Dagblaðið Vísir - DV - 20.12.2019, Blaðsíða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 20.12.2019, Blaðsíða 2
2 20. desemberFRÉTTIR Á þessum degi, 20. desember 1370 – Gregoríus XI. varð páfi. 1699 – Pétur mikli fyrirskipaði að nýja árið skyldi hefjast 1. janúar í stað 1. september eins og áður hafði verið. 1930 – Landspítalinn tók til starfa. 1983 – Alþingi samþykkti frumvarp um kvótakerfi á fiskveiðar 1987 – Yfir 4.000 manns fórust þegar filippseyska farþegaskipið Dona Paz brann og sökk eftir árekstur. hugmyndir að jólagjöfum handa óvini Jólin eru tími fjölskyldu, ástar, friðar og hamingju. Á móti er þó manndýrið ekki alltaf með rökhugs- unina í lagi og tíðkast fátt meira en gremja á milli fólks. Því er upplagt að skoða hina hliðina og huga að gjafahugmynd- um fyrir fólk sem eldar grátt silfur en hefur þó enn löngun til að gefa um hátíðirnar. Eins og sagt er, sælla er að gefa en þiggja kjaftshöggið. Glimmer-sprengja Það er örugg og fljótvirk ávísun upp á drasl og tiltekt þegar viðkomandi opnar glimmer-sprengju. Þegar viðkomandi býst ekki við henni getur hann fljótt orðið styggur á því sem í fyrstu virtist vera saklaus opnun gjafar. Glimmer á það einnig til að festast alls staðar og við hvað sem er. Grikkurinn magnast ef fjölmennt er í kringum þiggjandann og allir í sínu fínasta pússi. Eitt-núll fyrir þér. Notuð fullorðins- leikföng Hin ýmsu fullorðinsleik- föng verða seint tilefni í slæmar jólagjafir, en ef einstaklingur opnar jólapakka þar sem slík tæki blasa við óinnpökkuð getur ímyndunaraflið farið á milljón. Viðkomandi einstaklingur gæti þá rekið upp stór augu og spurt: „Til hvers?“ áður en hann velti fyrir sér öllum notkunar- möguleikum sem tólin byðu upp á. Vertu bara viss um að gjöfin sé merkt frá jólasveinum. Brotin loforð Snilldin liggur oft í einfald- leikanum. Það er yfirleitt gaman að fá sendan veigamikinn jólapakka sem gæti innihaldið allan andskotann. Þess vegna er sniðugur leikur að finna stóran pappakassa, fylla hann af krumpuðum dag- blöðum, jafnvel þykkum og þungum steinum – til að gefa í skyn að innihaldið kunni að vera brothætt, sem er ávallt spennandi. Gættu þess líka að pakka kassanum inn minnst fjórum sinnum til að tryggja frekari tímaeyðslu hjá þiggjandanum. Gjafabréf í „óvissuferð“ Hvað er meira gefandi en að láta óvininn hlaupa yfir þröskuld? Þar kemur sterkt inn að smíða heimagert gjafabréf upp á (hvað annað?) óvissuferð, eða einfaldan ratleik. Þá er gefandi búinn að panta tíma hjá fjármála- eða tryggingaráðgjafa, svo dæmi sé nefnt. Á gjafabréfinu kæmu fram skýr skilaboð um götuheiti og tímasetn- ingu. Möguleikarnir eru endalausir. Kerti og búið spil Kerti og spil hafa lengi verið fastur fylgihlutur jólahefða. Ein hugmynd að útúrsnúningi hefðarinnar væri að finna einhvern sem tilheyrir bíllausum lífsstíl og gefa viðkom- andi bílakerti. Til að kóróna þessa gjöf skal gott og plastpakkað púsluspil fylgja með, en það sem þiggjandinn veit ekki er að gefandi hefur fjarlægt hátt í tíu einingar úr púsluspilinu. Martröðin og áráttu- þráhyggjan hefst með litlum skrefum. Fleyg orð „Nú þarf ég að rífa upp jólapakka og þykjast vera glaður. Hvílík sóun á pappír!“ – Ozzy Osbourne BIÐLISTAR FULLIR AF HUNDUM n Tugir hunda á biðlista n Blástur og bað vinsælar meðferðir M iklar annir eru hjá hundasnyrtistofum fyrir hátíðirnar og þurfa margar stofur að vísa hundum frá eða skrá þá að biðlista. Hundasnyrtistofan Gæludýr.is Hundasnyrtistofa Gæludýr. is segir annirnar miklar: „Við erum með yfir 30 þrjátíu hunda á biðlista.“ Annirnar hjá þeim byrja um þremur vikum fyrir jól og eins verður álíka mikið að gera í kringum páska. Á þeim árstíðum fara hundar mikið úr hárum og því upplagt að skella þeim í blástur til að létta álagið á ryksugunni heima við. Það fari eftir tegundum og aðstæðum hvaða snyrtimeðferðir verða fyrir valinu. „Það er náttúrulega mismunandi. Sumir koma bara í bað og blástur. Sumir koma í svokallaða léttsnyrtingu og svo eru sumir sem fara í svona rakstur og snyrtinu. En ég held að allar stofur séu með langa biðlista fyrir jólin.“ Hundahúsið Í sama streng tekur Hundahúsið í Kópavogi, hundasnyrtistofa sem hóf störf núna í sumar. „Það er búið að vera ágætlega mikið að gera. Allavega fullbókað í dag. Við hins vegar setjum fólk ekki á biðlista heldur reynum frekar að koma því fyrir.“ Þar sem stofan er ný eru þetta fyrstu jólin sem hún er starfrækt. „Okkur fannst ekki nægilega margir hundasnyrtar lærðir á Íslandi svo við skelltum okkur í nám til Spánar og Bretlands.“ Eins og hjá hundasnyrtistofunni hjá Gæludýr.is fer það eftir mikið eftir tegundum og hundi hvaða meðferð verður fyrir valinu. „Hárlosmeðferð er mjög vinsæl, og bað og jólaklipping.“ Dekurdýr Dýrasnyrtistofan Dekurdýr í Kópavogi fagnaði 10 ára afmæli þann 1. desember. Þegar blaðamaður hafði samband mátti strax heyra að nóg var að gera á þeim bænum. „Það er búið að vera mjög mikið að gera. Það mikið að við erum með biðlista, sem við náum því miður ekki að klára fyrir jólin. Það eru um þrjátíu á biðlista núna og það er eftir að við náðum að vinna listann töluvert niður.“ Líkt og hjá hinum stofunum koma hundar mikið til Dekurdýra til að láta blása burt laus hár, enda mikill hárlostími runninn í garð. „Það er rosalega misjafnt. Bað og blástur er mikið fyrir jólin því hundar eru mikið að fara úr hárum. Svo eru reyndar mjög margir sem eru rakaðir þrátt fyrir að það sé kalt og svoleiðis því eigendunum finnst það betra.“ Það eru því bæði menn og hundar sem skella sér í lagningu fyrir jólin og miðað við annir hjá þeim stofum sem DV heyrði í, þá þurfa líklega sumir hundar að fara í jólaklippingarköttinn. n
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.