and Beauty Lounge er staðsett að Nýbýlavegi 14, Kópvogi. Sími: 772-0100 og 616-1229.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.